Ég veit að það hefur verið skrifað endalaus um þessa hljómsveit hér á Gullöldin en ég ákvað nú samt að setja inn mitt framlag.

Þessi grein birtist í hina frábæra unglingablaði Smelli fyrir Jólin í nýjasta greinaflokk hans sem heitir “Gamlir og Góðir”. Þar sem ég er höfundurinn þá er þetta ekki ritstuldur eða ólöglegt eða neitt (vona ég ;)). En allavega, here goes…


Led Zeppelin er hljómsveit sem flestir ef ekki allir hafa einhvern tímann heyrt um. Það vita þó ekki allir hvaða hljómsveit þetta er eða hvers vegna hún fær svona mikið umtal. Næstum því undartekningarlaus sést nafn hljómsveitarinnar, meðlima hennar eða laga hennar á listum yfir bestu þetta og hitt í rokksögunni. En hvað nákvæmlega er Led Zeppelin?
Enska hljómsveitin Led Zeppelin samanstóð af fjórum mönnum, Robert Plant var söngvari hennar, Jimmy Page var gítarleikarinn, John Paul Jones var bassaleikarinn og John Bonham var trommarinn. Hver og einn þeirra er af mörgum talinn einn sá besti á sínu sviði innan rokktónlistar.
Þegar hljómsveitin The Yardbirds hætti átti hún ennþá nokkra hljómleika eftir á norðurlöndum. Þetta var náttúrulega samningsbundið svo það sem Jimmy Page, gítarleikarinn, ásamt Chris Dreja, bassaleikaranum, varð að gera var að hnoða saman hljómsveit til að geta klárað dagskrána. Fljótlega hætti þó Chris Dreja svo Page hóaði í kunningja sinn John Paul Jones, bassaleikara sem hann hafði spilað aðeins með en þeir höfðu báðir verið að spila sem svokallaðir session hljómlistarmenn. Þá eru þeir ekki beint í neinni einni hljómsveit heldur hjálpa bara hinum og þessum hljómsveitum í hljóðverinu með hljóðfæraleik þegar þær eru að taka upp plötur. Jones hafði einmitt beðið Page um að hafa sig með í hvaða framtíðarverkefnum sem hann kynni að taka sér fyrir hendur svo að hann var meira en tilbúinn til að slá til. Þar með var Page kominn með bassaleikara. Ennþá þurfti Page trommara og söngvara. Page var bent á Robert nokkurn Plant sem þá var að syngja með hljómsveitinni Hobbstweedle. Page fékk Plant til að ganga í hljómsveitina og það var svo Plant sem benti Page á John Bonham, trommara sem hafði á tímabili trommað með Plant í hljómsveitinni The Band of Joy. Eftir nokkra sannfæringu ákvað Bonham að ganga í hljómsveitina. Fyrst kölluðu fjórmenningarnir sig The New Yardbirds og spiluðu þá á tónleikunum sem The Yardbirds höfðu áður verið búnir að lofa sig á. Mánuði seinna var því lokið og þá breytti hljómsveitin nafni sínu í Led Zeppelin. Sagan segið að nafnið Led Zeppelin hafi komið frá trommara The Who, Keith Moon en hann hafi notað frasann: ,,It went down like a lead zeppelin” eða ,,það féll eins og loftfar úr blýi” um misheppnaða tónleika. Nafnið var ekki beint viðeigandi þar sem þetta var byrjunin á einhverjum glæstasta ferli hljómsveitar í rokksögunni.
Led Zeppelin tók upp sína fyrstu plötu í október 1968. Stuttu seinna var hljómsveitin komin með samning við bandarísku plötuútgáfuna Atlantic Records og snemma árið 1969 voru Led Zeppelin komnir af stað í sitt fyrsta bandaríska tónleikaferðalag. Í janúar 1969 kom út fyrsta plata hljómsveitarinnar sem hét bara Led Zeppelin og komst sveitin strax ofarlega á vinsældarlista í Bandaríkjunum og víðar. Fyrsta platan einkenndist af breskum blús sem á þessum tíma var mjög vinsæll eftir að tónlistarmenn eins og John Mayall, Cream og Jeff Beck höfðu gert það gott. Einnig mátti þar heyra áhrif frá þjóðlagatónlist og psychadelicu sem útleggst á íslensku sem skynörvandi rokk og er eiginlega svona hálfgert dópvímu rokk sem hljómsveitir eins og Jefferson Airplane, The Doors og The Grateful Dead hafa meðal annarra gert frægt.
Næstu mánuði túraði hljómsveitin stíft um Bandaríkin og England ásamt því að taka upp plötu númer tvö sem hét því frumlega nafni, Led Zeppelin II og kom hún út í október 1969. Þessi plata gerði meira en áður hafði verið gert fyrir Heavy Metal. Já, það er rétt, tónlistin sem hljómsveitir eins og Megadeth og Metallica hafa gert fræga seinna meir byrjaði m.a. hjá Led Zeppelin en einnig voru Kiss, Deep Purple og síðast en alls ekki síst Black Sabbath mjög atkvæðamikil þegar kom að mótun þessa stíls. Í lögum eins og Whole Lotta Love sem er opnunarlag plötunnar eru Led Zeppelin að nota aðferðir sem seinna einkenndu Heavy Metal. Það eru stutt og síendurtekin gítarriff ásamt því að tólistin sé gítardrifin, há, þung, mikill ryþmi og gítarinn sé stilltur á sérstakan hátt. Seinni platan var líka mjög vinsæl og gerði mikið til að festa Led Zeppelin í sessi sem eina af bestu rokkhljómsveitum þess tíma.
Áfram hélt hljómsveitin að túra og komu m.a. annars við hér á Íslandi og spiluðu á goðsagnakenndum tónleikum í Laugardalshöllinni. Þeir gáfu svo út Led Zeppelin III í október 1970 og þar fór stíll hljómsveitarinnar að verða auðgreindari og þróaðri. Enn mátti greinilega heyra blúsinn og metalinn sem hafði einkennt hljómsveitina fram að þessu en það var í raun ekki það sem þessi þriðja plata byggði á. Hún byggði meira á kassagítarshljóm og þjóðlagarokki ásamt því að hafa flóknari og háþróaðri hljóðfæraleik.
Í nóvember árið 1971 gaf Led Zeppelin svo út sína fjórðu plötu sem var ónefnd en bara kölluð Led Zeppelin IV og er hún af mörgum talin hápunktur ferils þeirra og hefur hún selst mest allra platna þeirra. Það skýrist líklega að vissu leyti af því að hún innihélt þeirra vinsælasta og frægasta lag, Stairway to Heaven, sem enn heyrist reglulega í útvarpi þrátt fyrir að hafa aldrei verið gefið út á smáskífu. Sú plata er líka stútfull af klassíkerum og líklega sniðugast að byrja á henni ef þú vilt kynna þér þessa hljómsveit sjálf(ur).Hún byggir í raun á öllu sem Led Zeppelin hafði gert á fyrri plötum og er þannig sú fjölbreyttasta af öllum þeirra plötum. Hún inniheldur allt frá hinu rólega og þjóðlagarokks-lega Stairway to Heaven til hinna mjög svo rokkuðu Black Dog og When The Levee Brakes ásamt því að hafa hið hressa og gleðilega Misty Mountain Hop sem gerir létt grín af hippum.
Til að styðja plötur III og IV túruðu Led Zeppelin menn helling en þó minna en áður og einbeittu sér þess í stað að því að spila á færri og stærri tónleikum. Síðan drógu þeir sig úr sviðsljósinu og tóku upp fimmtu plötu sína, Houses of the Holy, sem kom út í mars 1973.
Houses of the Holy var tilraunakenndari en fyrri plötur og á henni leyfði Led Zeppelin sér að slaka aðeins á og gera rólegri plötu en áður og áherslan á þessari plötu er meira á þjóðlagarokk og lögin byggð á melódíum meira en áður þrátt fyrir nokkrar undantekningar. Þeir eru líka með svolítið fönkað lag þarna, The Crunge og annað reggí-legt, D’Yer Mak’er. Kannski voru þeir bara að verða uppiskroppa með efni en útkoman nú samt sú að platan verður fjölbreyttari.
Á túrnum eftir þessa plötu slógu Led Zeppelin hvert aðsóknarmetið á fætur öðru í Bandaríkjunum. Eftir þann túr tóku Led Zeppelin sér hvíld allt árið 1974. Í febrúar árið 1975 gáfu Led Zeppelin svo út tvöfalda plötu, Physical Graffiti sem varð strax mjög vinsæl og var á toppi vinsældarlista báðum megin Atlantshafsins.
Physical Graffiti var eiginlega óræð blanda af ýmis konar stílum og þar virkuðu mörg lög eins og inngangur í nýja tónlistarstefnu fyrir Led Zeppelin. Þeir fóru líka lengra með marga af þeim stílum sem þeir höfðu verið að fikta við fram að þessu. T.d. er In My Time of Dying djúpur og vel slípaður blús og Down By The Seaside fer með kántrí-ið lengra en áður hafði verið gert.
Stórum túr var komið af stað í Bandaríkjunum eftir þessa plötu. Hann var þó skyndilega stöðvaður og öllum tóleikum sem eftir voru aflýst þegar Robert Plant, ásamt eiginkonu sinni, lenti í alvarlegu bílslysi í Grikklandi, þar sem þau voru í fríi. Plant eyddi restinni af árinu í að jafna sig.Vorið 1976 gáfu Led Zeppelin svo út plötuna Presence.
Presence er í raun fyrsta platan þar sem Led Zeppelin fer að fara teljanlega aftur. Það mátti kannski heyra þetta aðeins á Physical Graffiti en það er þarna sem það fer fyrst að vera greinlegt. Þrátt fyrir það seldist rokseldist platan en gagnrýnendur voru ekki jafn ánægðir með hana og aðdáendur voru.
Presence heldur áfram á svipuðum nótum og Physical Graffiti en gerir ekki jafn vel það sem var gert þar. Hún inniheldur epísk 10 mínútna löng lög og þar á milli lög sem virðast vera lítið annað en leiðir til þess að fylla upp í á milli löngu laganna. Þessi lög eru því ekkert sérstök og í raun tekst Led Zeppelin ekki að gera nógu góða hluti með epísku lögin heldur. Það eina nýja sem Led Zeppelin er að gera hér er eiginlega bara að gera lengri lög en þeir eru vanir. Án vafa slappasta plata Led Zeppelin.
Það var svo loksins árið 1977, þá um vorið, sem Led Zeppelin kom aftur til Bandaríkjanna með túr. Nokkrum mánuðum seinna dó svo 6 ára gamall sonur Plant, Karac, úr sýkingu og þá var túrnum aflýst. Lengi vel eftir það var framtíð Led Zeppelin mjög óljós. Robert Plant eyddi lokum árs 1977 og byrjun 1978 einn með fjölskyldu sinni. Sumarið 1978 byrjaði hljómsveitin þó að vinna að nýrri plötu. Ári seinna tóku þeir svo stuttan túr um nokkur Evrópulönd og í ágúst 1979 spiluðu þeir svo tvo stóra tónleika í Knebwort í Englandi, þeir síðustu sem hljómsveitin myndi spila þar í landi. Það var svo loks í september 1979 sem platan In Through The Out Door kom út eftir mikla bið og margar frestanir.
In Through The Out Door var sem betur fer mun betri en Presence sem má kannski að einhverju leyti þakka því að á þessum tíma hafði rokkið breyst og þar með komu nýir áhrifaþættir inn í tónlist Led Zeppelin. Þannig eru hljóðgervlar (sythesizer) að koma inn, sem Jones höndlar mjög vel og þar að auki breyttar áherslur í trommuleiknum hjá Bonham. Platan er ágætlega fjölbreytt og kynnir nýjar hugmyndir en samt eru Led Zeppelin ekkert hættir að rokka eins og þeir höfðu gert áður. Þannig verður platan ágætis endir á glæstum ferli Led Zeppelin þó að hún hafi ekki alls ekki verið hugsuð þannig.
Þrátt fyrir vesenið sem hafði verið á hljómsveitinni undanfarin ár höfðu þeir ekki misst tryggð aðdáenda sinna og platan seldist strax vel bæði í Evrópu og Ameríku. Í maí 1980 fóru Led Zeppelin svo stað með túr um Evrópu sem reyndist vera þeirra síðasti. 25. september 1980 fannst John Bonham látinn en hann hafði kafnað á eigin ælu eftir mikla drykkju.
Led Zeppelin tilkynnti það svo í desember sama ár að þeir væru hættir þar sem þeir gætu ekki haldið áfram án Bonham. Einhver frægasta, áhrifamesta og besta hljómsveit rokksögunnar var hætt. Tónlist hennar á fáa jafnoka þegar kemur að því að vera einkennandi fyrir gullöldina svokölluðu og hún setti mark sitt á rokk 8. áratugarins meira en nokkur önnur.
Eftir þetta hófu allir meðlimirnir sólóferil. Eftirlifandi hljómsveitarmeðlimir hafa komið saman í örfá skipti til að spila við sérstök tækifæri og hafa þá notið aðstoðar sonar John Bonham, Jason Bonham, á trommunum. Einnig hafa verið gefnar út safnplötur með tónlist Led Zeppelin á seinni árum og þá nýlegast How the West Was Won árið 2003. Það er frábær tónleikaplata sem inniheldur flottar útgáfur af flestum þeirra bestu lögum. Einnig kom út DVD pakki með tónleikaupptökum á sama tíma.

Heimildir:
www.allmusic.com
www.imdb.com
Endless Power? This is Perfect! - Bryan Fury