Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

enter
enter Notandi frá fornöld 70 stig

Re: Sigur!

í Deiglan fyrir 18 árum, 3 mánuðum
Mikael er víst strax komin i nýja vinnu, og Jónas líka;o) http://tinypic.com/view/?pic=k4k12s

Re: Mmc colt '91 til sölu.

í Bílar fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Hvad er stór vél í honum.?? hve margar hurdir??

Re: Má hundurinn koma með ??

í Hundar fyrir 21 árum, 12 mánuðum
OK. ég meina kannski ekki að fólk megi fylla strætó af hundum. Ég átti við að úti sá maður mikið af fólki með smáhunda í strætó. Og þá voru þeir hafðir í “hundatöskum”, ekki hlaupandi um strætóinn, mígandi og skítandi. Það sem ég vil er meira frjálsræði fyrir hundeigendur. Það ríkir einhverskonar paranoja gagnvart hundum í þessu landi. Þeir mega hvergi sjást án þess að einhver byrji að væla. Þeir eru bannaðir í sumarbústöðum, tjaldstæðum, hótelum, almenningsgörðum og where ever. Skil ekki af...

Re: Hvers vegna þessi andúð?

í Deiglan fyrir 21 árum, 12 mánuðum
Er ekki bara málið að við erum ekki komin alveg nógu langt í þessari þróun, að virða rétt samkynhneigðra? Ég held að þetta eigi eftir að lagast með tímanum. Ég held að margir krakkar sem eru haldnir “hommafóbíu” séu einfaldlega hræddir um að fá á sig einhvern hommastimpil. Ég man að þegar ég var krakki, var einn hommi í skólanum. ALLIR strákarnir í skólanum lögðu hann í einelti og hann átti bara stelpuvinkonur… EN um leið og hann(homminn) kom út úr skápnum og viðurkenndi samkynhneigðina þá...

Re: Bíll óskast

í Bílar fyrir 21 árum, 12 mánuðum
Villtu charade? færð hann á 35 þús.

Re: Daihatsu Charade

í Bílar fyrir 21 árum, 12 mánuðum
Svona 40 þúsund. (má semja um allt)

Re: GEFINS MAC TÖLVA!!!!

í Leikjatölvur fyrir 22 árum
Já, ég er búin að senda þér heimilisfangið. Láttu mig vita ef það kemst ekki til skila, ég kann nebbla ekki of mikið á tölvur.

Re: Mjög áhugavert

í Deiglan fyrir 22 árum
Voooó, samtök sem berjast gegn rasisma my ass!!! Ég sá frá þessum fundi á sky news (held að það hafi verið þessi fundur) og ég á ekki orð. Þar talaði A sharon og fleiri ísraelar og þeir svoleiðis rökkuðu niður palestínumenn.

Re: Hugleiðing, að lifa sem námsmaður

í Deiglan fyrir 22 árum
Ég er sammála, Þetta er ömurlegt kerfi. Það að taka námslán er dans á rósum hjá öllum… Ég tók námslán fyrir nokkrum árum og er búin að vera að borga af þeim samviskusamlega. Svo fékk ég yfirlitið og það var búið að hækka upp úr öllu valdi… Ég hafði náttúrulega ekki spáð í þessu 18 ára gömul þegar ég tók lánið að þau eru vísitölutengd. Ég verð með þetta lán á bakinu hálfa ævina. Og ef skólafólk og aðrir eru duglegir að vinna þá annað hvort bitnar það á náminu eða allt dregið í skatt. Ég á...

Re: loftbyssur

í Deiglan fyrir 22 árum
Já, pottþétt. Fyrst að það má ekki láta sjá sig með þetta úti á götu hér á ísl. þá má alveg örugglega ekki rölta með þetta í gegnum tollinn. Minnir að það hafi verið að sýna í fréttunum það sem tollverðir hafa tekið af fólki og þar voru loftbyssur innanum allskonar drasl.

Re: Stöðutákn að eiga ákveðna hundategund?

í Hundar fyrir 22 árum
Er það ekki bara það að eiga sem dýrastan og sjaldgæfastan hund. Það er örugglega eins og með bílana. Sumir vilja risa jeppa á meðan aðrir eru á flottum sportbílum. Ef ég ætti helling af peningum þá yrði það fyrsta sem ég myndi fá mér grade dane hundur. Jeminn ég er ástfangin af þessari tegund… Mitt stóra markmið í lífinu er að eignast svona hund.. hvernig sem ég fer að því.

Re: -verð ég feit eða heit-

í Heilsa fyrir 22 árum
Ég veit bara að ég keypti mér 10 tíma kort í eurowave og sogæðanudd og ég veit ekki hvað. Eftir margra klukkutíma kvöl og pínu leit ég ekkert betur út og var mörgum þúsundköllum fátækari…. Þetta virkar ekki shit.. Ok kannski virkar þetta á suma, þeir sjá árangur fyrst og verða voða ánægðir. Svo eru tímarnir búnir og um leið fara þeir í sama farið aftur. Þetta virkar bara á meðan á meðferð stendur, og ekki mínútu meir. Það kalla ég ekki árangur. Skammtímalausn í mesta lagi. Þetta er ekkert...

Re: Paece4all

í Deiglan fyrir 22 árum
Þú ert ekki alveg í lagi davidjons….. “LIFI ÍSRAEL OG PEACE4ALL, DREPUM PALESTÍNUMENN OG ARABA!!!!!” Ég á ekki orð yfir þig….. Það eru einmitt svona menn eins og þú og félagi þinn P4A sem eyðileggið allar málefnalegar umræður með einhverjum fáránlegum yfirlísingum sem engin nennir að hlusta á eða lesa…. Er sammála hinum, það ætti eiginlega að reka þig út héðan líka fyrir þessi orð þín.. Mætti einmitt halda að þú værir að þjappa p4a eins og einhver sagði, eða vantar þig bara einhvern til að...

Re: Lestu þetta og taktu þátt.

í Deiglan fyrir 22 árum
Sammála danna. Það getur vel verið að einstaka kynferðisafbrotamenn þjáist einnig af geðsjúkdómum en ég skal ekki viðurkenna að kynferðislegur áhugi á börnum sé sjúkdómur. Menn sem ekki geta haft stjórn á kynferðislegri áráttu sinni til barna meiga brenna í helvíti fyrir mér. Ég get ALDREI vorkennt manninum sem misnotaði 4 ára frænku mína og sagt “æ greyið, hann er með sjúkdóm. þetta er ekki honum að kenna” ALDREI… Það er ekkert sem getur afsakað gjörðir hans. Þetta var maður...

Re: Er þetta sjúkdómur.

í Deiglan fyrir 22 árum
HMMM… Ég var eiginlega með sömu pælingar og vinur þinn…. En veit samt ekkert fyrir víst frekar en nokkur annar um þessi mál. Ég þekki samkynhneigt fólk og hef ekkert á móti því, þvert á móti. Ég held samt að það sé alveg eðlilegt að fólk velti þessu fyrir sér hvort þetta er “eðlilegt” eða ekki. Þegar maður spáir í þetta þá þekkist þetta ekki meðal annara dýrategunda. Við erum sköpuð til að viðhalda mannkyninu. s.s það er hlutverk hverrar tegundar að viðhalda þróuninni. Ég á t.d hesta… og ef...

Re: Vill einhver hirða mac tölvu??

í Leikjatölvur fyrir 22 árum
Heyrðu ég meilaði á þig heimilisfangið mitt. Ef það kemst ekki til skila láttu mig þá endilega vita. EIns og ég sagði þá er ég engin tölvugúrú og stór möguleiki á að ég klúðri þessu.

Re: Hryðjuverk...

í Deiglan fyrir 22 árum
Í sómalíu var fólk að svelta. Um 300 þús manns dóu úr hungri(minnir að það hafi verið 300þ). Hungur var sterkasta vopnið á almúgann í sómalíu. Sniðugt, ekki satt? Hefuru kannski spurt þig að því hvað hefði orðið T.d í sómalíu ef USA hefði ekki skipt sér af því? En auðvitað er rétt hjá þér að það eru 2 hliðar á öllum málum og Usa duglegri við að birta sína hlið fyrir almenningi.. USA hafa líka gert marga góða hluti, ekki gleyma því….

Re: Bara Ísraelum að kenna?

í Deiglan fyrir 22 árum
Ég get skilið að Palestínumenn (og fleiri arabaþjóðir)séu fúlir út í USA. Ísraelar hafa gengið á skítugum skónum yfir rétt Palestínumanna, framið fjöldamorð, eyðilagt heimili þeirra og það allt með samþykki og aðstoð USA.(margt án þeirra vitundar, en samt) Til að byrja með fengu Ísraelar þetta land frá vestrænum ríkjum(bretum) gegn samþykki arabaríkjanna.. Auðvitað áttu arabaríkin að fá eitthvað að segja um þetta mál en fengu ekki. Það sem ég á við að mér finnst það ekki skrítið þó mörg...

Re: Tilgangur eða hvað?

í Deiglan fyrir 22 árum
Af hverju drífir þú þig ekki bara að lesa bókina. Það er ekkert mál að ná þessu ef maður nennir að læra. hmmmm. segi ég, kennarinn minn lét okkur fá afrit af prófum og ég var svo heppin að lenda einmitt á sama prófi í prófinu sjálfu. Talandi um ábyrga kennara….. Þeir taka sumir prófið fyrir mann. Verklegi prófdómarinn svaraði spurningum sínum sjálfur áður en maður náði að svara honum. Hann var ekkert að nenna þessu.

Re: Palestínumenn og Ísraelar sami kynþátturinn

í Deiglan fyrir 22 árum
Hvað meinaru “þeir hafa sagt það og þá eru þeir kynstofn” daaaaaaaaa En ef vottar jehóva segja að þeir séu kynstofn, gildir það???? djísús, Ef gyðingar eru kynstofn, þá geta allir trúarhópar orðið kynstofn… Gyðingar eru þjóð(ekki það sama og kynstofn), frá því 1948 eða 49 þegar þeir lýstu yfir sjálfstæði sínu. EN kynstofn, NEI litli minn….

Re: Bara Ísraelum að kenna?

í Deiglan fyrir 22 árum
Kannski ekki svo skrítið að Arabaheimurinn sé fúll út Í USA. Þeir hafa alltaf veitt andstæðingum þeirra stuðning og sínt ástandi þeirra lítinn skilning. Usa þyrfti kannski að reyna að breyta ímynd sinni Meðal arabalandanna til hins betra. Ef þeir vilja frið við þá, þá verða þeir að amk að sína málefnum þeirra skilning. Segi ekki að Usa eigi að taka upp hanskann fyrir araba en eins og almenningsálitið á Palestínumönnum er í Usa þá má sjá að þeir hafa litla vorkunn meðal bandarísku...

Re: Hryðjuverk...

í Deiglan fyrir 22 árum
Sæll Falcon1 Þú skrifar: “Þannig að í raun getur Palestínska þjóðin kennt sér sjálfri um hvernig ástandið er í dag, að nokkru leyti að minnsta kosti.” Ég bara spyr, Dettur einhverjum í hug að það sé hægt að rífa af einni þjóð helminginn af landi þeirra til að planta þar annari þjóð sem þangað til hafði alltaf verið í miklum minnihluta án þess að af hljótist stríð eða amk ágreiningur? Það held ég varla… Þannig að viðbrögð arabaríkjanna við þessaru óréttlátu meðferð voru vissulega skiljanleg...

Re: LESTU! Islömsk hryðjuverkasamtök myrða EIGIN börn!

í Deiglan fyrir 22 árum
einmitt… Það eru til öfgafullir vitleysingar í öllum trúarhópum. Það er nefnilega útbreytt meðal almennings að allir arabar séu ruglaðir og berji konur og börn… Ég hélt það líka einusinni þangað til ég fór að lesa bækur um fólk sem býr í arabalöndunum… Fólkið þarna er misjafnt eins og við hin. Og alls ekki allir sem eru sáttir við hvernig ástandið er þarna og vilja breytingar á t.d rétti kvenna. En Þeir sem stjórna þessum löndum eru hins vegar yfirleitt strangtrúaðir og þessvegna litlu hægt...

Re: Palestínumenn og Ísraelar sami kynþátturinn

í Deiglan fyrir 22 árum
Hvernig dettur þér þetta í hug alltsaman…. Er þá ekki hægt að kalla votta jehova, eða baháa kynþátt. Þeir eru alveg jafn mikill kynþáttur og gyðingar ef farið er að þínum “rökum” að skipta fólki niður í kynþætti eftir trúarbrögðum….. Ég held þú sért fyrir löngu búin að sjá hvað þetta er vitlaust en getur ekki bakkað með það af ótta við að missa “andlitið”. Fyrir utan það þá eru gyðingar bara ósköp venjulegt fólk eins og við sem ákvað að safnast saman og stofna sjálfstætt ríki. "ok, vottar...

Re: LESTU! Islömsk hryðjuverkasamtök myrða EIGIN börn!

í Deiglan fyrir 22 árum
Það er nú bara yfirleitt þannig að þegar t.d fátækar þjóðir eiga í stríði þá er gripið til svona ógeðslegra aðgerða.. Palestínumenn eiga ekki heri, engin almennileg vopn miðað við Ísraela og þess vegna verða þeir að grípa til svona örþrifaráða. Þetta er ekki eina stríðið þar sem maður sér börn eða konur á vígvöllunum. Það er samt ekkert sem réttlætir svona aðgerðir.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok