JAN MAYEN, LOKBRÁ OG TRISTIAN á Grand Rokk, 15. nóv ‘03 Það er hreint með ólíkindum hvað meðlimir hljómsveitarinnar Jan Mayen hafa verið aktívir síðustu daga. Sveitin er nýbúin að senda frá sér frumburð sinn; Jan Mayen EP og hefur fylgt því eftir með myndbandagerð, viðtali í Fréttablaðinu og á X-inu og Rás 2, auk þess að koma fram í Djúpu lauginni á Skjá einum, allt á einni viku. Þetta sannkallaða fjölmiðlafár hefur greinilega virkað, því það náði a.m.k. að fanga athygli mína. Því sá ég mig...