Kisurnar mínar eru fjórar. Ein er týnd ,hún er frekar lítil og góð, hún er skógarkattablanda og er hvít með svötum og bröndóttum flekkum, hún heitir BSA(Bísa) og er æðisleg hún er 1 árs og er hennar sárt saknað, ef að einhver hefur séð hana sendið mér mail á fjola@hollywood.com. En kisurnar mínar heita Ferdinand(7ára), sem er alveg risastór og krúttlegur, ég var einu sinni meira að segja spurð hvort að ég hefði verið að fá mér hund, hann er svartur og hvítur, Fiðla(2 ára) sem að er kolsvört og rosalega skapvond og litli skógarkisin minn hann Harley(15 vikna) sem að ég fékk hjá Stanleys kisum en hann er svatur smoke og er alveg meiriháttar skemmtilegur.