Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Hundauppeldi

í Hundar fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Jú reyndar á hún lítinn Pomma sem heitir Sara og það er ekki hundur sem ég myndi sparka í ef hann réðist á mig og ætlaði að bíta mig. En ég myndi ekki hika við að gera það við stóra hunda. IceCat

Re: Mjög erfið spurning!

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Ég get ekki tekið svona ákvörðun nema að ég stæði fram fyrir því að vera í þessum aðstæðum. Ég er ein af þeim “heppnu” sem eignaðist heilbrigt barn fyrir þremur mánuðum og ég get ekki huxað þá huxun til enda ef komið hefði í ljós t.d. í 12 viku að eitthvað væri að barninu. Reyndar kom hann fyrir tímann og varð fyrir súrefnisskorti í fæðingu og ég er nýbúin að fá svör um að engin heilasköddun hafi orðið eftir margar skoðanir. Ef svo hefði orðið hefði maður bara tekið því og reynt að sætta sig...

Re: Hundauppeldi

í Hundar fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Tíkin er hálfur hreinræktaður schafer og svo blanda sennilega af border/íslensk. Henni svipar samt lítið til schafer. Hún verður tveggja ára í september næstkomandi. Maðurinn minn er mest í því að kenna hundinum en hann hefur verið ráðalaus varðandi þetta atriði, ég ætla sýna honum þetta bréf þitt og athuga hvort hann getur ekki notað einhverja af þessum atriðum, takk ægilega vel fyrir. IceCat

Re: Hundauppeldi

í Hundar fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Þegar ég var búin að lesa fyrstu línurnar af bréfinu þá datt mér í hug að þetta væri kannski heima hjá mér. Hvernig er hundurinn á litinn og hvar ertu að bera út ? Við eigum við þetta vandamál að stríða varðandi hvað hundurinn okkar er heimaríkur og geltir á alla sem koma nálægt húsinu okkar. Því miður höfum við ekki tekið nógu vel á þessu frá byrjun en ég veit eiginlega ekki hvernig og hvað á að gera til að koma í veg fyrir svona hegðun. Ágætt væri ef einhver ætti til ráð handa mér. Öll...

Re: Hundauppeldi

í Hundar fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Þegar koma upp svona aðstæður þá er það eina rétta að sparka í hundinn, ég er með hund sjálf og myndi gera það sama ef ókunnugur hundur réðist á mig. Lenti í því á Geirsnefi að tvær boxer tíkur réðust á Doppu mína saman og ég sparkaði í tíkurnar til að stoppa þær svo þær myndu ekki lífláta hundinn minn sem er talsvert minni en þær. Spurði manninn minn að þessu hvað hann myndi gera í þessarri aðstæðu og hann var alveg sammála mér. Kveðja, IceCat

Re: Gáfaður köttur !

í Kettir fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Hehehe…ég er með bæði hund og ketti og það fer ekkert milli mála hver ræður og hver ber virðingu fyrir hverjum :) Icecat

Re: Fuglaveiðar!

í Kettir fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Sæl, ég er í sömu stöðu og þú með þessa litlu fugla. Er með ársgamalt fress sem á það til að koma með þá inn og leggja þá við hliðina á rúminu mínu eða við hliðina á kattamatnum. Er líka með 9 ára læðu sem er algjör feitabolla en henni gengur ekki eins vel og þínum ketti, hefur aldrei náð í fugla og bara einu sinni í mús sem hlýtur að hafa verið orðin gömul og lúin úr því hún lét ná sér. Greinilega að Siggi er mikill veiðiköttur úr því hann náði í tjald ! Kveðja, IceCat

Re: Fuglaveiðar!

í Kettir fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Engu máli skiptir með bjöllurnar, ég er með fress sem er með 3 bjöllur hangandi hver niður af annari og hann veiðir fugla samt ekkert minna en áður. IceCat

Re: Tína

í Hundar fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Ég samhryggist þér en finnst að það hefði átt að leyfa þér að kveðja hana. Samúðarkveðjur, IceCat

Re: Kynning

í Kettir fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Nafn: Erla Aldur: 27 Kettir: Matthildur 9 ára svart/hvít “Icelandic Domestic Shorthair” og Gráni 1 árs gráyrjóttur af sama kyni og Matthildur I.

Re: Kittý fundin - orðin klikk!

í Kettir fyrir 23 árum, 10 mánuðum
“Einhverstaðar las ég að það væri ríkjandi í eðli kisu mömmu að losa sig frá afkvæmunum þegar þau eldast og ef þau eru á heimilinu, yfirgefur hún heimilið bara sjálf. Þetta er ríkara í sumum köttum en öðrum. Því er nú verr og miður…. ” Þetta er mjög sennilega það sem er að gerast, flestar læður vilja að afkvæmin fari að heiman þegar þau fullorðnast og gera t.d. ljónin þetta líka. Ef hún lagast ekkert á nokkrum dögum þá er spurning hvort þú gætir komið afkvæmum hennar í pössun til að prófa...

Re: Kynning part III

í Gæludýr fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Nafn: Erla Aldur: 27 Dýr: Hundurinn Doppa 2 ára, læðan Matthildur 9 ára, fressið Gráni 1 árs ásamt 240l fiskabúri með hinum ýmsu “community” tegundum.

Re: Asískar konur á Íslandi

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Er ekki alltaf sammála þér en þetta er góð grein um þessa rannsókn sem ég hef aldrei heyrt á minnst áður og kann þér þakkir fyrir að birta hana hér. Hún varpar ljósi á ýmislegt sem ég vissi ekki fyrir. IceCat

Re: DOES HEAVEN HAVE A PHONE NUMBER

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Ég hef heyrt þetta ljóð áður og það er alveg hjartaskerandi. Maðurinn minn missti mömmu sína úr krabbameini þegar hann var 10 ára og það var svo mikið áfall að hann man ekki nema eina eða tvær minningar fyrir 10 ára aldur. Síðan þá hef ég þakkað betur fyrir mína mömmu þó okkur hafi ekki alltaf komið vel saman. IceCat

Re: Great Dane!!!

í Hundar fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Sorry, verð alltaf svo fúl þegar sett er út á CS eða HL, var kannski aðeins of fljót að svara þér. No hard feelings. Peace IceCat

Re: Great Dane!!!

í Hundar fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Hehehe…já, þetta verður að fíkn, við spilum Counter-strike sem er byggt á Half-life hugmyndinni og við erum með tölvur já. Við erum með Windows 2000 Pro Server og ADSL á honum og fasta IP tölu, svo er ég með vél, kallinn og svo eigum við eina auka sem er í stofunni og er notuð venjulega sem sjónvarpsvél fyrir DVD, myndir og tónlist. Svo horfum við á sjónvarpið í gegnum hana einnig, hún er með TV out sjónvarpskorti. Þá virkar sjónvarpið bara eins og skjár. Svo eru tveir vinir okkar með...

Re: Great Dane!!!

í Hundar fyrir 23 árum, 10 mánuðum
EstHerP Ég hef fylgst með skrifum þínum og líst yfirleitt vel á þau en mér finnst hálfgerð móðgun felast í þessum orðum þínum “…nokkur heimili sem hafa nörd sem spilar Half-Life eða Quake…” Ég er sjálf með hund, tvo ketti, 240l. fiskabúr, eiginmann og 8 vikna barn og ég spila Half-life og erum við með virkan server og 6 vélar hérna heima svo ekki álykta að allir sem spila tölvuleiki séu nördar. Mér finnst reyndar “nördalegra” að taka þátt í svona umræðum og senda 30+ pósta á dag eða...

Re: Háskaferð á túndrunni

í Half-Life fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Frábær saga, mjög vel gerð ! Sammála þér með AS möppin, þau eru vanmetin og þá sérstaklega as_tundra sem er snilldar borð. *mal* IceCat

Re: Ofur Tígrisdýrið hann Pjakkur

í Kettir fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Sæll Nefi, hann Pjakkur þinn hljómar afskaplega fallegur. Mín reynsla af læðum og fressum er sú að læðurnar eru miklu aggressívari og varari um sig. Þú kemur með þessa ókunnugu læðu inn á heimili sem angar af öðrum ketti og því lætur hún svona. Semsagt hún fer í varnarstöðu og “ógnar” þínum ketti og “segir” honum að halda sig í fjarlægð. Svona má segja að læðan hafi sýnt hræðslu sína. Pjakkur verður hissa og undrandi á þessum látum í henni og dregur sig til baka og það tekur hann smá tíma...

Re: 10 gangan 12. Júní

í Hundar fyrir 23 árum, 10 mánuðum
Ohh…komst ekki í hundagönguna þar sem helltist yfir mig einhver flensa á þriðjudaginn og hef ég legið með 39 stiga hita, kvef og hósta síðan þá. Ég og Doppa komum bara næst I.

Re: Loksins að fólk sér rétta hlið

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 11 mánuðum
Ég er algjörlega sammála því sem stendur þarna í greininni og er ég þó kvk. Mér finnst áberandi hvað margar konur eru á móti þessum stöðum og hefur fundist oft bera á minnimáttakennd hjá sumum þeirra vegna þess að dansararnir eru í flestum tilfellum ungar, grannar og fallegar. Maðurinn minn hefur nokkrum sinnum farið með vinum sínum á nektarstaði og hef ég farið með vinkonum mínum að sjá karlstripp einnig nokkrum sinnum. Ég myndi gera athugasemdir ef mikið af peningum yrði eytt, nákvæmlega...

Re: 10 gangan 12. Júní

í Hundar fyrir 23 árum, 11 mánuðum
Gæti vel huxað mér að mæta núna, seinast var ég svo ólétt að ég gat ekkert labbað en núna er ég orðin bráðhress eftir að reyndar lenda í bráðakeisara og allasammen, alveg merkilegt hvað mar er fljótur að jafna sig eftir svona stórar uppskurð. Doppa hefur verið hálf afskipt svo að þetta væri frábært fyrir hana, vona bara að Isolde mæti með Pooh..þær voru svo miklar vinkonur seinast. Kveðja, IceCat

Re: Gelding

í Hundar fyrir 23 árum, 11 mánuðum
Ég á reyndar tík sem gegnir allt öðru máli varðandi greddu en á marga vini sem eiga karlhunda. Ef ekki á að nota hundinn til undaneldis eða í eitthvert hlutverk (varðstaða, veiði) þá er mjög gott að gelda hann þeas ef hann er t.d. að pissa út um allt. Ég verð fyrir miklu ónæði frá nágrannahundum mínum þegar tíkin mín fer á lóðarí og þarf það ekki einu sinni til. Ég fæ þrjá hunda reglulega í heimsókn sem allir eru ógeldir og hef ég t.d. gripið einn sem komin var hálfa leið inn um...

Re: Góð ráð fyrir verðandi kattaeigendur : )

í Kettir fyrir 23 árum, 11 mánuðum
Frábær grein, vildi að allir sem fá sér kött í fyrsta skiptið myndu fara eftir þessu, þá þyrftum við sennilega ekki á Kattholti að halda. Kveðja, IceCat

Re: Unglingar í dag, er ofbeldið og virðingarleysið...

í Deiglan fyrir 23 árum, 11 mánuðum
Vá…róaðu þig niður ! Mér finnst þessi grein þín léleg og virðist vera skrifuð í reiði en það sem greip mig eru ummælin um skátana. “SKÁTARNIR ERU VERSTU SAMTÖK SEM FYRIR FINNAST. ÞAETTA ER FRÁBÆR HUGMYND EN *EN* MARGIR VINIR MÍNIR BYRJUÐU AÐ REYKJA OG DREKKA Í SKÁTUNUM, OG ÁTTU SÍN FYRSTU KYNNIAF HASSI ÞAR EINNIG.” Þvílík alhæfing, ég er skáti og hef verið það í næstum 20 ár og þetta er alls ekki rétt hjá þér. Auðvitað eru svartir sauðir í skátunum eins og alls staðar annars staðar en að...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok