Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Lögin í simpsons í kvöld

í Tilveran fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Annað heitir “Happy Together” og er með The Turtles, ég man ekki hvert hitt lagið var.

Re: Gosdrykkja Fasismi:

í Deiglan fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Ég segi það líka að ég efast stórlega um þessa ákvörðun lýðheilsustöðvar eða hvers sem annars stóð fyrir þessu. Þó að eftirlit sé nauðsynlegt þýðir það ekki að eftirlitið geti ekki brugðist á einn eða annan hátt.

Re: Gosdrykkja Fasismi:

í Deiglan fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Kókaín er ólöglegt efni. Það er ekki eina ólöglega efnið á landinu, þú finnur langan, langan lista efna sem annað hvort eru bönnuð með öllu eða lúta ákveðnum reglum um meðferð þeirra. Þetta er ekki vegna einhverrar “forræðishyggju”, sem er orð sem ég sé ótrúlega oft notað hjá ykkur frjálshyggjumönnum, heldur er það vegna þess að já… fólk veit ekki alltaf alveg nógu vel. Maður þarf að hafa háskólapróf í efnafræði til að geta lesið yfir innihaldslýsingu á einni eða annarri neytendavöru og séð...

Re: fáranlegt :@ (ekki nöldur um kulda og þannig... :P )

í Tilveran fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Ég held nú að hann sé ekki að tala um að þetta sé asnalegt kerfisins vegna, heldur frekar siðferðisins vegna.

Re: Reykingar!!

í Deiglan fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Já, fyrirgefðu, ég sá það bara of seint.

Re: Reykingar!!

í Deiglan fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Vindlingar eru sígarettur. Ertu ekki að tala um smávindla?

Re: AAAAARG ég hata MSN!

í Tilveran fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Ef þú værir mannæta, mundir þú þá velja þér MSN nörd til að snæða? Held ekki…

Re: Á hvaða framhaldsskóla stefnir þú?

í Tilveran fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Heimilislegur? Nei, það finnst mér nú ekki. Ekki þarf ég að labba yfir í aðra götu heima hjá mér til að fara í næstu stofu - nú - eða þá í skólanum…

Re: Banna ætti fóstureyðingar

í Deiglan fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Sannleikurinn er sá að um 85% fóstureyðinga, ef ég man rétt, eru framkvæmdar innan fyrstu tólf viknanna, þegar fóstrið er enn svo lítið að erfitt væri að sýna líffræðilega fram á að það hafi vitund á nokkru stigi. Á þvi stigi er fóstureyðingin álíka og hver önnur getnaðarvörn. Benda má t.d. á að lykkjan sk. kemur í veg fyrir þroskun fóstursins eftir frjóvgun. Það er reyndar ekki svo að segja að það eigi að líta svo á að fóstureyðing sé bara hver önnur getnaðarvörn, þó ekki sé nema fyrir það...

Re: Framhaldslíf ?

í Heimspeki fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Ég held að það sem hann er að benda þér á sé það að þú skrifar án þess að gera nokkur skil milli setninga eða málsgreina hjá þér. Það er hræðilegt að lesa þetta.

Re: Framhaldslíf ?

í Heimspeki fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Sannleikurinn er sá að þú getur ekki vitað það. Jú, líklega benda vísindin til þess að ekkert framhaldslíf sé. En á hinn bóginn má benda á að vísindin geta ómögulega skýrt það sem við köllum vitund (enda þekkjum við það varla sjálf hvað vitundin er), svo með slíkar fullyrðingar ertu kominn á svolítið hálan ís. Hitt er annað að ég skil ekki alveg rökfærslu greinarhöfundar. Kannski er rökfræðihugsunin hjá mér bara ekki í gír klukkan tólf að miðnætti, en ég sé ekki alveg hvernig minnið á að...

Re: Nýja Dietkók auglýsingin

í Tilveran fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Þetta er ekki Diet-Coke, þetta er viðbjóður úr iðrum helvítis, spenamjólk djöfulsins.

Re: Pervert að lokka til sín stelpur í myndatöku!

í Tíska & útlit fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Hmm… allir sem eru að fara í myndatöku í Skipholti? Er ekki Eskimo Models í Skipholti?

Re: Þjóðarhreyfingin birtir auglýsingu

í Deiglan fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Ég er reyndar að tala um nýjan lista sem talað var um í einhverjum fréttatímanum, sem, ef ég man rétt, á enn að vera óopinber. Ég man ekki betur en að þetta hafi verið tekið frá einhverjum rannsóknarfréttamanni sem hefur verið við þetta mál. Hefði samt átt að fylgjast aðeins betur með.

Re: Gengið á Mars 2025!

í Deiglan fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Heyr, heyr.

Re: Þjóðarhreyfingin birtir auglýsingu

í Deiglan fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Þú ættir kannski að lesa þessa yfirlýsingu, því að þeir orða þetta nú ekki jafn harkalega og þú lætur. Þeir segja nefnilega ekki: “Íslenska þjóðin er opinberlega á móti…” heldur segja þeir: “We, Icelandic citizens, protest…” sem mætti útleggja sem svo á íslensku: “Við, íslenskir þegnar, mótmælum…”, sem, þrátt fyrir svolitla tvíræðni er ekki nærri jafn harkalegt og skilst helst sem svo að þeir, vissulega íslenskir þegnar, mótmæli aðgerð ríkisstjórnarinnar. Þar fyrir utan er 4/5 ansi góður...

Re: Hætta sölu á óskráðum frelsiskortum í Noregi

í Farsímar fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Hlýtur að hafa verið óskráð númer því ég held að innanfrá megi sjá hver hringjandinn var þótt viðkomandi númer sé leyninúmer.

Re: Umskurður drengja... Mannréttindabrot ?

í Deiglan fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Múslimar einir eru nú um einn fimmti íbúa heimsins ef ég man samfélagsfræðina rétt.

Re: Níðumst á stjórnamálamönnum?

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Veistu, Boomerang, ég var að lesa hina greinina þína, og reyndar svaraði ég henni, en eftir að hafa lesið þessa líka hef ég enga trú á að þér geti verið alvara. Annað hvort ertu að grínast eða þú ert alveg vonlaust tilfelli af pabbastrák, og það sem meira er, pabbastrák sem gerir ekki einu sinni tilraun til að þekkja þau málefni sem hann styður, hvað þá annað. Ef þér er alvara skaltu gera öðrum en þó fyrst og fremst sjálfum þér greiða og halda þig frá pólitískum umræðum á næstunni.

Re: Gleðjumst

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Kallinn minn. Eina leiðin til að sanna þetta væri að til hafi verið ríki þar sem algert frelsi ríkti eða ríkir. Geturðu nefnt mér slíkt ríki, fyrr eða síðar í mannkynssögunni? Geturðu þá nefnt mér mörg slík, fyrst þú talar um að þetta hafi verið sannað margoft. Veistu hvar í heiminum eru lægstir skattar? Haítí. Það er það ríki þar sem eru minnstir skattar í heiminum, en samt sé ég ekki velmegun, góðæri eða nokkurn útópískan veruleika. Einna hæstir eru skattarnir í Svíþjóð, Finnlandi og svo...

Re: nöldur #1

í Tilveran fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Þetta gæti reyndar flokkast undir meiriháttar meiðyrði. Hann hefur ekkert máli sínu til stuðnings þess að blessaður maðurinn steli tónlist.

Re: Sjö, níu, þrettán

í Deiglan fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Það þyrfti eflaust talsverðan kipp í fólksfjölgun til þess að það væri ástæðan. Auk þess er ég viss um að það er tekið tillit til svoleiðis í rannsóknunum.

Re: Varúð-Hive !!!!!!!

í Netið fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Fyrir mér hefur Íslandssími aldrei verið neitt annað en símafyrirtæki með ömurlega þjónustu, hvað þá bjargvættur. Það voru reyndar ýmisleg svona vandkvæði í gangi hjá þeim í fyrstu og löngu eftir það sem eðlilegt ætti að teljast. Mér leið ágætlega hjá Tal, en svo þurfti Íslandssími að kaupa þetta allt saman og verða hluti af Vodafone (stór vondur kall frá útlöndum) sem mig langaði aldrei neitt að vera hjá. Ég vona bara að Hive nái þessu í lag á næstunni, þá fær maður loksins almennilega...

Re: Nei, nú er mér nóg boðið!

í Deiglan fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Ég hef nú reyndar ekki lesið alla þessa grein (nenni því varla), en mér finnst klámvæðing tölvuleikjanna bara eitthvað sem er mjög mikið í takt við það sem gerist í kvikmyndum. Fólk fór fljótlega að átta sig á að það gæti komið sjónrænu kynlífi á framfæri með nýrri tækni. Fólk fór líka að viðurkenna meira og meira að fátt selur jafn vel og kynlíf. Leikir eins og Lula og Larry eru auðvitað bara gerðir til þess eins að höfða til perraháttarins í karlmönnum og eru heldur ekkert gefnir út fyrir...

Re: Lögregluríkið Ísland

í Deiglan fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Mér finnst þetta nú ekkert mjög óeðlilegt miðað við sektir sem veittar eru t.d. fyrir hraðakstur o.s.frv. Hitt er annað að stundum finnst mér ótrúlegt ósamræmi koma fram í refsingum fyrir stærri brot á miðað við þau sem smærri eru og illa metin mismunandi stærð brotanna.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok