Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

greatness
greatness Notandi frá fornöld 314 stig

Re: Flottustu bardagarnir úr öllum kepnum

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Það er aldrei að vita:) Rock on. Greatness.

Re: Flottustu bardagarnir úr öllum kepnum

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Mér finnst það þónokkuð langt gengið að kalla Randy Couture, Chuck Lidell og Tito Ortiz kettlinga. Hvað eru þá hinir sem eru að keppa í UFC keppnunum, eitthvað minna en kettlingar? Ef þessi karatemeistari sem ég hef ekki séð berjast væri virkilega það góður að hann gæti gert Octagon svæðið að sýnikennslu í Karate gegn Couture, Lidell og Ortiz þá væri ég til í að sjá það. Mér finnst það hinsvegar frekar hæpið og er ástæðan einfaldlega sú að hann hefur ekki getað sýnt fram á ágæti sitt til...

Re: Sumar bardagalistir bannaðar í UFC?

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Ástæðan fyrir því að þú sérð ekki einstaklinga komast til metorða í MMA sem hafa Karate, Taekwondo, Kung Fu og fleira sem sinn meginstíl er einfaldlega vegna þess að það er eitthvað við þessa bardagastíla sem gerir þá ónothæfa í lifandi aðstæðum á móti andstæðingi sem hefur æft einhverja blöndu af eftirfarandi. Box Muay Thai Kickbox Sambó Brasilískt Jiu Jitsu Judo Greco Roman Wrestling Freestyle Wrestling Catch wrestling Þeir einstaklingar sem hafa haft sinn fyrsta bakrunn í Karate,...

Re: Uppáhalds lag...

í Gullöldin fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Þú ert ekki sá fyrsti og verður ekki sá síðasti sem fellur fyrir svona. Það er mikið um það að menn syngja inn á lög annarra og setja það síðan í dreifingu á netinu til þess að plata fólk. Annars rock on. Greatness.

Re: Uppáhalds lag...

í Gullöldin fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Ég veit ekki betur en að Jimi Hendrix hafi verið dauður áður en hann hafði möguleika á því að heyra lagið því það var fyrst spilað live á Írlandi 5. Mars 1971. Var Hendrix ekki dauður þá? Rock on. Greatness.

Re: Bandarísk einangrunarstefna og endalok hennar, Seinni hluti

í Sagnfræði fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Varðandi niðurlag greinarinnar langaði mig að skjóta inn ræðu sem Molotov hélt fyrir friðarráðstefnuna í París 10. október 1946. We know that the United States made a very great effort in this war, in defence of its own interests and of our common aims, for which we are all very grateful to the United States. But for all that, it cannot be said that the United States is one of those states which suffered grave material damage in the second world war, which were ruined and weakened in this...

Re: Heimsvaldastefnan 1870-1914 seinni hluti

í Sagnfræði fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Jæja, ég get þá varlað beðið eftir þeirri grein því ég hef mjög mikinn áhuga á öllu því sem viðkemur Indókína og þá sérstaklega Víetnam. Ég bíð spenntur eftir þeirri grein. Annars ágætlega gert og endilega haltu áfram. Rock on. Greatness.

Re: Heimsvaldastefnan 1870-1914 seinni hluti

í Sagnfræði fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Athyglisvert að þú nefnir ekkert um Indókína í grein þinni. Var ekkert fjallað um það í frumheimildum þínum? Hvaða frumheimildir voru það sem þú notaðir? Annars ágæt grein. Greatness.

Re: Saga Led Zeppelin

í Gullöldin fyrir 21 árum, 1 mánuði
Mjög fín grein, eiginlega sú besta sem ég held ég hafi séð um Led Zeppelin á Huga og þá hef ég séð þær margar:) Það eru til nokkurar sögur um hvaðan nafnið Led Zeppelin kemur fram. Í öllum tilvikum þá á einhver meðlimur the Who að hafa komið nálægt því. Í einni sögunni þá átti Moon að hafa viljað nota nafnið Lead Zeppelin, með a-inu á hljómsveit sem hann, Page, Daltrey og Jonesy ætluðu hugsanlega að stofna. Þá voru Moon og Daltrey orðnir eitthvað pirraðir á Townsend og vildu hugsanlega hætta...

Re: Þjóðernishyggja Þjóðverja og gyðingahatur

í Sagnfræði fyrir 21 árum, 1 mánuði
Reyndar var það Austurríki-Ungverjaland sem hafði sterk áhrif á flest þýsku furstadæmin. Bismark þurfti fyrst að eyða þeim áhrifum svo gerði hann það sem hann gat til að espa Frakka í stríð sem honum svo tókst.

Re: Menningarbyltingin í Kína

í Sagnfræði fyrir 21 árum, 1 mánuði
Þeirri hugmynd hefur einnig verið varpað fram að hugsanlega hafi ein ástæða fyrir menningarbyltingunni verið vaxandi umsvif Bandaríkjamanna í Víetnam. SAgnfræðingar hafa ritað að ráðamenn í Kína hafi sumir hverjir verið þess fullvissir að svona mikil umsvif Bandaríkjamanna í Víetnam gæti ekki einungis verið vegna Víetnam. Það er að segja að Bandaríkjamenn hafi ætlað sér hugsanlega að ráða yfir Víetnam og notað það sem stökkpall inn í Kína. Annars mjög fín grein. Rock on. Greatness.

Re: John Bonham sá er maðurinn !

í Gullöldin fyrir 21 árum, 2 mánuðum
það var ekki John Paul Jones sem kom að honum látnum heldur aðstoðarmaður hans sem hét einhverju furðulegu nafni ef ég man rétt. Það var líka hann sem kom Bonham í rúmmið og lét kodda undir hann svo hann mynda sofa á hliðinni. Bonham hefur hinsvegar velt sér á bakið og svo ælt og drukknað svo í ælu sinni. Rock on. Greatness.

Re: Forsetar BNA 1.hluti

í Sagnfræði fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Var stjórnarskrárbreytingin ekki framkvæmd árið 1951? Það ár var Truman forseti Bandaríkjanna. Rock on. Greatness.

Re: Smá upplýsingar um Hirohito.

í Sagnfræði fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Það má segja að faðir hans hafi verið mjög veikur því hann var úrskurðaður geðveikur:) Ástæðan fyrir því að það var ákveðið að rétta ekki yfir honum fyrir stríðsréttardómstóli var vegna þess að McCarthur hershöfðingi vildi ekki að hann yrði tekinn af lífi svo hann gæti hjálpað honum við að viðhalda stöðuleika í Japönsku samfélagi. Hirohito bar þó vitni fyrir stríðsréttardómstólnum og þar kom fram að hann hafði fulla vitneskju af því sem var í gangi á stríðsárunum á milli Japans og Kína og í...

Re: Viltu læra aðins um Adolf Hitler

í Sagnfræði fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Það er nú spurning hvenær Hitler hóf hatur sitt á gyðingum því það er nokkrar góðar heimildir fyrir því að hann hafi átt vini sem gyðinga rétt fyrir fyrri heimsstyrjöldina. Ennfremur þegar tilraunin til valdaráns var gerð í Munchen 1923 þá minnir mig að Hitler hafi ekki ætlað sjálfum sér það hlutverk að vera leiðtoginn. Var hann þá ekki að styðja Ludendorf? Annars var það ekkert meira. Rock on. Greatness.

Re: Lavrenti Pavlovich Beria

í Sagnfræði fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Mjög stutt en góð grein sem var mjög fræðandi. Ég hafði einungis heyrt af þessum manni í stuttum frásögnum hér og þar en er nú orðinn mun fróðari um manninn. Þakka þér fyrir og skrifaðu endilega fleiri greinar. Rock on. Greatness.

Re: 15. Bestu gítarsóló allra tíma.

í Músík almennt fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Já, það er rétt að margir gítarleikarar taka upp marga gítarparta fyrir lög en það sem ég er eiginlega meira að tala um er lög þar sem þú verður eiginlega að hafa tvo gítarleikara til þess að spila lagið. T.d. þá var Hotel California eftir því sem ég best veit ávallt spilað með tveimur ef ekki fleiri gítarleikurum og verða þá tveir gítarleikarar að spila það á tónleikunum. Sömuleiðis með Free bird því það er ógerlegt að spila sóló segmentið með einum gítar á sviði. Hinsvegar þá veit ég ekki...

Re: 60 ár eru liðin frá lokum WWII.....

í Sagnfræði fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Bretarnir brenndu sig aldrei á Víetnam, þeir sendu jú hermenn þangað í lok seinni heimsstyrjaldarinnar og í fyrstu var þeim fagnað sem sameiginlegum baráttumönnum úr seinni heimsstyrjöldinni. Þegar hér var komið við sögu í Víetnam höfðu japönsku hersveitirnar dregið sig inn í herbúðir sínar og létu ekki sjá sig fyrir utan þær. Á meðan á stríðinu hafði gengið þá höfðu japönsku hersveitirnar reyndar einmitt gert það að miklu leyti, þeir notuðu nefnilega Franska embættismanna kerfið fyrir sig...

Re: 15. Bestu gítarsóló allra tíma.

í Músík almennt fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Kannski líka að benda á að þegar tveir gítarleikarar spila sóló á sama tíma í sameiningu er þá ekki í raun verið að tala um gítardúet? Væri þá Hotel California ekki gítardúet? og líka Free Bird með Lynard Skynard? Greatness.

Re: 15. Bestu gítarsóló allra tíma.

í Músík almennt fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Fínn listi. Kannski áhugavert fyrir hugara að vita að Jimmy Page var aldrei neitt sérstaklega sáttur við gítarsólóinn sem hann spilaði fyrir Since I´ve been loving you. Hann átti til að gera það sem margir aðrir gítarleikarar hafa líka oft gert, þar á meðal t.d. Ace Frehley. Hann tók stundum upp þrjá gítarsólóa og valdi síðan bara þann sem honum fannst best passa við. Síðar þá sagði hann í nokkrum viðtölum að hann hefði aldrei samt verið sáttur við sólóinn í Since I´ve been loving you sem...

Re: Led Zeppelin [IV]

í Gullöldin fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Reyndar rangt. Platan heitir ekkert og hefur þar af leiðandi verið kölluð margskonar nöfnum af tónlistarpressunni og aðdáendum. Þegar platan var fyrst gefin út varð útgáfufyrirtæki Zeppelin, Atlantic að láta pressuna hafa fonta fyrir merkin fjögur svo hægt væri að setja plötuna á sölulistana. Platan hefur verið kölluð meða annars Four symbols, Symbols, Led Zeppelin four, Untitled, untitled album, Zoso og mörgum öðrum nöfnum. Rock on. Greatness.

Re: Led Zeppelin - Physical Graffiti [1975]

í Gullöldin fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Lagið trapkað undir fót eða trampled underfoot er reyndar enn einn liður Robert Plant´s í því að benda á og sækja tónlist í blús tónlistina. Margir af gömlu blúsurunum áttu það til að bera konur saman við bíla og kynlífsathafnir áttu þá í því samhengi að vera þeir að keyra bílinn:) Trampled underfoot er að mörgu leyti um það. In my time of dying er að því er mig minnir gamalt blús lag sem Dylan tók með annars upp á sína arma. Þó ber að taka fram að lagið er ekki eftir hann. Dylan átti það...

Re: Led Zeppelin [IV]

í Gullöldin fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Enn önnur villa hjá þér félagi er að Jimmy Page syngur ekki bakraddirnar inn á Battle of Evermore heldur fengu þeir söngkonu til að gera það. Ég bara man ekki í augnablikinu hvert nafnið hennar var en minnir einhvern veginn að það hafi verið Sandy eitthvað. Persónulega finnst mér Four Sticks vera frábært lag og er í miklu uppáhaldi hjá mér. Reyndar á ég útgáfu af því lagi frá upptökunum sjálfum þar sem mixið er öðruvísi og þar er mjög greinilegt hversu mikill kraftur er í trommunum hans...

Re: dúndurfrétttir

í Gullöldin fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Hef séð Dúndurfréttir nokkrum sinnum og þeir eru mjög góður. Ég verð samt að segja að þeir eru betri í því að taka Pink Floyd en Led Zeppelin en það sem þeir gera best og er ekki alveg viss af hverju er Deep Purple. Í fyrstu þá hélt að ástæðan fyrir því að þeir taka Pink Floyd betur en Zeppelin er sú að Pink Floyd er meiri stærðfræði en Led Zeppelin. Það er nefnilega mun meiri blús í Led Zeppelin og blúsinn er bara ekki eins útreiknanlegur og það sem Pink Floyd gerðu. Ég er samt engan veginn...

Re: 30 áhrifamestu hljómsveitir 20. aldar

í Músík almennt fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ég er mikill Kiss aðdáandi þannig ekki misskilja þetta en þetta er algjörlega rangt hjá þér. Bítlarnir eiga flestar gull plötur og flestar platínum plötur og flestar multi platínum plötur. Það er bara í einum flokki sem þeir eru jafnir einhverjum og það er í Diamond awards sem er fyrir plötur sem hafa náð yfir 10 milljóna plötu sölu og þar eru þeir jafnir Led Zeppelin með 6 eða 7 hvor ef ég man rétt. oh Fyrirgefið, reyndar á Elvis flestar gull, platinum og multi platinum plötur og hann er...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok