Halló hundafólk =)
Mig vantar svo rosalega hjálp með hvolpinn minn, hún vill ekki læra það að pissa úti, hún vill bara pissa inni á dagblað, ég hef reynt að fara út með dagblaðið (ferlega asnalegt I know) en það virkar stundum, en oftast pissar hún þó bara INNI!!! Jafnvel þó að ég fari með hana út að ganga í næstum 2 tíma þá heldur dúllan bara í sér þar til inn er komið :( Hún er rúmlega 4 mánaða og ætti því alveg að vera tilbúin að læra þetta, ég fer líka með hana út eftir hverja máltíð, þegar hún vaknar og þegar að hún er búin að sofa.
Þannig að ef að einhver er með betra ráð, ENDILEGA deila því með mér :)
———————————————–