Ég er mikið að spá í hvernig trimmform virkar. og allt þetta kjaftæði.
Ég er nýbyrjuð að æfa í líkamsrækt og það gengur bara vel en ég ætla mér svo mikið að vera í flottu formi eftir sumarið að það eitt dugar ekki bara.
ég veit að með öllum þessum rafleiðnimeðferðum og fleira, eru alltaf leiðbeiningar um að drekka vatn og hreyfa sig með.(sem er einmitt ástæða þess að maður grennist)en ég var að spá í hvort eitthvað væri að marka þetta.
Athugið að ég er að spá í þessu sem vaxtarmótun en ekki megrun. allavega heyri ég fullt af strákum tala um að þetta trimform virki, og þá fyrst fer ég að trúa. En semsagt ef þú hefur eitthvað til málanna að leggja, veist eitthvað um þetta, eða hefur prufað þetta, þá endilega komdu með svar.

hér er grein frá netdoktor.is, sem er einmitt um þetta. En þetta svar kemur frá Ágústu Johnson sem rekur líkamsræktarstöð. og ef hún myndi mæla með þessu þá færi fólk væntanlega bara í trimmform. (nei, bara pæling)

Hverjir eru kostir og ókostir Trimform?
Spurning:

Mig langar til að fræðast um TrimForm, gagnsemi þess og hugsanlega ókosti. Hafa verið gerðar einhverjar marktækar rannsóknir á því?

Með fyrirfram þökk.


Svar:

Trimform, Slendertone, Strata 1.2.3. og Eurowave eru svokallaðar rafleiðnimeðferðir. Rafleiðnimeðferð getur vissulega haft miklu hlutverki að gegna þegar um endurhæfingu fatlaðra einstaklinga er að ræða enda var þessi meðferð upphaflega fundin upp í þeim tilgangi. Þá er hægt að örva vöðva sem viðkomandi getur ekki þjálfað vegna fötlunar sinnar. Stækkun á vöðvum er hinsvegar óveruleg eða engin. Sem leið til fitubrennslu er rafleiðnimeðferð nánast gagnslaus. Ástæðan fyrir því að fólk missir einhverja sentimetra eftir einn tíma getur tengst tilfærslu vatns í líkamanum. Í þeim tilfellum sem fólk, sem gengist hefur undir slíka meðferð, hefur grennst töluvert er ástæðan sú að samhliða rafleiðnimeðferðinni hefur verið dregið úr hitaeininganeyslu. Þegar markmiðið er að styrkja vöðva og brenna fitu er eina raunhæfa leiðin að stunda reglubundna hreyfingu og gæta hófs í matarneyslu.

Kveðja,
Ágústa Johnson