Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Jólin koma *jiiiiibbííííí*

í Hátíðir fyrir 22 árum, 8 mánuðum
temsi: 3. HVERN hlakkar til, ekki hverjum. Reyndar er það hver hlakkar til…

Re: Ibanez GRX40 með tösku

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Ps. þetta er svona poki (Gig bag), ekki hörð taska.

Það eru alltaf tvö möguleg svör við hverri spurningu, nema þegar það eru fleiri… eða færri.

Re: skítkast!!!!!!

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Appolo framleiðir allar mögulegar eftirlíkingar, Les Paul, SG, Strat, BC rich, jú neim it…

Re: Hljóðfærahúsið - Hneyksli

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Tónastöðin selur samt aðallega bara svona “unplugged” hljóðfæri…

Re: Hljóðfærahúsið - Hneyksli

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Ég keypti líka Ibanez gítar(reyndar í samspil-nótunni sem nú er hluti af hljóðfærahúsinu), það var snúra með, þunn og ekki mjög traust að sjá, enda eyðilagðist hún fyrstu vikuna. Þá skrapp ég bara og keypti eina öllu fagurri(á sama stað), þetta var í maí á síðasta ári og enn endist hún. Boðskapurinn er: Maður á ekki að búast við því að svona málamiðlanaaukahlutir endist mikið. ps. Ég hef nú aldrei heyrt af því að gert sé við svona snúrur….

Re: hverjir fengu miða á

í Rokk fyrir 22 árum, 8 mánuðum
I've got connections, þurfti ekkert að bíða eða neitt. Reiðubúinn að selja hann gegn nógu háu gjaldi.

Það eru alltaf tvö möguleg svör við hverri spurningu, nema þegar það eru fleiri… eða færri.

Re: hvernig á að versla í búðum eins og 10-11/11-11

í Deiglan fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Þetta hljómar líka mjög auðvelt, en það er alltaf eitthvað sem maður gleymir, svona er þetta bara. ps. Slagorð verslunarinnar breytir einmitt öllu um hvað maður er fljótur að versla.

Re: Hann asnaðist til að klúðra því

í Fræga fólkið fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Reyndar sá ég hana í vikunni vera valda “kynþokkafyllsti listamaðurinn” á MTV

Re: Hvaða ástæðu hafði hann

í Hundar fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Hundar geta verið ótrúlega viðkvæmir fyrir hvers kyns áreiti, en það fer náttúrulega eftir bæði eðli tegundarinnar og hvernig hann er taminn.

Re: hverjir fengu miða á

í Rokk fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Hefur einhver verið var við að miðasöluhlutinn á huga virki ekki? kannski er þetta bara elsku makkinn minn sem les þetta ekki rétt…

Það eru alltaf tvö möguleg svör við hverri spurningu, nema þegar það eru fleiri… eða færri.

Re: Einstein spyr : Hvers vegna félagshyggja ?

í Deiglan fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Já, þar er ég nefnilega nokkuð sammála þér, reyndar var nýlega verið að setja lög sem leyfa persónunjósnir á stigi sem ekki hefur þekkst áður.

Re: Einstein spyr : Hvers vegna félagshyggja ?

í Deiglan fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Afsakið, I'm only human, ég tek það fram að þetta greinarsvar var ansi varort. Á hinn bóginn er það ekki rétt að aldrei hafi reynt á sósíalískt samfélag, má þar nefna Sovíetríkin heitin, Kúbu og Kína, jú, sennilega hefur það gengið hvað best upp í Kúbu, en hins vegar hefur reynslan samt kennt okkur að sósíalisma hættir til einræðis og misbeitingar valds.

Re: Fordómar

í Músík almennt fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Þetta er farið að verða rosalegt, ég stend mig sjálfan oft að því að gagnrýna tónlist sem ég hlusta svo á þegar tækifæri gefst, ég hlusta á miklu fleira en ég læst oft hafa smekk fyrir, ekki það að ég ætli mér sérstaklega að ljúga um smekk minn eða neitt þannig, ég fíla virkilega það sem ég segist fíla, en hinsvegar fíla ég margt annað, jafnvel… já… jafnvel popp að vissu leyti. Ég efast ekki um að margir eða flestir geri þetta, þó reyni ég að hafa sem frjálsastan tónlistarsmekk og er nú...

Re: Einstein spyr : Hvers vegna félagshyggja ?

í Deiglan fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Í bókinni “1984” er fullkominni félagshyggju lýst, þegar einstaklingshyggjan hverfur að fullu og hvergi er slíkt liðið að nokkru marki. Má vera að þessi lýsing sé kaldranaleg og í óþarflega neikvæðu ljósi, en mér finnst hún samt sýna að félagshyggjan er einmanaleg…

Re: Eina með ENGU, takk!

í Tilveran fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Reyndar þarf heldur ekkert að borga, bara að fá leyfi, sem þó í flestum tilvikum þýðir að maður þurfi að borga.

Re: Verslunarmana Helginn!!

í Sorp fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Og hvað á maður að gera? Bara stinga af? Þetta er frekar asnaleg hugsun hjá þér, þrátt fyrir allt vita foreldrar yfirleitt betur en börnin þeirra. Hvað búa margir þarna? 10 manns? Í flestum bæjum er nú talsverður fjöldi fólks sem fer ekkert. Ömurleg og illa hugsuð grein.

Re: Eina með ENGU, takk!

í Tilveran fyrir 22 árum, 8 mánuðum
En já… óháð fyrra greinarsvari finnst mér nokkuð til í þessu, þetta er hrikalegt að á svona fjölskylduhátíð gangi allt út á þetta.

Re: Eina með ENGU, takk!

í Tilveran fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Nema hvað… © þýðir copyright ekki copy/write, hvað í fjandanum ætti það að þýða? afsakið smámunasemina ;)

Re: Spam er ógeð!

í Netið fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Safari fyrir mac er líka með nokkuð áhrifaríkan “pop-up blocker”

Re: Hvað viltu vinna við í alvörunni???

í Tilveran fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Sko… Þrátt fyrir mikinn pening er ég ekki viss um að ég myndi nenna að vera bankastjóri, lögfræðingur eða endurskoðandi(AARRRGGGHHH!!!!), en hins vegar stefni ég að vel launuðu starfi en samt ekki hvaða starfi sem er, þetta er held ég mikilvægt að finna hjá sér, eins og var nefnt hérna í öðru greinarsvari ætti maður að velja sér það starf sem gefur lífi manns mesta fyllingu, þ.e. hvort sem það hefst með peningum eður ei…

Re: Nauðganir

í Deiglan fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Hey! Ég er ekki að segja að konur eigi ekki að geta drukkið sig blindfullar, en eins og allir aðrir eiga þeir að vara sig á því.

Re: Vodafone vs Síminn

í Farsímar fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Það heyrði ég líka… Vona að það standist :/

Re: Mac á íslandi

í Apple fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Flottur korkur, mætti nú alveg vera grein…

Það eru alltaf tvö möguleg svör við hverri spurningu, nema þegar það eru fleiri… eða færri.

Re: Dauðinn er lækning alls...

í Heimspeki fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Reyndar er búddatrú á vissan hátt klof frá hindúisma. Bara svona smá fróðleiksmoli

Re: Geimverur?

í Geimvísindi fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ég man nú ekki eftir að hafa heyrt þessa kenningu, hins vegar hef ég heyrt nokkuð líklega kenningu um að bakteríugró hafi komið utan úr geimnum, með loftsteini eða einhverju, og svo þróast úr því vegna lífvænlegra aðstæðna á jörðinni.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok