Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

One Tree Hill - Lokaþátturinn o.fl. (17 álit)

í Sápur fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Ég ætla senda inn smá grein um lokaþátt fjórðu seríu og fara yfir það .sem hefur gerst í þáttunum hingað til. Vonandi nennir einhver að lesa þetta —– Mér fannst þessi þáttur með þeim bestu í fjórðu seríu vegna þess að mér þótti hann mjög rólegur og yfirvegaður. Þrátt fyrir hversu rólegur hann var gerðist mjög margt og mjög hratt. Þátturinn byrjar þannig að Haley er á leið í sjúkrabílinn því að hún er að fara að eiga. Á leiðinni missir hún útskriftarræðuna sína og Brooke tekur hana upp til...

Peyton Sawyer - Hilarie Burton (31 álit)

í Sápur fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Ég ákvað að taka þátt í þessu greinaátaki og skrifa um Peyton Sawyer í One Tree Hill, leikna af Hilarie Burton. Hilarie Hilarie fæddist 1.júlí 1982 í Virginu og var skírð Hilarie Ross Burton. Foreldrar hennar heita Bill og Lisa og hún á fjögur systkin, eldri systurina Natalie og yngri bræðurna Billy, John og Conrad. Hún gekk bæði í New York háskólann og Fordham háskólann. Nú býr Hilarie með Ian Prange sem er aðstoðarmaður við leikstýringu á One Tree Hill. Það er saga í gangi um að þau séu...

One Tree Hill 21.júlí (13 álit)

í Sápur fyrir 17 árum, 9 mánuðum
One Tree Hill 21.júlí Peyton vaknar í rúminu hans Jake. Jake stendur í dyrunum og segist hafa þurft að sofa með Jenny í sófanum því að hún hafi verið svo óróleg. Jake bíður henni með þeim í gönguferð í garðinum. Damien West úr Oak Lake reynir við Haley. Nathan kemur og Damien fer að segja að leiktíðin hjá Ravens sé búin, þeir geti ekki neitt. Peyton kemst að því að Jake sér Jenny aðeins tvo daga vikunnar því að foreldrar Nicky hafa forræðið yfir henni. Jake má ekki fá stöðumælasekt og þá er...

Besta jólagjöfin (7 álit)

í Hátíðir fyrir 18 árum, 4 mánuðum
19.desember “Mamma má ég fá svona?” Dóttir mín leit á mig og benti á prinsessu-barbie. “Gerðu það mamma.” Hún horfði biðjandi á mig. Ég dæsti, leit á verðmiðann og svo ofan í hálftómt veskið mitt. “Kannski færðu þetta í jólagjöf,” sagði ég, þótt ég vissi að það myndi aldrei gerast. “En mamma, Lísa fékk svona, ekki í jólagjöf, og líka Bára og Jóna,” sagði Ólöf, fjögurra ára dóttir mín. “Elskan mín, ég á bara ekki pening núna,” sagði ég og horfði djúpt í augu dóttur minnar, sem fylltust tárum....

Minningar (7 álit)

í Börnin okkar fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Minningar Ég sá greinarnar hjá katabeibz, honeynut og klo og mér fannst þetta svo sniðugt að ég bara varð að skrifa niður nokkrar minningarnar mínar. Þegar ég var 5 ára eignaðist ég bestu vinkonu sem er tveimur árum yngri en ég. En svo árið sem hún myndi byrja í skóla þá flutti hún í burtu og ég var svo leið að ég gat ekki talað um það heillengi. Svo flutti hún ekki sama dag og ég hélt og svo dinglaði hún morguninn eftir að við héldum að hún hefði flutt og ég var svo glöð að ég dansaði um...

One tree Hill -persónuálit (4 álit)

í Sápur fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Persónuálit One Tree Hill Lucas: Hann er uppáhalds karlkyns persónan mín. Hann er alinn upp af mömmu sinni og er frekar óvinsæll, en byrjar svo í körfuboltaliði skólans. Þar veitir hann strákunum harða samkeppni og hálfbróðir hans, Nathan, verður til þess að honum er endalaust strítt. En svo urðu hann(Lucas) og Nathan ágætir vinir. Nathan: Hann byrjaði sem þessi týpíski ofdekraði krakki. Svo breyttist hann þegar hann kynntist Haley og er nú frábær persóna. Haley: Hún var með uppáhalds...

Hataðast & elskaðast (6 álit)

í Sápur fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Hataðast & elskaðast Hataðasta sápan! Leiðarljós Ég skil ekki hvernig fólk getur horft á þetta…þetta er svo gamaldags myndir og alltof væmið. Endalaust framhjáhald og eitthvað svoleiðis og ekkert spennandi að gerast. Allir þættirnir eru eiginlega eins, grenjað, framhjáhald, grenjað meira, sagt ég elska þig og svo grenjað ennþá meir. Persónulega finnst mér þessir þættir alveg vonlausir og fyrir neðan allar hellur að vera að sýna þá á Íslandi, er ekki nóg að útlendingarnir kveljist. Elskaðasta...

Jól á síðustu stundu (6 álit)

í Hátíðir fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Fyrir jólasagnasamkeppnina Jól á síðustu stundu Á Norðurpólnum var margt í gangi þessa dagana, því eins og allir vita fá álfarnir alltaf einn mánuð í kvíld efitr hátíðina og vakna aftur þegar hanaklukkan galar. En þetta ár var allt öðruvísi. Það var fyrir tilviljun að álfarnir og sveinki voru vakandi þessa stundina, og samt var kominn desember. Það var allt Grínlíusínuse að kenna, hann hafði verið fátækur sem barn og fengið fáar gjafir og því vildi hann að allir lentu í því sama. Þess vegna...

Ég vil bara fá snjó (12 álit)

í Hátíðir fyrir 19 árum, 4 mánuðum
“Ég vil bara fá snjó.” Áróra sat við gluggann og horfði út. Það var Þorláksmessa og enn skein sólin og var 15°hiti. En enginn snjór. Ekki það hún byggist neitt sérstaklega við snjó, það hafði ekki verið snjór á jólunum nema einu sinni síðan hún fæddist og nú var hún 6 ára. “Áróra komdu, við erum að fara að kaupa jólagjöfina handa Ernu,” kallaði mamma hennar innan úr forstofu. Erna var óþolandi eldri systir hennar. Hún var algjör andstæða við Áróru, Áróra var frekar þybbin og fannst mjög...

flipp!!! familyan mín (3 álit)

í The Sims fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Já, loksins bý ég til einhverja sims sögu. ég veit hún er ekkert spes en vona að hún verði samþykkt. 1.hluti Ég bjó til fjölskyldu með konunni Jennifer sem hafði markmiðið vinnu karlinum Keith meða markmiðið vinnu og gömlu konunni, mömmu Jennifer, sem ég fann ekkert nafn á og skírði þessvegna grandmother:P(þó hún sé ekki amma) og lét hana fá fjölskyldumarkmiðið. Ég byrjaði á að láta þau flytja inn í ódýrasta húsið með ljótustu gólfteppum og ljótasta veggfóðrinu og lét þau fá lélegasta...

Óttinn (1 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 5 mánuðum
ÉG vil taka það fram að þetta er um það sama og Sorgin sem e´g sendi inn fyrir stuttu, nema þetta er frá sjónarhorni mannsins. Óttinn Þokan læðist, hægt og hljótt. Konunni heima er ei rótt. Óttinn læðist, maðurinn hræðist. Ó hvað gerist, ó góðiGuð Í fönn sig grefur, snjóinn skefur, skónum af. Hvað ætli gerist. Hvað ætli verði. Ó mun ég lifa þetta af. Lífið farið, sál til himna, hjartað starfar ekki meir. Beinin grafin, ekkjan grætur, látinn er hann Freyr.

Sorgin (2 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Jæja, þetta er fyrsta ljóðið sem ég sem alveg sjálf svo ekki búast við neinu meistaraverki:P en hérna kemur það Sorgin Situr við gluggan, horfir út. Saknar mannsins, hjartað í hnút. Hann þurfti að hverfa. Gróf sig í fönn. Lífið farið, hún eftir situr ein. Tárin renna, hægt og hljótt. Konan grætur, komin nótt. Ljósin slökkna, allt er rótt, aðeins tárin renna hljótt. Hugsa ei nokkuð, vantar hann. Vantar hlýju og elskhugan. Lítill pollur, Táraflóð. Grætur konan, nóttin óð.

Holly Cooper og myrki dauðinn (4 álit)

í Harry Potter fyrir 19 árum, 6 mánuðum
3.kafli Boot-tvíburarnir Lágt, snákslegt hvísl barst með blænum “Hún er blóðtengd Harry Potter, hún hefur sama fífldjarfa blóð í æðum, hún getur orðið mér að falli, þið verðið að koma í veg fyrir það, hinn mikli Voldemort verður a lifa.” “Ég veit herra, ég reyni mitt besta við að ýta henni úr vegi. Ég geri allt fyrir þig herra,” sagði rödd full a skelfingu sem barst úr hringnum. “Eins gott fyrir þig því annars muntu verða gómsætt snákafóður fyrir Nagini,” sagði maðurinn með snákaröddina...

Holly Cooper og myrki dauðinn (5 álit)

í Harry Potter fyrir 19 árum, 6 mánuðum
2.kafli Sarah Hún tók við bréfinu og las það upphátt “Hogwart- skóli galdra og seiða Skólastjóri: Albus Dumbledore (Eftirmaður Merlins, Hæstráðandi seiðmaður Warlocks, Æðsti Mugwump, Meðlimur Alþjóðasambands Galdramanna) Kæra Fr. Grover Það er okkur sönn ánægja að tilkynna yður að þér hafið hlotist skólavist í Hogwart- skóla galdra og seiða. Meðfylgjandi er listi yfir bækur og nauðsynleg tæki. Önnin hefst 1.september og er tekin lest frá brautarpalli níu og þrem fjórðu. Við væntum uglu yðar...

Holly Cooper og myrki dauðinn (19 álit)

í Harry Potter fyrir 19 árum, 6 mánuðum
1.kafli Venjulegur dagur Holly Cooper var venjuleg 11 ára stelpa, fædd í mars. Hún var með rauðbrúnt meðalsítt hár og blá augu. Þessa stundina var hún sofandi en skær rödd móður hennar, Stellu Cooper, vakti hana, “Holly, þú þarft að fara á fætur ég og Ryan erum að fara í bæinn og þú þarft að passa John.” “Ohhh, frábært ég þarf aftur að passa John,” hugsaði hún og gretti sig. John var 7 ára gamall hálfbróðir hennar, feitur ljótur og leiðinlegur eins og flestir yngri bræður. Hann hafði unun af...

Harry Potter og fjársjóður Hogwarts (4 álit)

í Harry Potter fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Hérna kemur 14.kafli en ég ætla láta endan á 13.kafla með “Kurteis Ronald, kurteis.” “Æji Herm, ojj hvað þú getur verið pirrandi.” “Takk,” sagði Hermione sár og setti upp Ronald-Weasley-hlýddu-svipinn og sendi svo brennandi augnaráð til Rons. Svo lögðu þau af stað upp í kastala og skiptust á meiðyrðum. Þegar þau komu upp í kastala var maturinn að verða búinn svo þau flýttu sér að byrja svo þau fengju nú örugglega eitthvað. Eftir matinn fóru þau svo upp í Gryffindorturn að taka til skóladótið...

Harry Potter og fjársjóður Hogwarts 13.kafli (1 álit)

í Harry Potter fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Jæja nú er ég búin að komast að því að það verða í kringum 20-25 kaflar. 13.kafli Áætlun klár, bara biðin eftir Jólafríið leið hratt hjá strákunum, enda gaman hjá Hagrid og allt í einu voru stelpurnar komnar. Á seinasta degi frísins spruttu þær bara upp úr jörðinni. Harry sagði stelpunum frá áætluninni meðan Hermione setti upp þið-hefðuð-getað-beðið-eftir-mér-svipinn sem kom öllum til að hlæja. “Herm, auðvitað kláruðum við hana...

Harry Potter og fjársjóður Hogwarts 12.kafli (1 álit)

í Harry Potter fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Jæja hér er kominn kafli 12. Hann er tileinkaður Lyras sem er snillingur að nenna að fara yfir þetta rugl hjá mér. 12.kafli Jólin Næsta morgun vaknaði Harry eldsnemma og leit í kringum sig. Gólfið við rúmið hans var þakið gjöfum. Hann leit á Ron sem var einnig að vakna og leit á pakkahrúguna við hans rúm. Hún var með færri pökkum en Harrys en mun stærri. “Gleðileg jól,” sagði Harry og brosti. “Sömuleiðis,” svaraði Ron og stökk fram úr rúminu og lenti á milli tveggja pakka og byrjaði að skoða...

Harry Potter og fjársjóður Hogwarts 11.kafli (3 álit)

í Harry Potter fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Hér gerist ýmist hræðilegt, vill ekki eyðileggja svo ég segji ekki meira 11. kafli Enginn lifir endalaust Þegar þau komu upp í Gryffindor-turn sat Neville þar, stjarfur, með bréf í höndunum. Ron gekk inn og potaði í bakið á honum. Neville leit á hann og bréfið og hristi svo hausinn. Nú gat Hermione ekki lengur á sér setið og spurði varfærnislega “Kom eitthvað fyrir?” Neville rétti henni bréfið og þurkaði sér um augun. Hermioen leit á bréfið og sagði “Ohh, mér þykir svo fyrir þessu Neville!”...

Harry Potter og fjársjóður Hogwarts 10. kafli (1 álit)

í Harry Potter fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Um leið og ég sendi inn þennan kafla þakka ég lyras fyrir að vera svona mikill snillingur að nenna að fara yfir þetta rugl. 10. kafli Styrkurinn “Styrkinn, fékk ég virkilega styrk,” æpti hún en bætti svo við á lægri nótunum “en ég er bara blóðníðingur.” Og svo fór hún að gráta. “BARA BLÓÐNÍÐINGUR, láttu helvítið hann Draco Malfoy fá styrkinn, hann er að minnsta kosti með hreint blóð,” æpti hún á milli ekkasoganna. “Draco Malfoy segiru, hmm, best að kalla í hann og Lucius, nú er Malfoy farin...

Harry Potter og fjársjóður Hogwarts (15 álit)

í Harry Potter fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Jæja hér kemur loksins 9. kaflinn. Ég ætla seta hina fyrir neðan svo þið getið rifjað þá upp. 9.kafli Weasley númer 8 “Harry, Dumbledore sagði að ég mætti kenna varnir gegn myrku öflunum,” sagði hún. “ Frú Figg, en þú ert skvibbi,” sagði Harry dolfallinn. “Dumbledore er góður maður,” var eina svarið sem Harry fékk. Þegar frú Figg var farinn spurði Ron “Er þetta skvibbi? Á hún að kenna okkur?” “Hún er alveg ágæt, hún bjargaði mér frá vitsugum,” svaraði Harry. “Hver?” spurði Hermione sem var...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok