Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Laser eða bleksprautu?

í Vélbúnaður fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Það er yfirleitt meiri hávaði í bleksprautuprenturum og ef þú er bara að prenta út skjöl úr Word eða eitthvað þá mæli ég hiklaust með laser. Ég er þjónusturáðgjafi fyrir ákveðið forrit hér í bæ og hef prófaða sennilega yfir 1000 prentara og veit hvað ég syng :) En um leið og þú vilt hafa möguleikann á lit þá kemur náttla ekkert annað en bleksprauta til greina. Ég hef reyndar ekki enn fundið þann bleksprautuprentara sem ekki klessir einstakasinnum á blaðið. KVeðja, Icecat

Re: Laser eða bleksprautu?

í Vélbúnaður fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Þetta fer algjörlega eftir því í hvað þú ætlar að nota prentarann. Ertu t.d. með dosforrit, þarftu að prenta út í lit, þarftu að tengja hann yfir net ? Þeir sem hafa komið langbest út og ég bendi mínum viðskiptavinum á að kaupa sem þurfa svart/hvítan og eru ekki með DOS né net er t.d. OKIPage 8w, 600dpi laser eða HP Laser Jet 1000W laser með 10 bls. á mín, 600x1200dpi sem er aðeins ódýrari. HP er allavega efst á mínum lista í prentaramálum. Ef þú ert með DOS þá verður að vera paralell...

Re: Áríðandi tilkynning!!

í Netið fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Bwahahahahahah…þetta er með því betra sem ég hef lesið lengi ! *hlátur*hiksti*meirihlátur* IceCat

Re: Vandræðakisinn!

í Kettir fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Kúlumagi hennar mömmu kúkar í sængina hennar ef hún fer út úr bænum meira ein einn dag, klikkar aldrei ! Um daginn var mamma að passa litla strákinn minn sem þurfti mjög mikla athygli eðlilega enda aðeins 5 mánaða og þá varð Kúlumagi öfundsjúkur og kúkaði í sængina hjá mömmu. Þeir kunna sko að láta tilfinningar sínar í ljós þessir kettir ! IceCat

Re: Buy Scripts

í Half-Life fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Þessi síða býr til autoexec.cfg eftir þínu höfði fyrir þig. www.alias-binds.com IceCat

Re: Litavandræði

í Heimilið fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Ég er í raun sammála henni Ylfu hér að ofan með að mála bara einn vegg með fallegum lit og mæli með ljósum blá/fjólubláum vegg. Ljósrauður gæti verið mjög fallegur líka. Annars átti ég íbúð þar sem ég málaði stofuna svona sólgula og svo einn vegg dökkbláan (sænsku fánalitirnir :). Mér fannst það koma vel út sko. KVeðja, IceCat

Re: Kisurnar mínar

í Kettir fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Ertu búin að láta Kattholt vita ? Er hún eyrnamerkt ? Vonandi finnst hún sem fyrst ! IceCat

Re: Smá umræða um kisurnar okkar....

í Kettir fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Oh…þetta er mitt uppáhaldsumræðuefni, að lesa um annarra manna kisur og monta mig svo af mínum :) Hún Matthildur Mjása Erludóttir er svört og hvít læða sem varð 9 ára 13. maí síðastliðin. Hún hefur gengið með mér í gegnum súrt, sætt og nokkra kærasta síðan ég var unglingur og er mjög sérstakt samband á milli okkar, við skiljum hvor aðra sko. Hún er í smóking, semsagt svört með hvíta sokka, hvítan maga og hvítan blett á nefinu. Hún er mjög kelin þegar hana langar til og vefur öllum á...

Re: Skattur og lífeyrissjóður

í Fjármál og viðskipti fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Bara aðeins að leiðrétta þig, þú þarft að vera búin að fá um 80.000.- þegar farið er að taka af þér 6% skatt, semsagt allt eftir 80.000.- þá er tekin af þér 6% skattur. Allir sem vinna eru skyldugir til að borga í lífeyrissjóð, þegar þú borgar þín 4% er þinn vinnuveitandi að borga 6% á móti þér. Það sem tekið er af þér í lífeyrissjóð myndar ekki stofn til staðgreiðslu svo skatturinnn er eitthvað pínulítið minni (er þetta ekki annars rétt hjá mér, einhver ?). kveðja, Icecat

Re: Saga af ömmu.

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Oh en yndislegt ! Ég var svo heppin að eyða miklum tíma hjá móðurömmu og afa mínum þegar ég var lítil og ennþá finnst mér þau vera foreldrar mínir nr. 2. Margar af vinkonum mínum áttu eldri foreldra þar sem amman og afinn voru dáin eða mjög gömul og ég var alltaf öfunduð af ömmu og afa sem tóku að sér fleiri vinkonur mínar og reyndust þeim einnig vel. Svo er mamma mín svo mikil amma en hún eignaðist fyrsta barnabarnið síðasta vor (sonur minn sko) og ég fæ næstum tár í augun þegar þau eru...

Re: Saga Norska Skógarkattarins

í Kettir fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Ekki vissi ég að Norski skógarkötturinn væri svona seinþroska ! Annars eru þetta kettirnir sem ég skoða alltaf mest á kattasýningum og ef mig langaði til að borga fyrir kött þá myndi ég pottþétt fá mér NFO. Góð grein ! IceCat

Re: ólöglegir Windows XP notendur Verða brátt í vanda

í Windows fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Nákvæmlega, er búin að vera með Win2000 síðan fyrstu betuna og aldrei klikkað. Eru með eina WinXP vél hérna heima og hún sökkar ! IceCat

Re: Er tölvan hæg?

í Windows fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Ekkert smá sniðugt, var að prófa þetta og fékk þennan lista um að þetta væri að: • Check IE Restricted Sites zone • Check disabled devices • Adjust IE browser cache size Þetta er ekki alvarlegt og ég er búin að laga þetta allt, nokkuð gott :) IceCat

Re: Að sætta kisu og \

í Kettir fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Það er eins og ég segi, þetta tekur góðan tíma en virkar á endanum. Frábært að högninn sé búinn að “samþykkja” sambýlismann þinn :) IceCat

Re: Aldurskæling

í Heilsa fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Bwahahahaha…akkúrat !

Re: Heimilið og húsgögn

í Heimilið fyrir 23 árum, 7 mánuðum
1. Er ekki með eldhúsborð en innréttingin er upprunaleg síðan ca. 1974 og frekar framúrstefnuleg, td. með skúffur inni í skápum sem ég hef aldrei séð áður. 2. Stóran gulbrúnan þriggjasæta plusssófa með glasahöldurum og dúllum að neðan frá Góða hirðinum sem ég keypti þear ég var blönk, svaka flottur. Svo beige stóran hægindastól með plússi sem ég keypti notaðan á lítinn pening einnig þegar ég var blönk. Notað gamalt sófaborð sem átti að henda en ég hirti. 3. Stofan er samtals 45 fm. og...

Re: Aldurskæling

í Heilsa fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Það sem fólk getur verið klikkað svona í alvöru talað hehehe… Annars gæti ein skýring verið sú að kallinn hennar sé svo lélegur í bólinu. IceCat

Re: Snjólfur er týndur!! Mjálp!!

í Kettir fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Æ litla greyjið, var hann týndur í heila 4 daga ? Frábært að hann skuli hafa ratað heim. IceCat

Re: Tveir munaðarlausir guttar!

í Kettir fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Því miður er ég með hámarkið sem kallinn minn leyfir mér að vera með eða 2 ketti. Hafa þessir kettir verið úti eða inni ? IceCat

Re: tisan mín er veik...

í Kettir fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Jæja en gott. Vonandi hefur þetta bara verið einangrað þykkildi á tisulórunni þinni. Gangi ykkur vel ! IceCat

Re: Eru BNA menn Endanlega Gengnir af Göflunum?

í Deiglan fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Það var nákvæmlega það sem gerðist, Hitler réðst inn í Rússland sem hvorki honum né öðrum hefur tekist vegna landflæmis og kulda, Napóleon og fleiri reyndu þetta en gáfust upp. Þeir eru einmitt nýbúnir að finna um 40.000 beinagrindur af hermönnum Napóleons í fjöldagröf nálægt Vilnius og giskað er að kuldinn eða hermanaveiki hafi drepið þá. Hitler var að berjast á allt of mörgum stöðum í einu, hefði átt að láta Afríku og Rússland í friði, þá væri sennilega öðruvísi heimsmynd í dag. IceCat

Re: Umskurður sveinbarna

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 7 mánuðum
GlingGlo snilldargrein hjá þér ! En myndirnar af umskurninni…kræst ég gat varla horft á þær :/ Með bestu kveðju, IceCat

Re: Ótrúlegt!!

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Ég er að flestu leyti sammála þér en ég held að margir geti orðið ansi örvæntingarfullir þegar barnið þeirra grætur nánast allan sólarhringinn. Það gerðist með barn nr. 2 hjá mágkonu minni, hún grét fyrstu 8 mánuði ævi sinnar nánast stanzlaust. Hjónabandið var að liðast í sundur og foreldrarnir voru komnir “on the edge”. Þá benti einhver þeim á að fara með stelpuna í spjaldhryggsjöfnun (eða eitthvað svoleiðis nafn) hjá kírópraktor og þá kom í ljós að stelpan var sennilega með klemmda taug í...

Re: Kisubörnin kátu

í Kettir fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Innilegar hamingjuóskir með Hans (Snjólf) og frábært að þið fóruð í Kattholt. Ég er einmitt með einn árs gamlan fress og svo hefðarlæðu á 10. ári sem einmitt urraði á Grána fyrstu vikurnar. Hann er alltaf að stökkva á hana og veiða hana og hún er ekki mjög hrifin. Það mætti kalla þetta vopnaðan frið heima hjá mér, aftur á móti þá er Gráni og tíkin mín Doppa voða vinir, sofa saman og slást eins og hundur og köttur!!! Allavega þá er félagsskapur nauðsynlegur kisum ef þið eruð lítið heima þar...

Re: Lilli er týndur!!

í Kettir fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Vá þú ert ekkert smá heppin góða mín ! Kveðja, IceCat
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok