Ég hef ekkert á móti svörtu fólki…

EN….

Svartur James Bond ?

Það yrði nú fyrsta Bond myndin sem ég myndi EKKI vilja sjá.

Ég vona að fólk fari ekki að misskilja mig og halda að ég sé rasisti, ég bara tel að James Bond eigi að hafa visst útlit.

Ég myndi ekki heldur vilja hvítann mann sem er ljóshærður leika hann. Ég vona allavega að P Diddy fái ekki að leika hann í framtíðinni, held að heimurinn sé ekki tilbúinn fyrir svartann Bond :)

________________________________________________

Mbl.is

Rapparinn P Diddy vill fá að vera næsti James Bond og þá um leið verða fyrsti svarti Bondinn. Rapparinn segist telja að hann sé hinn fullkomni James Bond.

Í samtali við breska síðdegisblaðið The Evening Standard segir P Diddy, sem áður gekk undir nafninu Puff Daddy, að heimurinn sé tilbúinn fyrir svartan James Bond.

Ekki hefur enn verið tekin ákvörðun um hver taki við hlutverki James BOnd af Pierce Brosnan. Þeir sem þykja helst koma til greina eru: Colin Farrell, Hugh Jackman, Clive Owen og Jude Law.