Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Geimverur?

í Geimvísindi fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Löngu búið að sanna það? Ég sé ekki hvernig það á að vera hægt að sanna það að ekkert vitsmunalíf sé að finna í alheiminum utan jarðar, auk þess þarf það ekkert að vera vitsmunalíf, minnsti einfrumungur getur talist geimvera.

Re: Enskar bækur

í Bækur fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Síðan á 13 ára aldri þegar ég las Harry Potter 4, LOTR 1,2 og svo seinna 3, reyni ég að lesa sem allra flest á ensku frekar en íslensku, þýddar bækur er aldrei það sama.

Re: Vodafone vs Síminn

í Farsímar fyrir 22 árum, 9 mánuðum
MMS er rosalega sniðugt, það eru fleiri og fleiri símar með það, það er hægt að senda talsvert fleiri orð en í SMS, og hægt að senda nærri öll skráaform, sama hvort síminn lesi það eða ekki. Þetta finnst mér ofsalega sniðugt :D

Re: Helvítis spamið

í Netið fyrir 22 árum, 9 mánuðum
í sambandi við Spam-póst 1. Aldrei opna póst ef þú býst ekki við honum á nokkurn hátt… t.d. ef fyrirsögnin er “you have won…” eða “want a penis enlargement?” og frá einhverjum “erj1223@mail.com” eða… þú veist…. 2. Skráðu emailið þitt sem sjaldnast, sérstaklega ekki samtök sem þú veist ekkert um, gestabók eða annað slíkt opinbert rugl. 3. Fáðu þér forrit eða þjónustu sem býður uppá það að sía burt líklegan ruslpóst.<br><br>Það eru alltaf tvö möguleg svör við hverri spurningu, nema þegar það...

Re: Tillögur að betra menntakerfi

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Uss, þetta málefni styður Samfylkingin líka get ég sagt þér.

Re: Nauðganir

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Intifada: “Ef einhver ætlar sér að nauðga þá gerir hann það, bara eins og ef einhver ætlar sér að stinga einhvern eða keyra yfir á rauðu ljósi, þá bara gerir hann það, sama þó að það sé einhver herferð geng því í gangi.” Það eru tveir hlutir sem svona herferðir fá aðallega áorkað… 1. Að vara konur við, svo þær passi að drekka ekki of mikið eða gera sig að fórnarlambi með öðrum hætti. 2. Að minnka líkurnar á því að karlar láti sér detta það í hug að nauðga. Svo held ég að svona í flestum...

Re: Fyrir hvern er Pétur Blöndal á alþingi?

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Skattar eru ekki bara peningur sem ríkið kýs að taka af þér upp á djókið, þeir fara raunverulega í eitthvað, og í hvað fara þeir? Þeir fara í sjúkraframlög, barnabætur, atvinnuleysisbætur, vegi, skóla o.s.fr. Þegar skattar eru lækkaðir þarf líka að skera niður einhver útgjöld. Flatur 18% skattur þýðir líka að ríka fólkið, kannski þú þar á meðal, þurfa að borga miklu minna. Þetta kallast frjálshyggja og er aldrei í hag þeim sem eru með 100 þúsund á mánuði.

Re: Árni Johnsen

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Mér finnst fáránlegt að fólk láti sér detta þetta í hug yfirleitt, kannski hefði bara aldrei átt að dæma Charles Manson, svo ágætur tónlistarmaður.

Re: Vodafone vs Síminn

í Farsímar fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Mér finnst FÚLT að íslandssími tók yfir tal, mér finnst líka böggandi að OgVodafone styður EKKI MMS skilaboð, fúlt?

Re: Mr. Ógeð !! (Steingrímur Njáls.)

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 9 mánuðum
ég verð að vera sammála Asmodeus, þetta er sick maður, en öll umræða á landinu um barnaníðslu má ekki einskorðast við þennan eina mann, hann fær áreiðanlega svona 20 símaöt á dag…

Re: Vandamál hjá unglingum í dag

í Tilveran fyrir 22 árum, 9 mánuðum
meaniac: “Sko ég er 15 að verða 16 og er mjög seinþroska miðað við aldur. 'Eg hef drukkið mig fullann 3 sinnum og er bara hæstánægður með það, það ekkert að því að drekka!” Enda hjálpar greinilega svona uppá þroskann að drekka.

Re: Fullt af bröndurum.

í Húmor fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Fullt af bröndurum?

Re: Tveir fínir

í Húmor fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Heyrði þá báða fyrir lööööööngu.

Re: Mjög löng bið...............

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ég fór líka um daginn á T3, ég var búinn með mestallt poppið áður en myndin byrjaði, ótrúlegt að fólk kvarti ekki meira en þetta….

Re: Samkeppni: sumum skylda, öðrum bönnuð

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Jú, svo er ég líka þvingaður til þess að stela ekki.

Re: Hver stígur fyrsta skrefið?

í Rómantík fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Svo er nottla umdeilanlegt hvað fyrsta skrefið er… hvort það sé fyrsta bendingin, fyrsta viðreynslan eða heimboðið eða hvað…

Re: Samkeppni: sumum skylda, öðrum bönnuð

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
C'mon, hver er að beita hvern þvingunum?

Re: Samkeppni: sumum skylda, öðrum bönnuð

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Þarna gat samt Hagkaup ekki nýtt sér ráðandi markaðsstöðu til að undirbjóða. Hins vegar ef að stóru fyrirtækin eiga auðvelt með að kæfa smærri samkeppnisaðilana er það ekki gott fyrir hvorki einstaklings- eða þjóðarefnahaginn.

Re: Samkeppni: sumum skylda, öðrum bönnuð

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Jæja, þá væri ekkert mál fyrir stóru fyrirtækin, t.d. baug, að þegar einhver nýr samkeppnisaðili kæmi gætu þeir bara undirboðið í Bónus eða eitthvað, þá nota þeir sér bara gróðann úr öðrum hlutum samsteipunnar á meðan þeir kæfa fyrirtækið, væri það sanngjarnt?

Re: Samkeppni: sumum skylda, öðrum bönnuð

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Þegar fyrirtæki notar sér aðstöðu sína til að undirbjóða og ganga þannig frá smærri keppendum er það ósanngjörn samkeppni, það eru líka fleiri þannig aðstæður, þetta er ekki nema eðlilegt.

Re: Samkeppni: sumum skylda, öðrum bönnuð

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
gunnarh: “Samkeppni er af hinu slæma, samkvæmt Ingibjörgu…” Hvern fjandann áttu við með því?

Re: Vandamál hjá unglingum í dag

í Tilveran fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Það sem mig langar líka að vita er hvort eldri kynslóðirnar hafi gert þetta líka, hvort að tannlæknirinn minn hafi verið drekkandi á 15 ára aldri, eða að þetta hafi bara verið óþekkt, hvort að krakkarnir sem gerðu þetta hafi bara haldið áfram lífinu og ekkert öðruvísi…

Re: Viggó viðutan

í Myndasögur fyrir 22 árum, 9 mánuðum
*franskar/belgíska

Re: Viggó viðutan

í Myndasögur fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Þetta eru bókstaflega uppáhaldsmyndasögurnar mínar. Franskar myndasögur rúla. :)

Re: FORDÓMAR HUGLAUSRA Íslendinga ,einelti og fámenni

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Þetta eru miklar alhæfingar um heila þjóð, vissulega gætir þessarra galla í þjóðfélaginu og eru allt of áberandi, en því miður er þetta líka áberandi í öðrum löndum.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok