Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

greatness
greatness Notandi frá fornöld 314 stig

Re: Hefur einhver....

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Ég þurfti margoft í vinnu minni sem dyravörður að nota hluta af því sem ég er að æfa eins og er. Fyrst þegar ég byrjaði að vinna sem dyravörður kunni ég ekkert og var einungis að lyfta. Ég var ágætlega sterkur en eins og oftast er þá finnurðu alltaf einhvern sterkari en þig sjálfan. Æfingafélagi minn í lyftingum dró mig síðan með sig á æfingu í aikido dojoinu í Skeifunni. Þar var hann víst að æfa svokallað brasilískt Jiu Jitsu. Ég ákvað að kíkja með og ég var ekki lengi að verða hooked....

Re: fighterar

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Í UFC verð ég að segja Matt Hughes. Hann er frábær wrestler en hann er líka að þróa gamið sitt. Mér finnst líka gaman að sjá Randy Couture berjast því það er svo mikill klassi yfir þeim manni. Það var líka svolítið fyndið að sjá hann rasskella Tito:) Ritch Franklin er líka skemmtilegur karakter. Það er annars í Pride sem uppáhalds bardagakempurnar mínar eru að keppa. Þar eru uppáhalds kempurnar Fedor Emilienko, Nougiera stærri og minni því þeir eru báðir alveg frábærir. Mauricio Shogun er...

Re: tækvondó er besta bardagalistin

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Þú hlýtur að fá meira að ríða en við hinir. En hvað ég öfunda þig. rock on. Greatness. p.s. hvað þarf að gera til þess að menn séu bannaðir hérna inni?

Re: ofbeldisseggir

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Hann fór bara í villimannaíþróttina Brazilian Jiu Jitsu? Sagði bróðir hans það orðrétt? Það er skrýtið því hann á eftir því sem ég man best þrjá bræður og þeir eru allir að æfa brasilískt Jiu Jitsu og hafa margir hverjir staðið sig mjög vel í þeirri grein. Það er ein af ástæðum þess að hann hefur staðið sig svona vel því það er frábært æfinga-umhverfi að geta farið á æfingar að vild og svo líka æft sig heima ef manni dettur eitthvað í hug því maður er ávallt með einhvern bróðir nálægt til að...

Re: ofbeldisseggir

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Ég hef aldrei lesið neitt um að B.J. Penn hafi verið slagsmálahundur á götunni áður fyrr. Kannski var hann það en það fer lítið fyrir því þegar verið að draga hann niður í svaðið á sherdog eða á mma.tv. Það eru margir þar sem eru ekki miklir áhugamenn um hann og finnst ekkert varið í hann. Ef þeir hefðu einhverjar slíkar upplýsingar um hann þá væru þeir búnnir að nota þær. Annars þá væri frábært ef þú gætir bent mér á einhverjar heimildir. Þær þurfa ekki að vera fullkomnar, bara einhverja...

Re: ofbeldisseggir

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Síðan hvenær var B.J. Penn slagsmálahrotti eða götuslagsmálahrotti. En varðandi Steven Seagal þá þyrftirðu aðeins að kanna betur söguna bak við hann. Ég skal fræða þig aðeins núna bara til þess að koma þér af stað. Steven Seagal er frægur meðal áhættuleikara um að vera mjög hrottalegur í kvikmyndatökum og það er fyrir utan alla dívustælanna sem hann er líka frægur fyrir. Eitt af því sem hann Steven Seagal er margtalaður fyrir er að taka sig til og sparka í klofið á áhættuleikurum þegar þeir...

Re: NINJUTSU: LIFANDI LIST

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Ekkert mál, bara að athuga. Þetta er ágætis misskilningur í sögunni að Samúræjarnir hafi verið svo heimskir og fullir af sjálfsmorðsbrjálæði að þeir hafi virkilega ekki notað byssur í stríði þar sem annar aðilinn var að nota byssur eða þá að þeir hafi stormað gegn byssu hlaupum með sverðin og spjótin ein í hendi:) Tom Cruise myndin gerði heldur ekki mikið til að leiðrétta þennan misskilning þó að myndin sjálf sem slík hafi verið ágætis skemmtun. Annars rock on. Greatness.

Re: NINJUTSU: LIFANDI LIST

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Ólíkt öðru því er japanskt er, þá hefur Ninjutsu ætíð þróast samfara sínum tíma (þó oftast bak við tjöldin) og voru forfeðurnir fljótir að grípa byssur, fallbyssur og handsprengjur til að valda usla meðal samuræja sem héldu fast í sverðin sín og blótuðu huglausum skuggamönnum sem forðuðust að falla í heiðvirðum bardaga samkvæmt lögum og reglum. Enda hefur ninjan sjaldan hegðað sér samkvæmt því er rétt þykir á hverjum tíma og fer þá frekar eigin leiðir í trassi við alla íhaldssemi og aðrar...

Re: [b] Ninjutsu á Íslandi???[/b]

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Má ég spyrja hvort að það verði æft lifandi eins og við köllum það hjá þér þegar þú byrjar að kenna. Það er að segja munið þið sparra? Rock on. Greatness.

Re: [b] Ninjutsu á Íslandi???[/b]

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Sælir. Gætirðu kannski sagt okkur hvað þú ert að tala um varðandi Ninjitsu? Rock on. Greatness.

Re: Íran-Írak stríðið - Fyrri hluti

í Sagnfræði fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Þetta var góð grein en það kemur samt aðeins á óvart að þú skulir ekki hafa nefnt það að Khomeini lýsti því yfir þegar hann tók við völd að hann hugðist stofna veldi sem átti að þekja Miðausturríkin eða að minnsta kosti að flytja út byltingarandann til annarra múslimskra ríkja. Menn gætu túlkað það sem hótun um hernaðarbrölt sem yrði einungis háð af hendi Írana í gegnum Írak vegna staðsetningu landanna. Ráðamönnum Miðausturlanda hveið yfir þessu því sigur Írana yfir Írak myndi þýða að þeir...

Re: Free Fight Námskeið í Pumping Iron að birja

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Verður aðaláherslan á gólf glímu eða verður líka farið í standandi clinch? Verður þá áherslan á Judo eða greco/roman-freestyle wrestling clinch? Annars rock on. Greatness.

Re: John Bonham. R.I.P.

í Gullöldin fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Nei, það er rangt:) Heldurðu að John Paul Jones hafi staðið í því starfi að leggja John Bonham til hvílu? Þetta er samt frægur misskilningur. “Later Bonzo continued his binge at a band party at Jimmy's house in Windsor. He downed two or three double vodkas an hour before midnight, when he passed out on the sofa. Jimmy's assistant Rick Hobbs had been through this scene before. He half-carried Bonzo to a bedroom and laid him on his side, propped up with pillows, and turned out the light. The...

Re: John Bonham. R.I.P.

í Gullöldin fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Reyndar var það einhver aðstoðarmaður sem lagði John Bonham í rúmið og setti hann á hliðina og jafnvel kodda fyrir aftan hann til að halda honum á hliðinni. Hann hefur hinsvegar hreyft sig eitthvað í rúminu á meðan svefninum stóð og síðan ælt og látið lífið. Það var einmitt sami aðstoðarmaður sem kom líka að honum látnum morguninn eftir. Rock on. Greatness

Re: Hvar er Ként Juditsu ?

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Þú getur séð allar upplýsingar um það inn á netsíðunni. http://mjolnir.nt.is Annars rock on. Greatness.

Re: Hvar er Ként Juditsu ?

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Ok, ég bara hélt að þú værir að “dissa” mig eins og margir orða það. En ég mæli eindregið með að þú mætir á æfingu hjá okkur ef þú vilt bæta við BJJ. Annars rock on. Greatness.

Re: Hvar er Ként Juditsu ?

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Áttarðu þig ekki á þeirri staðreynd að til að geta lært dauðahögg þá verðurðu að geta veitt dauðahögg á æfingu því annars geturðu aldrei verið viss um að þú sért að gera dauðahöggið rétt! Það var þess vegna að ég skrifaði fyrra svarið mitt með kaldhæðni í byrjun sem þú hefur greinilega ekki greint í svari mínu. Þess vegna tókstu þá ákvörðun að kalla mig “idiot” en mér er nokkuð sama. Í rauninni er mér það sama núna að ég vona að þér takist það svo sannarlega að finna einhverja sem eru að æfa...

Re: BJJ og MMA

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Þú getur kíkt inn á http://mjolnir.nt.is Þar færðu allar upplýsingar hvernig þú átt að hafa samband við okkur og hvar og hvenær æfingar eru. Rock on. Greatness.

Re: Hvar er Ként Juditsu ?

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Mér finnst það svolítið ótrúlegt ef það er kennt einhvers staðar Samurai Jiu Jitsu þar sem manni er kennt að drepa í einu höggi. Það væri ekki nema að þeir hafi fundið fullt af gaurum sem eru tilbúnnir að láta drepa sig á æfingu. Það sem ég er að reyna að segja er að það er erfitt að æfa drápshögg á lifandi líkama nema með því að drepa hann. Annars geturðu aldrei verið viss um að þú sért að framkalla höggin rétt. Ef þú ert að leita að einhverju svoleiðis þá held ég að leit þín muni vera...

Re: Hvar er Ként Juditsu ?

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Ég stóð í þeirri meiningu að World Jiu Jitsu væri það sama og Japanskt Jiu Jitsu. Hver er munurinn ef hægt að er að lýsa því í skrift. Rock on. Greatness.

Re: Veist tu eitthva um thetta...?

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Það er voðalega lítið sem hægt að er að lesa úr þessari netsíðu um hvað þeir eru að kenna. Þeir nefna eitthvað um Samúræja en það er samt aldrei að vita hvað þeir eru að kenna. Það sem mig grunar sterklega samt eftir að hafa lesið um þjálfunarstigin er að þeir eru að kenna eitthvað í stíl við Dimmak eða pressure point attacks. “The full program consists of five levels: 1 - aggression 2 - surprise 3 - weapons 4 - death points? = pressure point attacks? 5 - personal style Ef þú hefur áhuga á...

Re: Hvar er Ként Juditsu ?

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Það verður mjög erfitt fyrir þig að finna það sem þeir hafa verið að læra, það er að segja fyrir utan skylmingarlistina. Ástæðan fyrir því er að þótt að bardagalistir séu ekki allar æfðar lifandi þá í gegnum tíman þróast þær eitthvað. Í gamla Japan allt að Meji restoration tímabilinu sem endaði um 1869 þá voru til margar gerðir af Jiu Jitsu og voru áherslurnar ekki allar eins. Einhverra hluta vegna þá hröpuðu vinsældir Jiu Jitsu eftir þetta tímabil og má kannski rekja það til...

Re: Hvar er Ként Juditsu ?

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Ertu að spyrja að því hvar brasilískt Jiu Jitsu er kennt eða world Jiu Jitsu er kennt? Ef þú ert að spyrja um brasilískt Jiu Jitsu þá er það kennt í húsnæði Júdófélags Reykjavíkur að Ármúla 17a. Æfingar eru á Þriðjudögum og Fimmtudögum frá 20:30 - 22:30 og á Laugardögum frá 12:00 - 14:00 en þá er áherslan á MMA eða Vale Tudo. Fleiri upplýsingar geturðu fundið á http://mjolnir.nt.is Rock on. Greatness.

Re: Verum hreinskilin: tradition bardagaíþróttir eru drasl

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Ég verð nú að vera mjög ósammála þessu. Grunnglíma eins og þú þekkir hana úr BJJ kemur upprunalega úr Júdó. Maeda kenndi þeim einhvern grunn í gólfglímu. Helio Gracie lærði það síðan af bræðrum sínum en vegna líkamsburða hans þá lenti hann oft í því að verða undir og þar með varð hann að reyna að þróa gólfglímuna betur til þess að geta lært að setja menn í lás með meiri árangri undir. Flest þeirra bragða sem þú hefur séð eða þekkir úr BJJ eru líka til í Júdó. Málið er bara að þau hafa á...

Re: Sumar bardagalistir bannaðar í UFC?

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Ég er eiginlega á báðum áttum með þetta. Ég vil fá hné inn í UFC og er enn svolítið hissa á því að það skuli ekki vera leyft. Með Pride þá er ég ekki viss hvort að ég vilji hafa olnboga. Spurningin er hvort að olnbogar myndu hafa eins mikil áhrif í Pride hringnum eins og þeir gera í UFC fyrst það er enginn netveggur í Pride þá er ekki hægt að ýta mönnum upp að því og láta síðan olnboganna falla. Ef að þeir ætluðu sér að leyfa olnboga í Pride þá ættu þeir að prófa það fyrst í smá tíma til að...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok