Ef það er orðatiltæki sem hefur verið í tísku þennan veturinn er það hryðjuverk. Það er alveg sama hvað það er og hversu alvarlegt það er, allt er kallað hryðjuverk. Það er langt síðan maður horfði á fréttir án þess að hafa heyrt minnst á þetta leiðinlega orð. Upphafið að þessari merku tískubólu er að sjálfsögðu “lágflugin þrjú” í Bandaríkjunum 11. september og tengingar þeirra við arabaheiminn. Þegar maður upplifir þetta svona í beinni er ekki annað hægt að segja að maður hafi verið sleginn yfir þessu öllu. Þegar ég fór hins vegar að hugsa um þetta allt í sögulegu samhengi er þetta hins vegar ef til vill ekki eins stór atburður og ætla mætti. Helsta ástæða þess að þetta er eins stórt mál og það er, er að þetta var gert gagnvart vestrænu ríki á “friðartíma” og ekki nóg með það, heldur hin einu sönnu Bandaríki, sem aldrei hafa gert neitt slæmt af sér…
America is the home of the hypocrite!
Þarna létust u.þ.b. 4000 manns og miðað við hausatölu er eins og um hafi verið að ræða fjóra Íslendinga (þar sem Bandaríkjamenn eru þúsund sinnum fleiri en Íslendingar). Reyndar létust fjórir Íslendingar í flugslysi í ágúst 2000 og mætti allt eins kalla það hryðjuverk, sem það var að vissu leyti. Þessir 4000 sem létust þykja ekki margir þegar þeir eru bornir saman við gyðingana sem voru drepnir í helförinni í seinni heimsstyrjöldinni, sem skiptu milljónum. Þar voru á ferðinni kristnir menn sem voru að aflífa gyðinga, svo er verið að segja að arabar séu slæmir. Allir sem hafa eitthvað vit í kollinum vita að það eru kristnir menn sem eru mestu morðingjar sögunnar. Í dag eru það þó Bandaríkjamenn sem reyna að halda uppi þessum gyðingum í Ísrael og er eina ástæða sem ég veit um hinn mikli fjöldi gyðinga í Bandaríkjunum. Ég get ekki betur séð en að það séu Ísraelar sem eru helstu hryðjuverkamennirnir í heiminum í dag…
America is the home of the hypocrite!
Til að víkja að fleiri blóðböðum sem tengjast beint bandaríkjamönnum sjálfum má benda á hreinsanir þeirra á frumbyggjum Ameríku. Þar myrtu “Bandaríkjamenn” slatta af milljónum frumbyggja svo þeir hefðu sjálfir nóg pláss í þessari “litlu” heimsálfu. Svo maður vitni nú í texta The Violent Femmes:
“Look at the indians, look at the blacks, look at the figures, look at the facts, the facts not the lies, when you find out, big surprise. America is the home of the hypocrite!”