One tree Hill -persónuálit Persónuálit One Tree Hill


Lucas: Hann er uppáhalds karlkyns persónan mín. Hann er alinn upp af mömmu sinni og er frekar óvinsæll, en byrjar svo í körfuboltaliði skólans. Þar veitir hann strákunum harða samkeppni og hálfbróðir hans, Nathan, verður til þess að honum er endalaust strítt. En svo urðu hann(Lucas) og Nathan ágætir vinir.

Nathan: Hann byrjaði sem þessi týpíski ofdekraði krakki. Svo breyttist hann þegar hann kynntist Haley og er nú frábær persóna.

Haley: Hún var með uppáhalds persónunum mínum. Mætti alltaf á réttum tíma, góð við alla o.s.frv. En svo kynntist hún Chris og fór að verða of ánægð með sjálfa sig. Fer burt frá Nathan, vitandi það að það verður ekki eins ef hún fer.

Jake: Hann er frábær. Hann sat uppi með dóttur sína eftir að Nikki stakk af og svo þegar mamma hennar kemur aftur og vill fá hana þá fer hann í fangelsi í staðinn fyrir að láta hana fá Jenny. Það sýnir að hann vill bara það besta fyrir Jenny og mér finnst það ógeðslega krúttlegt.

Peyton: Hún er uppáhalds persónan mín. Fyrst fór voða lítið fyrir henni en svo allt þetta með mömmu hennar og samband hennar við Jake hefur breytt áliti mínu á henni. Þetta dæi með hana, Lucas og Brooke fékk mig til að setja hana á botninn á listanum mínum, en það hefur svo aldeilis breyst.

Brooke: Hún byrjar sem þessi týpíska vinsældardrottning. Mamma hennar og pabbi eru rík og hún fær allt, hún er klappstýra og kemur heim þegar hún vill. Svo heldur kærastinn hennar framhjá henni(samband þeirra er sem betur fer að lagast núna) og foreldrar hennar verða fátækir. Þá þarf hún fyrst að fara að vinna fyrir sér og finnst henni frekar erfitt.

Nicki: Þetta er ömurlegasta manneskjan í þáttunum. Fara frá Jake og skilja hann eftir með Jenny og koma svo bara til baka og ætlast til þess að hún geti fengið hana aftur. Og svo náði hún henni. Helv**** b****!!!!!

Karen: Hún er þessi týpíska mamma. Hugsar voða vel um Lucas og gerir mjög lítið fyrir sjálfa sig því hún vill alltaf vera hjá honum.

Dan: Hann er skíthæll, SKÍTHÆLLLLL!!!!! Til dæmis þetta með Keith og Jules og þegar hann var að prófa Lucas. Ég HATA hann.