Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Tápa gamla

í Hundar fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Þetta er hræðilegt að heyra en hvað var í leginu þá ? Eða var það bara svona bólgið eða hvað var málið ? Gott að hún fór upp á spítala fljótt ! IceCat

Re: Ásinn Baldur

í Sagnfræði fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég gleymdi að nefna eitt að þetta áhuga mál hefur verið frekar dauft undanfarið og átti greinin upphaflega að vera um greftrunarsiði þar sem bátsetningar koma við sögu en ég leiddist út í eitthvað allt annað :) IceCat

Re: Ásinn Baldur

í Sagnfræði fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Eins og ég segi að ofan þá eru ekki til miklar heimildir um Baldur. Baldur –> Hvíti-Kristur eru seinni tíma hugmyndir og hef ég ekkert huxað um það en þessi hugmynd hljómar ekkert illa. Váli sem var sonur Óðins og bróðir Baldurs drap Höð sólarhringsgamall og segir sagan að hann hafi ekki verið búin að kemba hár sitt ne þvegið hendur sínar og svo leggur hann Höð á líkbálið (sennilega líkbál Baldurs og Nönnu ???). IceCat

Re: Ásinn Baldur

í Sagnfræði fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Kíktu á fyrsta svarið mitt, þar útskýri ég af hverju ég sagði að Baldur hefði átt Draupni. IceCat

Re: Ásinn Baldur

í Sagnfræði fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Eins og ég segi í svari til Þorsteins þá stendur orðrétt í Snorra-Eddu að þetta hafi verið vöndur af mistilteini. Svo má náttla athuga að nokkurs misræmis gætir í sögunni af dauða Baldurs á milli Eddu Snorra og Saxo Grammaticus. Einnig verður að athuga að Snorri vissi nú ekki mikið um þessa plöntu sem mistilteinninn er. Það var Baldur sjálfur sem hafði vonda drauma og því fór Óðinn og vakti upp völvuna til að sjá inn í framtíðina og þess vegna lét Frigg allar verur heims sverja það að gera...

Re: Ásinn Baldur

í Sagnfræði fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Óðinn átti Sleipni hinn áttfætta og skemmtileg er sagan af því hvernig hann varð til. Allavega þá segir sagan að Sleipnir hafi verið afkvæmi Loka í merargervi og “ofurhests” sem hinn “niðurlægði” Borgarsmiður átti. IceCat

Re: Ásinn Baldur

í Sagnfræði fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Var hann endalaust góður og vinsæll ? Eins og ég segi að ofan þá hafa engar heimildir varðveist um hann og ekki virðist hann hafa verið dýrkaður af mönnum. Óðinn, Þór og Freyr voru í því hlutverki. IceCat

Re: Ásinn Baldur

í Sagnfræði fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Það er rétt hjá þér að Óðinn átti hringinn Draupni en þegar lík Baldurs var lagt á bátinn þá lagði Óðinn Draupni hjá honum. Þegar Hermóður hitti Baldur í Helju þá gaf Baldur Hermóði hringinn aftur til Óðins. Snorri segir svo frá dauða Baldurs að mistilteinninn (viðarteinungur) hafi vaxið fyrir vestan Valhöll og fór Loki og sleit upp mistilteininn. Loki segir orðrétt við Höð: “Skjót að honum vendi þessum” Síðan segir orðrétt: “Höður tók mistiltein og skaut að Baldri að tilvísun Loka. Flaug...

Re: Hvaða fóðri mælið þið með?

í Hundar fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Sæll, ég hef átt við sama hárlosvandamál að stríða og þú og hundurinn minn er talsvert stutthærðari en Bangsi. Hún hefur verið á Royal Canine frekar lengi en mér finnst hárlosið ekkert hafa minnkað svo ég er nýbúin að skipta yfir í Nurture sem fæst í Dýrahaldi í Mosfellsbæ. Þegar þú kaupir dýrara fóður þá borða hundarnir yfirleitt talsvert minna þar sem meiri næring og orka er í því fóðri. Einnig þarftu ekkert að gefa honum dósamat, þurrfóður er alveg nóg. Sniðugt væri að gefa honum dósamat...

Re: Kettlingur fæddur

í Kettir fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Hehe…laugardagurinn var 12. október en sunnudagurinn 13. okt. IceCat

Re: Húsið mitt

í Heimilið fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Smart hús og góð leiga ! Ég bý í 280fm húsi sem ég hálf skammast mín fyrir því það er svo ljótt. Það er byggt í kringum 1975 og er bara kassi í L. Ekkert nema gluggar og því er alltaf kalt í því, svo er flatt þak og það hefur auðvitað lekið þannig að nú er verið að skipta um þakk og setja hallandi, kostar ekkert smá mikið sigh. Icecat

Re: Kettlingur fæddur

í Kettir fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Til hamingju með að vera orðin “pabbi” :) Frábært að allt gekk vel, ætli hann verði ekki bara einn litla skinnið. Bestu kveðjur, IceCat

Re: Hrfí og Dalsmynni.

í Hundar fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Nei, Ásta í Gallerí Voff er ekki sama Ástan og sú í Dalsmynni, alls ekki rugla þeim saman. IceCat

Re: Besti vinurinn

í Hundar fyrir 23 árum, 7 mánuðum
En frábær grein ! Þið Týra hafið verið aldeilis heppnar að finna hvor aðra. Gangi þér sem best IceCat

Re: Embla

í Kettir fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Hvor gefur henni að borða ? Ef ekki þú þá myndi ég eingöngu fara að gefa henni að borða því leiðin að hjarta kattarins liggur m.a. gegnum magann :) Nú þekki ég ekki nógu vel hvernig kettir haga sér í kringum börn en ef sonur þinn er ekki að meiða hana þá finnst mér þetta voða skrítið. Þú ættir að prófa að leggjast eða sitja hjá uppáhaldsstaðnum hennar og klappa henni mjög rólega og lygna augunum því þannig tjá kettir ást sína þeas með augunum. Gangi þér vel, IceCat

Re: Hvað hræðist kötturinn þinn ?

í Kettir fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Það er víst mjög algengt með alhvíta ketti að þeir séu heyrnarlausir, þetta hefur eitthvað með genin að gera. Góða saga :) IceCat

Re: óboðinn gestur...

í Kettir fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Vá, það er ekkert smá sem heimilið þitt er vinsælt ! Ég hef einu sinni síðustu tvö árin fengið kött inn um nótt þegar ég var sofandi og það varð náttla allt vitlaust. Hundurinn minn og báðir kettirnir ætluðu í aðkomuköttinn og ég held ég hafi aldrei séð jafn hræddan kött. Ég náði að koma honum út án slagsmála en það var mikið öskrað og hvæst á greyjið. Hef heldur ekki séð hann aftur. Ég er alltaf með allt lokað á næturnar og kettina inni núna en verð að skilja eftir opið á daginn. Mitt...

Re: Fuglaveiðar

í Kettir fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Ég er með THE veiðikött sem ég skil ekki hvernig hann getur veitt fugla því hann getur ekki huxað því þá klingir í honum. Ég er með 4 stórar bjöllur á honum og það heyrist í honum langar leiðir. Samt er hann alltaf að koma inn með fugla, ég er samt ekki frá því að það hafi eitthvað minnkað síðan ég bætti við bjöllurnar. Við þessu má búast þegar verið er með útikött, því miður, þetta eðli verður ekki barið niður. Byrjaðu á því að kaupa á hann alminnilegar bjöllur ca. 4 stk í dýrabúð og reyndu...

Re: Hvað hræðist kötturinn þinn ?

í Kettir fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Já vá ég gleymdi náttla flugeldum. Ég er vön að gefa þeim Rescue Remedy sem er róandi náttúrulyf fyrir dýr frá USA, þau fá nokkra dropa og sofa af sér gamlárskvöld. Annars væri kisurnar mínar snarvitlausar ! Icecat

Re: að borga heim?????

í Skóli fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Þegar ég var að vinna á sumrin þá borgaði ég alltaf um 15.000 þús. heim en foreldrar mínir héldu mér alveg uppi á veturnar. Þú getur bent foreldrum þínum á að þú hafir einfaldlega ekki efni á þessu og þú verðir þá bara að hætta í skóla og fara að vinna aftur. Vilja þau ekki að þú sért í skóla ? Svo er það náttla að í staðinn fyrir að borga heim þú getur þú tekið að þér einhver ákveðin húsverk, vaska upp, þvo, skúra, skipta á rúmunum eða eitthvað. IceCat

Re: Hvað hræðist kötturinn þinn ?

í Kettir fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Mjög leiðinlegt af pabba þínum ! Fannst honum þetta fyndið eða skemmtilegt ? Best er að vera ekki að koma með ketti inn til hans heldur baða bíða þar til þú flytur út eins og þú segir :/ Kattakveðja, IceCat

Re: Er kötturinn heilbrigður???

í Kettir fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Sæl Hallat, þetta er virkilega góð grein og góð þýðing hjá þér. En gott væri ef þú myndir geta þess hvaðan þessar upplýsingar koma, semsagt geta um heimildir og hvort þetta sé lauslega þýtt eða farið nákvæmlega eftir enska tekstanum. Góðar stundir, IceCat

Re: Laser eða bleksprautu?

í Vélbúnaður fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Heheheh…nákvæmlega :) Einhver minntist á Brother prentara og gleymdi ég þeim í fyrra svari mínu. Þegar ég hef verið spurð um ódýra laserprentara þar sem ekki er verið að nota DOS þá hef ég oft bent á Brother, þeir eru seldir í Pennanum. Eins og einhver segir hér að ofan þá er ekki hægt að jafna saman gæðum á útprentun á svart/hvítum greinum úr laser og bleksprautu. Það tekur ekki laserprentara langan tíma að hita sig upp, allavega hef ég ekki lent í því að geta ekki beðið 4 sek. eftir...

Re: Dáinn

í Hundar fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Samúðarkveðjur ! IceCat

Re: Laser eða bleksprautu?

í Vélbúnaður fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Fyrirgefðu en mér finnst þetta efni í ágæta grein og góðar umræður eru að skapast varðandi prentara. Hefði þetta verið stutt spurning þá hefði verið hægt að senda þetta á korkinn en þetta er fín grein. IceCat Admin á hugi.is/ketti
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok