Ekki er hún nú glæsileg umræðan sem þessi vesalings maður er búinn að koma af stað hérna í þjóðfélaginu, fyrir þá sem ekki vita um hvað ég er að tala ættu að kíkja á heimsíðuna sem hann var að setja upp í gær. Þar er hann búinn að setja upp einhvers konar lista sem á að vera einhverskonar leiðarvísir um undirheima Reykjvíkur, sorp jarðar og yfirhöfuð stórhættulegt fólk sem ber að varast.

Það er svosem allt í lagi ef að hann finnur hjá sér einhverjar þörf fyrir að gera þetta og þykist vera að launa einhverjum lambið gráa með þessum aðgerðum, en þetta er bara þrátt fyrir ekki svo afleita viðleitni allt annar hlutur. Fyrir það fyrsta er þetta alveg hræðilega upp sett hjá honum, hann virðist ekki geta komið frá sér skiljanlegri setningu og listinn sem hann er með þarna er náttúrlega bara glæpur og ekkert annað, ekki bara gagnvart einni manneskju heldur fjölmörgum manneskjum.

Það er ekki frá því að maður fái það á tilfinninguna að hann sé hálf þroskaheftur og geri sér ekki grein fyrir gjörðum sínum, hann er þarna með nöfn á fyrrverandi fíklum, fólki sem er að reyna komi lífi sínu á réttan kjöl með miklu erfiði og sumir sem eru jafnvel alveg búnir að snúa við blaðinu (hann tekur það meira segja fram hjá einu nafninu, maður spyr sig þá hver tilgangurinn sé með nafnabirtingunni)

En þetta er alls ekki það versta, hann birtir þarna nöfn á fólki án þess að gera nein sérstök skil á þeim, eins og t.d. Haukur Guðmundsson - það eru 131 íslendingur sem ber þetta nafn, gerir hann sér enga grein fyrir því að við lifum í litlu þjóðfélagi þar sem Gróa er á hverju leyti? Það voru fleiri svona nöfn og allt í allt taldist mér til að á þessum lista gæti hann verið að tala um rúmlega 250 manns!!! Svo er fólk að hrósa honum fyrir gott framtak, í hvurslags þjóðfélagi búum við eiginlega?

Svo fór ég að skoða commentin og ekki tók neitt skárra við þar, þar keppast menn um að hrósa honum fyrir einhverjar stórkostlegustu og grófustu ærumeiðingar seinna ára á Íslandi, og ef einhverjir fóru að mótmæla þessum lista þá voru þeir bara stimplaðir dópistar líka, gerir fólk sér ekkert grein fyrir því að það gilda sömu reglur um heimsíður eins og um prentmiðla, getiði ímyndað ykkur ef svona listi yrði birtur í Morgunblaðinu??

En mér varð allavega ljóst af því skoða þessa síðu að stór hluti íslendinga eru tilbúnir að dæma fólk án dóms og laga, jafnvel voru margir sem fannst hreinlega að það ætti að gefa skotleyfi á þetta fólk eins og ekkert væri sjálfsagðara. Það tók því sem heilögum sannleik að allt þetta fólk sem þarna var hafi verið hryllilegt fólk og bæði það og fjölskyldur þeirra væru búin að fyrirgera rétti sínum til einkalífs vegna mistaka fyrr á lífsleiðinni, finnst mér þá ansi illa komið fyrir samborgurum mínum ef þeim finnst þesslags hugsunarháttur ásættanlegur.

Svo ég tali nú aðeins um það sem málið snýst um, listann sjálfan þá er hann nú ekki uppá marga fiska, eina fólkið sem eitthvað vit er í þarna eru menn sem er búið að fjalla um í Sönnum íslenskum sakamálum, maður sem var daglega á síðum DV og svo einn sem rak frægan dópista skemmtistað fyrir nokkrum misserum. Aðrir á þessum lista eru annaðhvort einhverjir smásalar, fíklar eða fólk sem er búið að snúa sér til betri vegar, þetta fólk er Björn búinn að dæma án dóms og laga og fengið til liðs við sig fullt af skilningslausum ofvitum sem eru helsýktir af þeirri forræðishyggju sem allt vill drepa hér á landi og skiptir þá engu hversu mörgum þarf að fórna til þess og ennþá minna máli virðist skipta hvort menn séu saklausir.

Og hvað var það svo sem startaði þessu? Dópsalinn sonur hans Björns var búinn að koma sér í miklar skuldir við þá sem útveguðu honum efni til að selja, hann hefur sjálfsagt selt þau og eytt peningnum jafn óðum eða notað þetta allt sjálfur, á þessu þarf hann ekki að bera neina ábyrgð heldur er þetta allt einhverjum öðrum að kenna, hann vill fá dótið sitt aftur sem var tekið frá honum. Skrýtið að Björn skuli ekki fara skipta sér af málum sonar síns fyrr en það fór að bitna á honum sjálfum, var honum kannski alveg sama þangað til.

Nú eru sjálfsagt einhverjir sem halda það að ég sé á þessum lista eða einhver nákominn mér en það er ekki málið, ég hinsvegar ætti alveg eins heima á þessum lista miðað við það sem menn þurfa að vera búnir að “afreka” til að komast þarna inn, og á það við um hundruðir og þúsundir annara íslendinga, ég er hinsvegar ekki vondur maður, geri ekki flugu mein og hef aldrei selt neinum eiturlyf, ekki nema þá með því að kaupa og deila með vinum mínum hérna í gamla daga. Ég er núna í góðu starfi og gengur allt í haginn, það er spurning hvort að ég væri í þeirri stöðu í dag ef ég hefði verið settur á einhvern svona lista fyrir 5 árum síðan? En eins og áður hefur komið fram þá virðist einstaklingurinn ekki skipta máli hér, ef að einhver á harma að hefna vegna eiturlyfja þá finnst meirihluta þjóðarinnar í lagi að rústa mannorði og æru fjölda manna sem ekki hafa gert nokkrum manni neitt.

Ég vona innilega að þetta sé ekki rétt og að þessi hegðun sé ekki ásættanleg í okkar þjóðfélagi, menn hengdu menn án dóms og laga í villta vestrinu og brenndu fólk á báli á miðöldum, ég hélt alltaf að við værum vaxin uppúr svona hegðun og mér þætti leiðinlegt ef það kemur í ljós að það er ekki rétt…….

Annars má svo bæta því við að Björn er nú enginn engill, stórskuldugur útum allan bæ og borgar sjálfur engar skuldir, spurning hvort að hann vill ekki setja löglega lánadrottna sína á þennan lista líka?