Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Mín aðild í "þjóðkirkjunni"

í Deiglan fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Ég vildi að ég gæti fermt mig aftur svo að ég gæti fermst borgaralega.

Re: Ég og félagarnir!

í Skóli fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Nei, ég hélt að það væri ekki hægt að falla í grunnskóla. Ég þekki fólk sem hefur klárað grunnskóla þó varla ein einasta einkunn alla unglingadeildina hafi náð yfir þristinn. Líklega mismunandi eftir skólum…?

Re: Ég og félagarnir!

í Skóli fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Nei, ég hélt að það væri ekki hægt að falla í grunnskóla. Ég þekki fólk sem hefur klárað grunnskóla þó varla ein einasta einkunn alla unglingadeildina hafi náð yfir þristinn. Líklega mismunandi eftir skólum…?

Re: Jólin...

í Tilveran fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Á morgun segir sá lati..

Re: Sá strákur.

í Rómantík fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Usss… ég er sammála, á miðað við hvernig fólk segir sögur af sjálfu sér, þá myndi ég giska á að þetta væri ekkert síður sögumanni að kenna en “X”, ekki að það þurfi að kenna einhverjum um eitt eða neitt hérna.' Ég segi bara við greinarhöfund að þú ættir að gleyma því að vera með stráknum og að gleyma því að vera vinur hans, ég get fullvissað þig um að eftir að vinir byrja saman er mun erfiðara að halda vináttunni heldur en það virðist vera í Friends.

Re: Svartur James Bond ?

í Tilveran fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Þó svo að í Bandaríkjunum hafi orðið svona mikill aðskilnaður á milli svartra og hvíta, að “svört menning” og “hvít menning” er tvennt talsvert ólíkt og jafnframt ákveðnir þættir framkomu, þá virðist vera mun meiri jöfnuður, að minnsta kosti í dag, milli svartra og hvítra í Evrópulöndum en í USA og menning svo að segja sú sama. Þess vegna þætti mér mjög gaman að sjá svertingja í hlutverki Bonds, svo lengi sem leikarinn er góður. Það lýsir reyndar fávísi fólks að hér er gert ótrúlega mikið af...

Re: Stöðvum fávísi nútíma Sportveiða

í Deiglan fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Já, það lýsir hræsninni í þessu liði að ótrúlega oft er þetta sama liðið sem fer á fimm milljóna jeppanum sínum með riffilinn að skjóta hreindýr og gagnrýnir virkjunina. Annað hvort það lið eða þeir sem hafa aldrei stigið fæti út fyrir borgina. Ég segði nú að í dag sé yfirleitt ekki hægt að tala um nein “náttúrubörn”, en þeir sem komast næst því eru kannski þessir kotbændur og sveitalubbar þarna úti á Austfjörðum, og ekki sé ég þá kvarta.

Re: Menntun

í Skóli fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Já, það þarf að gera mun meira úr verknámsbrautum og öðrum brautum en stúdentsnámsbrautum. Það er einhvern veginn þannig hérna að annað hvort ertu á stúdentsnámsbraut eða bara uppgjafaraumingi sem vinnur á Makkdónalds og lærir að negla nagla í Iðnó.

Re: Hryðjuverkaþjóðin Palestína

í Deiglan fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Ég sé nú reyndar ekki að nokkur hérna hafi verið að tala um kommúnisma. Ég get líklega verið sammála því að það sé farið að sýna sig að kommúnisminn ætli ekki að ganga upp, að minnsta kosti ekki á sama hátt og mennirnir með hugsjónirnar sáu fyrir sér. Hitt er annað mál að þó að kapítalisminn “gangi upp”, þá get ég nú ekki sætt mig við það að heimurinn muni staðna í því fari. Kapítalisminn er eigingjarn í eðli sínu og kapítalisminn eins og hann gerist verstur trampar algerlega yfir þá sem á...

Re: Íslenskir "nördar" og móðurmálið

í Deiglan fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Já, það er reyndar einmitt það sem ég á við þegar ég segi að vissir hlutir flækist þegar komið er yfir vissan þröskuld.

Re: Hryðjuverkaþjóðin Palestína

í Deiglan fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Við höfum “eitt besta heilbrigðis- og félagskerfi í heiminum” vegna þess að flest ríki heimsins eru þróunarríki. Við verðum að miða okkur við þau ríki sem við viljum setja okkur í hóp með. Auðvitað væri ekkert eðlilegra en að við myndum stefna að jafngóðum kerfum og t.d. Svíar og Finnar hafa.

Re: Hryðjuverkaþjóðin Palestína

í Deiglan fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Alls ekki. Þetta er hreinlega allt annað í eðli sínu. Eru hryðjuverk fíkn? Sharon er enn við sama heygarðshornið, þó að nú heiti hryðjuverk hans hernaður.

Re: Íslenskir "nördar" og móðurmálið

í Deiglan fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Nörd er ekki til sem íslenskt orð í sjálfu sér. En hins vegar væri ekki vitlaust að koma því inn í orðabækurnar og gera það að tökuorði í eitt skipti fyrir öll. Slanguryrði og óformleg orð eru líka hluti af tungumálinu. En þangað til geturðu hvorki sagt að það sé hvorugkyns né karlkyns.

Re: Rasismi

í Tilveran fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Hahaha, já. Er þá “Djöfulsins hvítingjahyski” það fyrsta sem þér dettur í hug þegar þú sérð myndband með einhverjum hvítum að gera einhverja svona vitleysu?

Re: Íslenskir "nördar" og móðurmálið

í Deiglan fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Fjölbreytnin eykst reyndar, þ.e. í einstökum samfélögum. Þú talar líka eins og enginn munur sé á mismunandi kynþáttum “litaðra”. Lítum t.d. á Brasilíu. Mikið er um dökkt fólk, líka talsvert af ljósara fólki. Sumir segðu að þetta séu allt bara svertingjar, en það er bara alls ekki rétt. Svertingjar er eitthvað orð sem hvítt fólk bjó til og nær yfir ofboðslega marga kynþætti sem ekki eru hvítir. Fjölhæfni eykst með genaflórunni. Ég sagði áðan Líffræði 101, en þetta er reyndar meira 10.bekkjar...

Re: Íslenskir "nördar" og móðurmálið

í Deiglan fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Afturhaldssemi er eitthvað það versta sem ég veit. Hún er í eðli sínu hroki. Að halda það að óbreytt ástand sé eins og best verður á kosið og að þróunin hafi náð hámarki sínu i núverandi ástandi. Um árið 1900 töldu margir að nú væri búið að finna upp allt sem vert væri að finna upp. Sumir töldu að bíllinn næði aldrei vinsældum og seinna vildu Hewlett Packard ekki einkatölvuna, hún yrði aldrei vinsæl. Nú hlæjum við að þeim sem héldu þessa hluti. Látum ekki komandi kynslóðir hlæja að okkur....

Re: Íslenskir "nördar" og móðurmálið

í Deiglan fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Þó það séu margir sem eru lélegir í stafsetningu er ekki þar með sagt að ástandið sé eitthvað verra en áður fyrr. Í fyrsta lagi er ekkert langt síðan læsi og að geta skrifað var alls ekki eitthvað sjálfsagt. Í öðru lagi er enn styttra síðan nokkrar réttritunarreglur í íslensku voru samhæfðar og settar sem reglur. Fyrir þann tíma er að sjálfsögðu gefið mál að góð stafsetning var ekkert algengari í dag, nema kannski fyrir það að þeir sem gátu skrifað tóku það mun hátíðlegar en í dag geta...

Re: Íslenskir "nördar" og móðurmálið

í Deiglan fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Afsakaðu að ég skelli upp úr. Það má þá kannski segja að þróun sunnapans, Homo habilis eða Homo erectus í nútímamanninn hafi verið glæpur gegn náttúrunni? Það eru víst engar lifandi menjar til enn um þær tegundir. Auk þess eykur blöndun mannkynsins bæði fjölbreytni og fjölhæfni manna og stuðlar að bættri afkomu. Líffræði 101.

Re: Íslenskir "nördar" og móðurmálið

í Deiglan fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Afbrot er bara allt annað mál en er hér verið að tala um. Það dytti engum í hug að kalla það þróun. Ég held líka að hér sé ekki endilega verið að tala um að stafsetningarvillur séu þróun, heldur frekar blöndun tungumála. Hér kemur reyndar inn orð sem er mjög takmarkandi á íslenskunni. Það er orðið “þróun”. Þetta orð vísar yfirleitt til annarra þeirra fyrirbrigða sem á ensku kallast “development” eða “evolution”. Það má segja að það síðarnefnda sé aðgreint frá því fyrrnefnda á þann veg að það...

Re: Íslenskir "nördar" og móðurmálið

í Deiglan fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Stafsetningarvillur eru eitt. Þróun og blöndun tungumála er bara hreinlega allt annað. Hvaða skaða myndi Ísland eða heimurinn bíða þótt öll tungumál blönduðust í eitt alþjóðlegt? Af hverju er svona gott að hafa Íslenska tungumálið? Það er ágætt eins langt og það nær og það er að sjálfsögðu gott að geta tjáð sig, en það er engan veginn öðrum tungumálum fremur. Íslensk tunga er frávik. Á meðan önnur tungumál þróuðust og blönduðust, fengu víðari og víðari orðaforða sat Íslenskan eftir og tók...

Re: Íslenskir "nördar" og móðurmálið

í Deiglan fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Reyndar telja flestir fræðimenn það að þróunin muni vera sú að innan skamms muni flestar þjóðir heims vera runnar saman í einn kynþátt, líkast til svipuðum ráðandi kynþætti í rómönsku Ameríku, þar sem spánverjar, sem voru hvítt fólk og arabískt runnið saman, hefur blandast indíánum Suður-Ameríku. Þjóðernisstefnan var nokkuð mikilvæg á sínum tíma, þegar fólk þurfti sameiningartákn, þegar fólk hverrar þjóðar var bara það og vissi ekkert af heiminum utan né innan landsins, en stundaði bara sinn...

Re: Íslenskir "nördar" og móðurmálið

í Deiglan fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Ég er mjög sammála greinarhöfundi. Íslenska er nú einu sinni okkar móðurmál, og bara sæmilega skemmtilegt sem slíkt. Þó á íslensk nýyrðasmíði það til að vera fremur stíf og leiðinleg. Sem dæmi má nefna orðið Skuggastafagluggi sem fyrir þá sem ekki vita er islenska orðið yfir hina sk. LCD skjái. Annað er það að mál þróast, og þróunin er óhjákvæmilega alltaf sú að málið einfaldast, þó að þegar komið er yfir vissan þröskuld fara aðrir vissir hlutir að flækjast. Til dæmis er oft ómögulegt að sjá...

Re: Rauð eða hvít jól?

í Hátíðir fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Að ganga sentimetradjúpan tjörusnjóinn í miðbænum á Þorláksmessu, kappklæddur innan um þúsundir annars fólks sem ýmist er á höttunum eftir síðbúinni jólagjöf eða einfaldlega að njóta þess að vera búið með jólainnkaupin. Ganga svo inn á Tíu Dropa eða Kaffi Mokka og horfa út um gluggann á myrkrið og snjóinn fallandi til jarðar. Þetta er eitthvað það frábærasta sem ég upplifi á jólunum, þó það hafi ekki beinlínis verið um hver jól upp á síðkastið.

Re: Jólin orðin söluvara...

í Hátíðir fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Jólin hafa reyndar verið söluvara síðan fyrsta manninum datt í hug að gefa pakka á jólunum. Svo smám saman hefur það færst meira og meira í aukana á 20. öld. En ég er samt sammála þér, að jólaskapið er farið að verða bara eins og eitthvað sem er best að taka upp eins fljótt og mögulegt er, svo meira verði keypt. Hvað ætli gerðist ef jólatrén væru komin upp í IKEA í júnílok. “Já, jólin eru náttúrulega að koma!” Eru engin takmörk fyrir því hvað er hægt að dreifa jólunum yfir langt tímabil? Er...

Re: 10.000 kr seðill ?

í Tilveran fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Hljómar það samt ekki kúl að geta tapað 10.000 kalli með því að týna einum seðli?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok