Ég er hlynntur þessari hugmynd og skil tilganginn en mér finnst rannsóknarvinna Björns meira en lítið vafasöm, að hringja í fíkla og kreysta út úr þeim einhver nöfn. Það segir sig sjálft að þeir eru líklegastir til að nefna fólk sem þeim er illa við en stafar engin ógn af, þ.e. gaurinn sem skuldar þeim 1000 kall eða stal mallinu síðustu helgi, frekar en díler eða rukkara sem hendir þér í skottið, keyrir með þig uppí Heiðmörk, klæðir þig úr öllum fötunum, lúber þig og skilur þig þar eftir...