ÞAÐ VAR LAGLEGT!!! Gaman að sjá umræðu um þessa gleymdu klassík… Frændi minn skellti þessari plötu á fóninn fyrir mig þegar ég var c.a. 8 ára gamall og ég varð alveg skíthræddur. Þessi skæru, brjálæðislegu syntha-hljóð og bara allt þetta chaos… ég fraus hreinlega. Dagana eftir gat ég hugsað um lítið annað, dreymdi innrásir frá Mars o.s.frv… samt gat ég ekki slitið mig frá henni. Þetta er ein af þeim plötum sem hafa haft mest áhrif á mig, örugglega komin tíu ár síðan ég komst síðast í eintak...