Sælir hugar,
í framhaldi af þessu geimverutali sem hefur verið á lífi hér í nokkurn tíma þá langar mig til að prófa að koma í gang smá umræðu um dularfull tákn sem myndast hafa á ökrum í útlöndunum.

Um daginn var í kastljósinu maður sem býr í Bretlandi. Hann hefur verið að skoða svona dularfull tákn sem myndast oft á ökrum nærri heimili hanns.
Á þessum táknum má sé ýmiskonar hringi og munstur og þessi tákn eru ekkert lítil, heldur eru þau svona 50metrar í þvermál.

Maðurinn sem var að tala um þetta var spurður hvort þetta væru ekki bara ummerki eftir einhverjar rugludalla sem hafa verið að leika sér að því að stríða fólki sem hefur áhuga á þessu, en þá svarar hann því neitandi því að þessi tákn verða til á 10-15 mínútum og því þarf her manns og alskonar tæki til að gera þetta.

Svo er sniðugt við þessi tákn að merkin sem eru troðin niður í akrana sjást enn í ökrunum þó það sé búið að slá akurinn 3-4 sinnum.
Stráin sem eru troðin niður þau brotna ekki heldur bogna þau bara og hver ætti að nenna því að fara að beygja MÖRG þúsund strá á 10-15 mínútum?

Margir hafa nú heyrt um SETI-verkefnið, og fellst það í því að ná sambandi við aðrar lífverur fyrir utan okkur.
Þeir hjá SETI stofnuninni sendu út skilaboð frá plánetuni jörð og í þveim var m.a meðalhæð mannsins, meðal þyngd, efðarefnið okkar og að það væru 9 reikistjörnur í okkar sólkefi.
Og viti menn stuttu seinna var búið að gera svona tákn í akurinn sem var svar við okkar skilaboðum, í þeim stóð að þeir væru ekki nema 3 fet á hæð (ná meðal manni upp í nafla) og að það væru bara 4 reikistjörnur hjá þeim!

Annsi furðulegt þetta….

Hvað haldið þið um þetta, geimverur?
Kveðja, Unix