Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

gummibill
gummibill Notandi síðan fyrir 19 árum, 5 mánuðum 34 ára karlmaður
436 stig
Ég heiti ekki gummi (og ekki heldur Guðmundur)…

Atburðaás. kaflar 7-9 (2 álit)

í Smásögur fyrir 18 árum, 1 mánuði
hér koma svo lokakaflarnir í þessari smásögu. Þjófarnir 21. júlí 2006, kl. 14:02 Sá dökkhærði dettur hægt en samt svo hratt. Við erum ekki saman lengur. Nú liggur sá dökkhærði á gólfinu á kjallaranum og maðurinn, sem var með konuna á bakinu, sér okkur greinilega. Einsog í feluleik þegar einhver brýtur grein og allt fattast. Hann sér okkur greinalega. Nú starir hann á okkur einsog augu veiðimanns úr myrkrinu. Á slíkan stað þorir sumarsólin sjálf ekki að banka að dyrum. Hér liggur dauðinn um...

Atburðaás. kaflar 4-6 (0 álit)

í Smásögur fyrir 18 árum, 1 mánuði
hérna koma kaflar 4-6 og þá fer að koma aðeins meira samhengi í söguna Þjófarnir 21. júlí 2006, kl. 13:18 „Ertu til?“ segir dökkhærði maðurinn. „já“ svarar sá ljóshærði á móti. Við göngum inn í bankann og tökum upp haglabyssurnar okkar. Af einhverri ástæðu er þetta mjög góð tilfinning. að ganga inn einhversstaðar vitandi að við höfum fullkomin völd. Að við séum guð. Við höfum pælt svolítið í því. Ef allir eru hræddir við okkur og við höfum fullkomin völd, erum við þá ekki guð? Bankinn er...

Atburðaás. kafli 1-3 (2 álit)

í Smásögur fyrir 18 árum, 1 mánuði
hér eru fyrstu þrír kaflarnir úr smá sögunni Atburðarás. kaflarnir eru í heildina níu og ég hyggst senda inn þrjá í einu. þetta er svolítið blóðug saga svo ekki láta ykkur bregða. p.s endilega horfið á heitin á köflunum og á tímasetningarnar Atburðaás Gamla konan 21. júlí 2006, kl. 13:04 Já, ég held ég geri það bara. Ég sit inn í baðherberginu mín og skoða pítsahnífinn í hönd minni. Af hverju ætli allir noti rakvélarblöð til þess að drepa sig? Ég skil það ekki. sjálf á ég náttúrulega engin...

Tóm hugsun (1 álit)

í Smásögur fyrir 18 árum, 1 mánuði
Tannburstarnir sofa í litlu glasi á grænu hillunni og dreyma sæla drauma á meðan, við hlið þeirra, situr hálfkláruð geltúba; krumpuð, en hamingjusöm. Glær vatnsdropi lekur hægt niður gulan baðherbergisveggin og speglar sig í sjálfum sér. Ég sé spegilmynd hans í speglinum sem hangir á móti mér. Ég spegla mig í speglinum og horfi með furðu á holuna á enninu á mér. Það er fimmtudagsnótt og ég hef uppgötvað að það er hola gat í enninu á mér. Ég vaknaði í nótt við tvo fugla að syngja fyrir utan...

Með æði fyrir S (15 álit)

í Smásögur fyrir 18 árum, 1 mánuði
viðvörun: þessi saga er ekki fyrir þá viðkvæmustu þó svo að þetta sé alls engin rosalegur viðbjóður _________________________ A, B, C… Nei A, Á, B, D, E, F… nenni þessu ekki. Ég hef aldrei kunnað stafrófið og held ég muni ekkert læra það í bráð. Íslenska er fremur leiðinlegt tungumál. Það er einsog fólk tali með tungum. Það er ekki fólkið sem talar heldur eru það tungurnar. Þegar fólk á í samræðum fléttast tungurnar saman og orðin komast ekki út. Íslenska er einsog viðbjóðslegur koss, það...

Egill Vitfari (6 álit)

í Smásögur fyrir 18 árum, 3 mánuðum
Það var einn dag sem fimm ung börn léku sér saman er þeim var boðið að ganga í matvörubúð og leika sér þar sem áttungur eins barnsins sem sá um að gæta þeirra átti. Þau fóru í feluleik og það var ungur drengur að nafninu Egill sem var hann. Í leik þeim er þau spiluðu voru reglur eftirfarandi: allir nema einn skulu fela sjálfa sig og svo skal sá eini valinn leita og sá er seinastur finnst vinnur. Freyja, Óskar, eða Óski eins og hann var nefndur af ungmennunum, Hugi og Heiðrún földu sig hver á...

Röðin (6 álit)

í Smásögur fyrir 18 árum, 3 mánuðum
Albert gekk inn í röðina og vonaði að þetta tæki skjótt af. Þetta var ein lengsta röð sem albert hafði nokkurn tímann séð. Alla vega ekki í þessum litla bæ.hann hafði það ekki í sér að svindla sér framar svo hann fór bara aftast. Fyrir framan hann var maður í fjólublárri peysu og í rauðum buxum. Hann var með sítt skítugt hár sem náði langt niður á bak. Smá stund leið og albert beið. Þegar hann var búinn að færast rúmlega tvö skref áfram þá snéri maðurinn í fjólubláu peysunni sér við “nei...

B+Miðinn-Mn (7 álit)

í Smásögur fyrir 18 árum, 4 mánuðum
Jóhannes mokaði og mokaði. Hann gat nú auðveldlega séð hvernig moldin var og hvernig væri því best að meðhöndla hana. Í dag var hún alveg hreint upp á sitt besta, hún var dálítið rök en samt ekki nógu rök til þess að ég að kalla hana drullu. Þetta var mold að skapi Jóhannesar því þetta var sko mold sem hann gat mokað í hvelli og þá væri hann bara búinn með dagsverk. Hann gekk í verkið og byrjaði að moka. Hann tók upp nýju skófluna sína, stakk henni í jörðina og andvarpaði. Á skóflunni stóð...

nokkur ljóð (0 álit)

í Ljóð fyrir 18 árum, 4 mánuðum
ég hef áttað mig á því hvað það er mikið rugl eitthvað að senda hingað inn bara eitt ljóð í einu svo ég ákvað að senda hérna inn nokkur Liljan þú ert falleg eins og liljan sem vaggar svo mjúklega í vindinum eins og vagga lítils barns sem er elskað af móður eins mikið og ég elska þig Stjakinn Stjakinn á hillunni stendur Strýkur raun svo blítt. Hlýjar tómar hendur Hendast um hárið sítt. Varningur snertir varir, Viljinn fýkur frá. Samviskan núna starir, Skínandi eigi að sjá. Talar svo stjakinn...

í þetta skipti munuð þið stikna (13 álit)

í Smásögur fyrir 18 árum, 4 mánuðum
ég hef mikið verið að skrifa handrit á seinustu árum og reyndar byrjaði ég á því langt áður en ég fór að skrifa sögur… en ég var bara að pæla í því að vera frumlegur og senda inn eitt af þessum handritum og sjá svo hvernig fólk tekur í það… þegar ég skrifa mín handrit þá skrifa ég þau þannig að ég býst aldrei við því að það muni verða gerð mynd úr þessu svo ég skrifa þetta meira mér til skemmtunar… það myndu einhverjir kannski segja að þetta áhugamál sé fyrir sögur en ekki handrit en mér...

Anna og Hreinn (1 álit)

í Ljóð fyrir 18 árum, 4 mánuðum
Vitundin fór beint á veggin, Vissi leiðir miklar margar. Stekkur, yfirgefur stegginn. Stendur hjá en eigi bjargar. Karlin nú í ofsa kreppu Krípur biður kyssir fætur. Stúlkan segir, eigi sleppur, Slitnar eru slíkar rætur. Valið var að vera ei vinir, Vonin farinn út á klakann. Líkamsvöðvar allir linir, Liggja þau og elska makann. Grafinn ein og grafinn einn, Gengu í skýjahimnaríki. Konan Anna og kallin Hreinn Kyssast nú af ástarsýki.

Kaffið (19 álit)

í Smásögur fyrir 18 árum, 4 mánuðum
Kaffið Ég stóð upp og fann hvernig löngun mín varð meiri og meiri. Kaffi, ég fann en þá bragðið af seinasta bolla og nú langaði mig í ábót. Það er fátt skemmtilegra en að fá sér ábót. Mér leið eins og sjómanni sem var nýkominn af sjó og langaði mikið að hitta konuna sína. Konan mín, kaffið mitt. Ég steig eitt skref, í átt að afgreiðsluborðinu, og ég fann strax hvernig kaffið nálgaðist. Skrítin þessi tenging sem ég og kaffið höfum, þetta er svolítið eins og í star wars en ég er samt en þá að...

Kisu Saga (6 álit)

í Ljóð fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Kötturinn ljóti grimmi kunni Að krækja sér í bráð Margt endaði í kisu munni Mat hann hefði náð Þessi köttur var þrjóskur Þramm um göturnar Lamdi hann litlar ljóskur Lét í föturnar Sumir töldu hann stærstan Sinnar tegundar Hinir töldu hann hæstan Hátt hann höfuð bar Helst vildu allir hundar Henda honum í sjó Fóru þeir því til fundar Fengu þeir þá nóg Fóru og ljóta köttinn fundu Fóru að elta hann Hægðir út úr honum hrundu Hljóp hann þá en rann Píndur liggur hann í polli Pirraður varð hann þá...

Týbískir íslenskir aumingjar (21 álit)

í Smásögur fyrir 18 árum, 10 mánuðum
ég vona að einhver nenni að lesa þetta og ég hefði mjög gaman af því að fá álit því ég er búinn að vinna í þessari sögu mjög lengi… (bannað innan 14) Maggi sat fyrir framan litla skrifborðið sitt og horfði á skjáinn sinn, hann bara starði áfram á skjáinn sinn. Hann sat í básnum sínum. Básinn hans var mjög tómlegur, það voru nokkur tóm blöð á borðinu, ein tölva, sími, skrifborð og mynd af mömmu hans upp á vegg. Hann Maggi var í hvítri skyrtu, svörtum buxum og með rautt bindi. Engin hafði...

Skjárinn (7 álit)

í Smásögur fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Jói trúði ekki á guð en trúði því samt að einhvers staðar væri betra líf að bíða eftir honum, hann þorði ekki að drepa sig en hann fékk stundum smá tilfinningu eins og hann vildi drepa sig, en hann gat það samt ekki. Jói sat oft og hugsaði með sér hvort það væri eitthvað fleira sem hann gæti gert í lífinu. Það eina sem Jói gerði var að hanga fyrir framan tölvuna og spila tölvuspil. Honum fannst hann hafa verið að klifra fjall breyskleikans allt sitt líf og núna loksins komst hann upp á topp,...

Græni Fuglinn (18 álit)

í Smásögur fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Einu sinni var lítill strákur. Strákurinn átti heima í risastórum kastala. Kastalinn var grár á litinn og var mjög drungalegur. Strákurinn átti heima þar alveg einn. Einn dag þegar strákurinn var heima hjá sér í kastalanum sá hann grænan fugl út um gluggann. Strákurinn horfði stjarfur á fuglinn. Hann hafði aldrei séð neitt eins fagurt. Fuglinn flaug ofar og ofar þangað til strákurinn sá hann ekki lengur. Strákurinn hljóð rakleiðis upp. Í hæsta turninn í kastalanum og leit út um gluggann ....

Gangurinn (8 álit)

í Smásögur fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Ragnar gekk niður götuna, gatan var stór en það var lítið af fólki. Það var sunnudagsmorgun og Ragnar var á leiðinni að kaupa blóm handa bróður sínum sem lá á spítala. Ragnar var mjög glaður því bróðir hans hafði lifað af eitt bílslys og tvær aðgerðir. Nú loksins leit út fyrir að honum væri að batna. Honum hlakkaði svo mikið til að sjá hann, þeir höfðu alltaf verið bestu vinir, alveg frá því að þeir voru pínulitlir strákar. Hann kom að blómabúðinni og gekk inn. Hann þurfti fyrst að ganga út...

Alheimurinn (9 álit)

í Ljóð fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Dag einn sast guð á klósettið, eftir að hafa borðað allt of mikið af kexi. Hann rembist og rembist þangað til loksins kemur eitthvað út. Hann stendur upp, feginn. Bíðandi spenntur eftir að fara í bíó í kvöld, gleymir hann að sturta niður. Hann þvær sér um hendurnar og gengur út. -Eftir í klósettinu situr alheimurinn…

Mig langar að skrifa ljóð (6 álit)

í Ljóð fyrir 18 árum, 12 mánuðum
Mig langar að skrifa ljóð, orðin komast eigi út úr mér. Þau eru þarna, en þau komast ekki út. (Þú varst hjá mér í kvöld. Fingur þínir mjúkir, augu þín svo falleg, koss sem féll svo mjúkt á varir mínar, og orð sem féllu betur í eyrað mitt heldur en öll heimsins tónlist. Kveðjustund nálgast og þrátt fyrir augun, orðin, fingurna og kossin þá á ég erfitt með að segja: “ég elska þig.” En allt í einu falla þessi orð út úr mér, lágt og hljótt: “ég elska þig.” Ég heyri lítið en samt mjög þæginlegt:...

Kindinn (13 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum
Kindin stóð, kunni bara að kúka, bíta og kyngja langaði henni lengi að fara langt í fjall að syngja. Grá kindin gekk af stað í gegnum landsins engi. Smá spölur og meira en það sú hafði verið lengi. Hún kom að háa tindinum heppnin var ekki með, var hún í mesta vindinum en viljin var eigi peð. Stundum var mikið af steinum þá voru mikil hopp, án nokkurar hljálpar frá neinum hún komst upp á topp. Gerði svo greyið sig tilbúna til að syngja á milli dala, en fattaði svo eftir ferð lúna að hún kunni...

Kristján Stöðugtvatn Endurlífgaður (2 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum
Skrýtið og Hrátt. Ég geng yfir öldur af hljóðum sem eru eins og taktfastar línur á leiðinni á enda. Röddin nær yfir restina sem oftast er um eitt. Aftur á bak einleikur sem ég fæ ánægju að hlusta á. Hver getur sagt mér hverjir þetta eru og hvaðan þeir koma? Þeir eru núna aðeins hringlaga efni sem fer í ferð sem endar einhverntímann. Ljósið fer áfram en ég sé það ekki. Hins vegar heyri ég í fullt af stöngum, prikum og pinnum sem aðeins voru og verða aldrei aftur.

Tóm kveðja (4 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum
Ég stíg inn í herbergi. er þetta herbergi eða eitthvað meira? Allt er horfið og allt svo tómt. Ég fann samt leifar af úrelltum tilfinningum. Mun ég einhverntímann standa hér aftur? Ég geng að glugganum, ég horfi út. Mér líður eins og kóngur, að horfa yfir konungaríki sitt. Köld og stór fótspor á leiðinni til baka. Myrkrið steig yfir þegar ég geng út, En ljós mun skína á ný.

Lítið bros á litlum strák (12 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum
Kvalarfullt bros á litlum strák. Hann situr í kaffistofunni. Hún er ekki til staðar. Tilgangur er ekki til staðar. Annar maður gengur að honum og fyllir höfuð hans af lygum og prettum. ekkert meira. Fjögurhundruð ár. himnaríki er uppgötvað. tilgangurinn er tilgangsleysi. fimmtíu lítrar af blóði renna á meðal holræsana. litli strákurinn situr á gangstéttabrún. ekkert meira. Maðurinn bankar og konan í blómakjólnum kemur til dyra. Maðurinn vaknar og stígur í ferðatæki ríkra manna. Þjóðsögur á...

Stjarnan hennar (2 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 1 mánuði
Ég gekk í gegnum stóru dyrnar og mér leið eins og glitrandi stjörnu. Allir störðu á mig í fáeinar en langar sekúndur. Ég sá myndavélar, fréttafólk og rauðan borða, en aðeins frá mínu sjónarhorni. Ljósin hurfu og ég fékk sjónina aftur. Þarna stóð hún, fallegri en nokkru sinni áður. Það var aðeins hún, brosandi. Ég var stjarnan hennar.

Sýn (3 álit)

í Smásögur fyrir 19 árum, 1 mánuði
Ég hef aldrei skrifað smásögu áður ég ákvað að prófa þetta hér er útkoman: Hvernig getur einhver verið svona sorglegur? Hvernig getur einhver verið svona ótrúlega einmana? Það er alltaf það sama aftur og aftur. Klára vinnuna, fer heim, fæ mér að borða, leggst upp í rúm og fer að sofa. Konan mín fer meira segja líka að sofa. Ekkert kynlíf, bara svefn. Ætli ég þurfi ekki að klára þennan vinnudag rétt eins og hvern annan? Hugsar breki sitjandi í stólnum sínum. Breki stendur upp úr dimma básnum...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok