Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Vanþakklæti íslenskra netnotenda

í Netið fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Ég hef reyndar aldrei orðið var við neitt nema ömurlega þjónustu hjá öllu sem tilheyrir Íslandssíma og eftir það OgVodafone. Ég var við ágætisþjónust hjá Tal þar til fyrirtækin sameinuðust í þetta leiðindabatterí sem byrjaði hjá Íslandssíma. Mér finnst Hive skemmtileg nýbreytni (mín internettenging er reyndar hjá OR eins og er), og ég finn það ekkert hjá mér að hafa samúð fyrir aðstandendum Íslandssíma fyrrverandi, frekar en fullt af öðrum fyrirtækjum sem gætu helst úr lestinni. Þetta er...

Re: heitur pottur

í Hugi fyrir 21 árum, 3 mánuðum
4 hólf? Já… það væri sniðugt að bjóða einhverri gellunni heim til sín “Þú ferð í þetta hólf og ég skal fara í þetta þarna.”

Re: Jólin hafa ekkert með Kristna trú að gera!!!

í Tilveran fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Ég hugsa að hér sé í gangi einhver misskilningur hjá okkur báðum, því að þetta er nákvæmlega það sem mér finnst. Ástæðan fyrir öllu þessu saman er sú að kristnin sem trúarbrögð komst af vegna þessara hluta. Hvers vegna? Því það hentaði þeim sem réðu. Það hentaði þeim að geta sagt að þeir hefðu valdið frá Guði, það hentaði að geta sagt að allir væru syndugir frá fæðingu, þá gat enginn sagst vera syndlaus, sama hve heiðvirðu lífi hann hafði lifað. Kristnin hentaði Móse, hún hentaði Konstantín...

Re: Jólin hafa ekkert með Kristna trú að gera!!!

í Tilveran fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Ég kannast alveg við þessa setningu, enda gekk ég í gegnum fermingarfræðslu. Hitt er annað mál að það sé höfuðmál hjá kristnum að snúa öllum öðrum frá sínum trúarbrögðum til kristninnar, enda finnst mér það í sjálfu sér óvirðing við önnur trúarbrögð.

Re: Jólin hafa ekkert með Kristna trú að gera!!!

í Tilveran fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Margt af þessu eru beinharðar staðreyndir, líkt og þetta kirkjuþing sem Konstantín Rómarkeisari efndi til. Annað er hins vegar bara kenningar, sem þó er sýnt fram á með margvíslegum raunverulegum staðreyndum sem koma fram í Da Vinci lyklinum. Tilvitnanir í Biblíuna, freskur sem talað er um og margt fleira er sett fram á svipaðan hátt og þú gætir séð í hverjum öðrum heimildarþætti á National Geographic Channel. Þú getur sveiað þér upp á að sögulegar staðreyndir sem vitnað er í, þ.e. þær sem...

Re: Jólin hafa ekkert með Kristna trú að gera!!!

í Tilveran fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Ég veit eiginlega ekki alveg hvað þú ert að segja, hvort jólin ættu að hafa meira með kristna trú að gera eða að fólk ætti að hætta að láta eins og jólin hafi eitthvað með kristna trú að gera. Mér finnst annars ágætt á meðan fólk reynir ekki í sífellu að þröngva upp á mann einhverjum kristnum hugmyndum um hver jól, þó ég sjái það reyndar ekki vera að gerast. Ertu kannski að segja að kristið fólk eigi að gera allt það og aðeins það sem stendur í Biblíunni? Mér finnst mikilvægt að fólk hafi...

Re: Óþroskaðir, up my ass!

í Skóli fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Þú hljómar fyrir mér eins og einhver sem vantar afsökun fyrir fávitaskapnum í sjálfum sér. Á hinn bóginn er greinin það illa upp sett að ég gæti líka verið að vaða í villu varðandi þetta. Að síðustu vil ég nú nefna að ég er ekki alveg viss um að þú skiljir merkingu orðsins “gelgja”. Ég vona hins vegar þín vegna að þú hafir náð hápunkti gelgjunnar.

Re: iPod og Mp3

í Hugi fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Það fer eflaust eftir því við hvað þú berð það. Ég er viss um að þú færð t.d. betra sánd heldur en í þessum spilurum sem OgVodafone hefur verið að dreifa eins og nammi. Í öðru lagi má líka stilla tónjöfnunina svolítið í iPod og svo í þriðja lagi eru þessi eyrnastykki sem fylgja iPod í vandaðra lagi, þó ég muni eflaust skipta mínum út fyrir alvöru heddfóna við fyrsta tækifæri. Engu að síður fara hljómgæðin bara eftir samanburði.

Re: Rasistmi? Til hvers?

í Deiglan fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Jújú… ESB er ekki fullkomið en ég styð inngöngu þangað. Varðandi fiskveiðistefnuna er fólk með óþarfa hræðslu við hana. Við gætum aðeins átt von á spænskum veiðimönnum hingað ef þeir ættu tilkall til hefðaréttar á þessu svæði, sem þeir hafa ekki. Ég get bent þér á BA-ritgerð í stjórnmálafræði varðandi þetta mál: http://3.is/politik/CFP98.htm Varðandi það að sameinast í eitt ríki eða ekki, þá hugsa ég að það sé að vissu leyti rétt hjá þér, að það sé ekki meiningin, en hins vegar er þetta samt...

Re: Nýju útlendingalögin eru úldin

í Deiglan fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Nú… undarlegt. Ekki veit ég þá hvaðan ég fékk þessi 3 ár.

Re: Ipod!

í Hugi fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Það finnst mér engan veginn geta staðist. Listaverðið eitt og sér er meira en það ($299), svo er tollurinn himinhár, að ógleymdum sendingarkostnaði og VSK. Ég fékk út kr. 33þús á ShopUSA.

Re: Græn , Rauð , Svört gata ???

í Tilveran fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Nánar tiltekið Smiðju- og Skemmuvegur.

Re: Bullshit! Dulspeki og margt annað.

í Dulspeki fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Lítum augnablik fram hjá þeirri staðreynd að ég var einfaldlega ekkert að tala um tilurð alheimsins,en viljirðu sleppa því að hugsa um tilurð alheimsins skaltu líka sleppa því að fullyrða um hana. Tímapunkturinn sem alheimurinn varð til á (ef við látum eitt augnablik sem hann sé til) gæti verið margt. Í fyrsta lagi getum við hugsað að heimurinn hafi orðið til þegar tómið varð til, í öðru lagi gætum við kallað tilurð alheimsins þegar fyrsta efnið varð til, í skammtafræði er t.d. talað um það...

Re: Bullshit! Dulspeki og margt annað.

í Dulspeki fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Hvað segirðu… var biblían “afsönnuð”? Jóga er reyndar vissar teygjuæfingar sem hafa verið í þróun miklu lengur en nokkrar nútímaæfingar. Ég get lofað þér því að jóga skilar talsverðum árangri á vissum sviðum. Það gerir þig ekki að meistara í stangarstökki eða boxi, en það er bara ein leið til að þjálfa líkamann. Þó þrír Feng Shui “Húsgagna-ráðninga menn” eins og þú kallar þá, hafi gert þrjá mismunandi hluti þarf það ekki að þýða eitt eða neitt. Það er ekki eins og Feng Shui snúist um að raða...

Re: Rasistmi? Til hvers?

í Deiglan fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Mikið fjandi er ég með mörg greinarskil

Re: Rasistmi? Til hvers?

í Deiglan fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Smá tittlingaskítur hér í byrjun. Áður hefur verið leiðrétt hjá þér orðið “kommonismi”, sem er rétt “kommúnismi”. Þetta orð er að sjálfsögðu komið af orðinu kommúna, og þetta litla hljóð breytir því upprunanum óþarflega mikið. Hitt er svo að virðist vera algeng villa, að fólk setji orð með endinguna -ismi þar sem orð með endinguna -isti ætti að eiga við. Rasismi er að sjálfsögðu stefnan, en rasisti er maðurinn sem fylgir stefnunni. Nú, fyrst ég hef komið þessu frá mér er mál að snúa sér að...

Re: Rasistmi? Til hvers?

í Deiglan fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Fólk er fordómafullt í eðli sínu. Hvers vegna? Því óþekktir hlutir reyndust oft hættulegir og fyrir afkomuna reyndist líklega betra að varast það sem fólk ekki þekkti. Í dag sjást leifar þessa eðlis glöggt á því hvernig fólk lætur að öðrum annars kynþáttar. Fólk getur hins vegar ekki gefið margar rökréttar skýringar á þessu hatri, fordómum eða hvað sem fólk vill kalla þetta. Þá koma skýringar eins og “Þeir stela störfunum okkar.” og jafnvel rökleysur og útúrsnúningar eins og “Helvítis...

Re: iPod!!

í Tilveran fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Þið eruð í ruglinu. Hann er flokkaður sem upptökutæki, en væri hann flokkaður sem harður diskur eins og í flestum löndum væri hann ódýrari.

Re: AC/DC ROCK

í Rokk fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Má vera - það voru svo margir meðlimir sem sífellt komu og fóru.

Re: AC/DC ROCK

í Rokk fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Reyndar er rétt að þeir voru skoskir, en taka mætti fram að þeir bjuggu allir í Ástralíu á þeim tíma er AC/DC var stofnuð. Angus var held ég örugglega ekki nema 2ja ára þegar Young fjölskyldan flutti til Ástralíu.

Re: Heimskir krakkar

í Tilveran fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Ja - jú. Ég nennti bara ekki að bæta því við að hún virtist bara alls ekkert kannast við það að geisladrifið væri til annars nýtilegt.

Re: Nýju útlendingalögin eru úldin

í Deiglan fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Hvað á það að þýða? Ég efast um að margir útlendingar komist upp með það að vinna ekkert. Í fyrsta lagi er það að þeir komast áreiðanlega engan veginn á atvinnuleysisbætur sem innflytjendur, hérlendis þarf fólk að hafa verið við vinnu hér í minnst þrjú ár til að komast á atvinnuleysisbætur. Í öðru lagi verða útlendingar yfirleitt að sýna fram á að þeir geti framfleytt sjálfum sér til að fá dvalarleyfi utan síns heimalands. (Með undantekningum að sjálfsögðu) Ég skil reyndar ekki hvers vegna...

Re: Heimskir krakkar

í Tilveran fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Þetta er nú ekkert. Ég hef heyrt um eitt atvik sem gerðist í rauntæknitíma í FB. Þannig var nefnilega að stúlka ein var spurð til hvers geisladrifið í tölvunni væri notað. Hún svaraði því að það væri auðvitað notað til að spila tónlist… Í sama tíma kannaðist víst svo að segja enginn við hið tugakerfið.

Re: Nýju útlendingalögin eru úldin

í Deiglan fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Ég skammast mín fyrir að vera Íslendingur. Ég bara skil ekki hvernig þetta á að fyrirbyggja að fólk misnoti lögin á þennan hátt. Eru það bara 23ja ára og yngri sem geta gert það?

Re: Nýju útlendingalögin eru úldin

í Deiglan fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Og þú veist að þeir nenna ekki að vinna því að…?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok