Ég var að lesa grein hérna inná þessu áhugamáli eftir “Pittur” þar sem hann talar um þennan ógeðslega mann (Steingrím Njálsson). Ég verð nú að vera sammála honum um það að það er erfitt að finna svona greinum stað, en ég ákveð samt að hafa þetta hér. Ég allavegan las greinina og öll álitin sem á eftir henni komu og ég tók eftir því að flest öllum er illa við þennann mann og fólk vill að hitt og þetta verði gert við hann. Ég er ALLS EKKI að styðja þennann viðbjóð, en í alvörunni… er hann eitthvað verri en hinir ógeðslegu djöfuls perrarnir og barnaníðingarnir ?? Það er til nógu andskoti mikið af svona fólki hér á landi en einhvernvegin þá lendir Steingrímur alltaf í verstu umræðunum, eins og hann hafi gert eitthvað verra en aðrir sem eru á hans róli ! Auðvitað ætti maðurinn ekkert að ganga laus, hann ætti að vera lokaður inná einhverskonar stofnun eða geðveikrahæli.. En er ekki of mikið þegar fólk fer að tala um að drepa hann og gelda hann og eitthvað í þá áttina ?? Ég meina afhverju ekki bara að gelda og myrða alla íslendinga og þá verða engin börn misnotuð, og ennþá betra.. Enginn sem getur gert það ! Þá getum við öll dáið hamingjusöm :) HALLÓ !!!! Þetta er EINN maður af MÖRGUM sem gerðu/gera mistök… hann komst ekki upp með það, sem hann átti heldur ekki að gera, en hvað með hina, sem komust/komast upp með þetta ? Eigum við bara að gleyma þeim ? Við vitum ÖLL að þeir eru til, en það bara vilja ekki allir viðurkenna það !