Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Frásögn ungrar stúlku!

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Ibbets: Þú skalt ekki reyna að segja mér það að nokkur maður láti frekar bjóða sér það að vera á atvinnuleysisbótum frekar en að vera í vinnu(sem borgar meira en 300kall á tímann). Eða.. jújú, má vera að það séu einhverjir aumingjar sem nenna ekki neinu og láta bara ríkið borga sér, en þá er það mikill minnihluti. Þessi manneskja sem þú þekkir sem lifir á styrkjum á það fullkomlega skilið ef hún sér um börn/barn og er í skóla á sama tíma. Systir mín er núna í menntó og þarf að vinna fyrir...

Re: Fimm uppáhalds trommararnir mínir

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Fredrik: “1. Bill Ward (Black Sabbath) 2. Lars Ulrich (Metallica) 3. Nicko McBrian (Iron Maiden) 4. John Bonham (Led Zeppelin) 5. Dave Grohl (Nirvana)” Gaman að sjá einhvern setja Bill Ward í fyrsta sæti.

Re: 3 skrýtnir

í Húmor fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Ja, hommabrandarinn er svolítið yfir strikið, en þessi þriðji er nú varla rasistabrandari, öllu heldur ádeila á rasisma.

Re: Er líf annarstaðar en hér?

í Geimvísindi fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Ég held nú ekki að líkurnar séu svona óendanlega litlar eins og þú ert að láta, svo þarf líf ekkert að þýða vitsmunalíf.

Re: Er eitthvað ískyggilegt í gangi?

í Geimvísindi fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Sennilega var þetta loftsteinn eða gervihnöttur að brenna upp, þá hefur svo brot klofnað frá og farið aðra leið(þegar það var eins og eitthvað skytist úr því).

Re: Er HABL geimvera?

í Geimvísindi fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Reyndar er hægt að skýra flensufaraldinn 1917-1919 með því að flensuveiran breytir sér reglulega genafræðilega séð(þessvegna er svona erfitt að búa til meðal við henni), og þarna blönduðust tvær veirur sem komu út í sérlega skæðri flensuveiru.

Re: Líkami fyrir lífið..

í Heilsa fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Fita er nú líka mjög nauðsynleg og raunar benda rannsóknir til þess að kolvetni fiti meira en fita.

Re: Frásögn ungrar stúlku!

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Ég segi svosem ekki endilega að þetta tilfelli sé sérstaklega ríkinu að kenna, EN… fulltrúar sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórninni eru margir hverjir(eða flestir) frjálshyggjumenn, t.d. forsætisráðherra Davíð Oddsson, dómsmálaráðherra Björn Bjarnason o.s.fr. Frjálshyggja í eðli sínu felst m.a. í lágmörkun umsvifa velferðarkerfisins, og því má segja að sjálfstæðisflokkurinn eigi sinn part í því að velferðarkerfið sé ekki nógu gott.

Re: furðuleg tákn!

í Geimvísindi fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Jú, víst er fullt af hlutum í alheiminum sem við þekkjum ekki….

Re: UFO-brotlendingin við Roswell 1947

í Geimvísindi fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Allavega held ég að það sé pottþétt að þetta sé enginn veðurathugunarbelgur, hvort sem það eru geimverur eða ekki, þá er þetta eitthvað sem herinn vill ekki að fólk viti hvað er.

Re: Geimverur?

í Geimvísindi fyrir 22 árum, 8 mánuðum
cyberidiot: “Ef það er enginn Guð til og ekkert lif eftir þetta líf, hví ætti maður þá að lifa þessu lífi?” Fyrir sjálfan þig, fyrir þetta líf… Ég tek það fram að ég er trúaður maður, en ég lifi fyrir “mómentið”, ja, eða allt lífið. Og annað. Maðurinn er dýr! Ekkert meira, við kunnum að eiga samskipti og nota verkfæri það er eina ástæðan fyrir því að við erum eina tækniþróaða dýrategundin(að einhverju ráði)

Re: Nokkrar staðreyndir um UFO eða FFH

í Geimvísindi fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Mal3: “Ég dreg þá mjög svo vísindalegu athugun af þessari skýrslu að ef maður er enskumælandi er líklegra að maður sjái FFH…” Hehe, sennilega er skýringin á þessu að hugmyndin um fljúgandi furðuhluti er útbreiddust á vesturlöndum. Ef þú hefðir aldrei heyrt um geimverur eða neitt væru fyrstu viðbrögð þín við þremur blikkandi ljósum ekki “Hey, jó, fólk frá annarri plánetu!”, eða hvað? Samt sammála, svona 90 prósent af öllu þessu er bara bull eða ofsjónir, og í bandaríkjunum svona 99,89%

Re: furðuleg tákn!

í Geimvísindi fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Það sem gerir þetta ferðalag illmögulegt hvort sem er fyrir okkur eða ET, er að ákveðin lögmál(eða kenningar) hindra það að maður geti komist hraðar en ljósið, og þar með, jafnvel þó maður kæmist á ljóshraða, eða tvöfaldan eða þrefaldan, tæki til dæmis 3-10milljón ár að komast til hlutar í 10milljón ljósára fjarlægð. Náttúrulega eru ekki allar plánetur í slíkri fjarlægð, en samt.. næsta sól sem menn vita af er í 4 ljósára fjarlægð, segjum að við kæmumst á ljóshraða, sem við erum enn nokkuð...

Re: JiMi Hendrix

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Rétt skal vera rétt!

Bara bull, bara lag…

Re: Slæm ákvörðun Norðurljósa með BBC

í Deiglan fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Ein manneskja sem sniðgengur þessi fyrirtæki breytir engu, ég man eftir bíóverkfallinu sem átti að heita, það fækkaði vissulega í bíósalnum, en flestir létu það ekki á sig fá og fóru samt í bíó, lækkaði held ég um einhvern 50kall í sambíóunum og ef ég man rétt er það aftur búið að hækka. Helvítis vesen.

Re: Maybe i'm just weird

í Tilveran fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Góð menntun eykur allmikið líkurnar á því að maður geti valið sér starf sem maður sækist eftir.

Re: Bönnum kirkjuklukkur

í Deiglan fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Heimskar kirkjuklukkur hafa ekkert að gera með trúna, bara eitthvað sem einhverjir asnar í róm fundu upp fyrir svona 1000 árum þegar enginn mátti sofa út. Það á heldur ekkert að gera kristninni neitt hærra undir höfði en öðrum trúarflokkum, og fyrst þið viljið endilega hringja bjöllum megið þið gera það klukkan fimm eftir hádegi á mánudögum.

Re: Styrktartónleikar á NASA.....

í Músík almennt fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Styrktartónleikar til að gera við heimska rútu? Nei takk…

Re: Ibanez GRX40 með tösku

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 8 mánuðum
jæja, gítarinn enn óseldur og ég bíð eftir fleiri svörum…

Það eru alltaf tvö möguleg svör við hverri spurningu, nema þegar það eru fleiri… eða færri.

Re: Hljóðfærið mitt

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Ó, já.. og svo litli magnarinn minn sem er nú ekki merkilegur gripur, 10w Ibanez æfingamagnari.

Re: Hljóðfærið mitt

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Ú… Ég á líka yndislegan kassagítar að nafni Eko, svona 30 ára gamall gripur, rauðgulur sunburst, af öðrum hljóðfærum má nefna Ibanez sem nú er í sölu, en ég fæ mér Gibson í staðinn…

Re: Hljóðfærið mitt

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Past: “Svalt, en minn gítar er af gerðinni Gibson sg og er '61 reissue týpan. Magnaður gripur:)” I bow before you….

Re: Mesta snilld í heimi

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Ég hringdi uppá tollstofu og þeir sögðu að það væri enginn tollur eða vörugjöld.

Re: Mesta snilld í heimi

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Arvets: “musiciansfriend.com sendir líka uppá völl ;) sem er gott ef þú þekkir eikkern þar(kostar nebbla ekki neitt borgar bara fyrir verðið sem þeir setja á þetta)” Þetta kallast reyndar smygl og er ólöglegt, en ókey…

Re: Ibanez GRX40 með tösku

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 8 mánuðum
20þ? jújú, ætli það sé ekki hægt að bjarga því… Ég hef frekara samband…

Það eru alltaf tvö möguleg svör við hverri spurningu, nema þegar það eru fleiri… eða færri.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok