Mig langaði bara að benda á það að það eru ekki eingöngu lögreglumenn sem eiga betri kjör skilið vegna þess sem þeir þurfa að kljást við í sínu starfi, hvort sem það er svívirðingar, hættan á ofbeldi, eða annað. Sem dæmi má nefna stuðningsfulltrúa, þroskaþjálfa, hjúkrunarfræðinga, lækna, kennara, meðferðarfulltrúa, sjúkraliða, o.fl. Ég hef nánast eingöngu átt góð samskipti við lögreglu þegar þess hefur þurft, og eins við fulltrúa sýslumanns, og þetta fólk vinnur vel fyrir laununum sínum....