Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Tónlist yfir tónlist hafna?

í Músík almennt fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ég var ekkert að tala illa um gamalt rokk, sú tónlist sem ég hlusta helst á er gamalt rokk.

Re: Kennara verkfallið komið út í öfgar.Já eða nei?

í Skóli fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Líklega verða samræmdu prófin léttari þetta árið af þessum sökum. Auk þess ættu allir að ná verri einkunn í sama hlutfalli, þannig að þið ættuð að komast inn í þann framhaldsskóla sem þið ætluðuð ykkur. Nú, ef þið óttist það sem kemur í framhaldinu, þá mun sjálfsagt taka fremur skamman tíma að vinna upp örfárra mánaða grunnskólanám í menntaskólanum. Það sem þú lærir í menntaskóla er nefnilega svo miklu stærra í sniðum heldur en grunnskólanámið.

Re: Kennara verkfallið komið út í öfgar.Já eða nei?

í Skóli fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Um leið og verkfallið er búið skaltu leita þér smá aukakennslu í setningarfræði. Það er líka sniðugt að temja sér að setja bil á eftir greinarmerkjum. Kennaraverkfallið í sjálfu sér er nú líklega slæmt, en fái kennarar ekki þau kjör sem þeim ber er að sjálfsögðu nauðsynlegt að grípa til þeirra aðgerða sem aðstæður krefjast. Einar Axel

Re: Það að vera Goth

í Tíska & útlit fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Já… Ég myndi nú samt segja að þú værir svolítið með allt á hornum þér.

Re: Tónlist yfir tónlist hafna?

í Músík almennt fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ég gæti ekki orðað það betur ;)

Re: Tímalína æfi Jóakims Aðalandar

í Myndasögur fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ég þekki þessa sögu, ef ég man rétt er þetta sagan þar sem Jóakim eignast koparnámu, þessi kall þarna er bandarískur kaupsýslumaður og pabbi krakkans (Jóa Rokkafellis).

Re: Tímalína æfi Jóakims Aðalandar

í Myndasögur fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Hver var að halda því fram að ungarnir væru synir Andrésar? Btw. Ef maður á að taka mark á einhverjum sögum framyfir aðrar, þá eru það Don Rosa sögurnar, yfirleitt eru líka Carl Barks sögurnar í samræmi við þær, ef einhver þörf er á því.

Re: Vegna lögregluaðgerða gegn höfundarréttarbrotum.

í Deiglan fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ef ég man rétt var síðasta ár metár í sölu íslenskrar tónlistar. Sýnir hvað þetta er mikið bull. Samt er lagður sér STEF-skattur á alla óskrifaða geisladiska sem við kaupum. Ekki nóg með það, heldur eru öll stefgjöld sem renna til tónlistarmannanna sjálfra miðuð við spilun á rás 2, sem þýðir að sjálfsögðu að Bubbi og Maggi Eiríks eru að fá mun meira í þessu tilliti en Mínus eða aðrir.

Re: Tónlist yfir tónlist hafna?

í Músík almennt fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Já, það má kannski segja að þetta hafi verið uppdráttur af hvernig þetta er í ystu lögum poppheimsins.

Re: Mp3 spilarar

í Tilveran fyrir 21 árum, 6 mánuðum
En gallinn við hann er að hann tekur bara 4 gígabæti. Mitt tónlistarsafn, þ.e. bara það sem er á tölvunni, er 10 gígabæti, sem er frekar smátt á miðað við marga.

Re: Laun kennara samkvæmt auglýsingu í Fréttablaðinu

í Deiglan fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Hmm… góð spurning. Það væri gaman að sjá hvað gerðist ef löggan færi í verkfall.

Re: Ísrael VS Palestína

í Deiglan fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Hjá mér er það einmitt öfugt, að mér líst enn verr á Bandaríkin fyrir það að þau styðja Ísrael í baráttunni. Hér eru Ísraelsmenn innrásaraðilinn og hernámsaðilinn, Ísrael heldur Palestínu undir hælnum á sér. Þetta er farið að minna mjög mikið á hvernig farið var með gyðinga í seinni heimsstyrjöldinni. Þeir eru lokaðir bak við múr og fá engu ráðið um hvar þeir eru í eigin landi. Það vantar bara útrýmingarbúðirnar. Sem dæmi um ofstæki gyðinga í þessu máli má nefna að tvö Ísraelsk börn dóu í...

Re: Ísrael VS Palestína

í Deiglan fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Það að ríki sé viðurkennt af Sameinuðu Þjóðunum þýðir ekki að því sé leyfilegt að gera hvað sem er. Reyndar voru ekki samin lög um stofnun Ísraelsríkis sem slík (jú, kannski voru einhver lög samin í kringum stofnunina, en engin sérstaklega umfram önnur ríki), heldur var Ísraelsríki innlimað í SÞ, sem er annað. Aftur tek ég fram að þetta gefur Ísraelsríki engan veginn leyfi til þess að brjóta önnur lög sem gilda, t.d. er innrás til hernáms ólögleg með öllu skv alþjóðalögum nema öryggisráð SÞ...

Re: Tónlist yfir tónlist hafna?

í Músík almennt fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Já, þessi goggunarröð sem ég nefndi telur svona hvernig ég hef mest orðið var við hver gerir grín að hverjum. Þegar það er komið upp í fólk sem hlustar svo á klassíska eða dýpri tónlist, þá er það annað hvort íhaldssamt pakk, eða þá fólk sem raunverulega veit hvað það hlustar á og nennir ekki að velta sér upp úr hvort aðrir hlusti á FM tónlist eða ekki.

Re: Tónlist yfir tónlist hafna?

í Músík almennt fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Lítum aðeins aftur í tímann á rokkið góða, t.d. Rolling Stones, eða svolítið síðar Guns N'Roses. Það deilir enginn á að þessar tvær hljómsveitir teljist rokkhljómsveitir, með þeim allra stærstu í sögunni jafnvel. Það sem þær eiga meðal annars sameiginlegt er það að þær stóðu fyrir ímynd. Allir vildu vera eins og rokkararnir. Allir vildu þeirra líf, sex, drugs n' rock n'roll. Þeir voru ríkir og frægir og nutu þess í ystu öfgar. Var sú tónlist ekki til að græða pening? Var sú tónlist ekki út á...

Re: www.smais.blogspot.com

í Tilveran fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Já, ég hló reyndar fyrst þegar ég sá þetta nafn einhverntímann í bíói.

Re: www.smais.blogspot.com

í Tilveran fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Samtök Myndrétthafa á Íslandi Þeir standa fyrir öllum þeim fasisma sem tengist eignarrétti á myndefni á Íslandi.

Re: Tónlist yfir tónlist hafna?

í Músík almennt fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Já. Að sjálfsögðu er oft hægt að segja að ein tónlist sé verri en önnur, en það sem ég vil varast er að koma með slíkar alhæfingar um heilu tónlistarstefnurnar, eða jafnvel heila tónlistarbálka. Í þessum efnum getum við t.d. líkt Nylon við barnabókmenntir, að vísu frekar óvandaðar, á meðan Radiohead eru merkari bókmenntir. Ég held að enginn reyni að halda því fram að sú fyrrnefnda sé jafn góð og Laxness. Báðar ágætar til síns brúks þannig séð, en þú metur nú varla mikils mann sem hefur...

Re: Tónlist yfir tónlist hafna?

í Músík almennt fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Já. En ég hef nú heyrt sum ansi catchy lög af þessu tagi (FM tónlist) eftir að ég opnaði mig aðeins meira fyrir því. Ég er langmest fyrir rokk, en ég leyfi mér nú samt ekki að segja að FM tónlist sé aldrei góð. Helst af pólitískum ástæðum, þ.e. sterkum tengslum við kapítalisma, sem ég finn það hjá mér að gagnrýna þessa tónlist. En það hve fjöldaframleidd FM tónlist er gerir það að verkum að með tónlistinni slæðist líklega oftar annars eða þriðja flokks framleiðsla heldur en í rokkinu, sem er...

Re: Vantraust?

í Deiglan fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ég var nú eiginlega að vonast eftir meira skítkasti. En það nær þá ekki lengra…

Re: Tónlist yfir tónlist hafna?

í Músík almennt fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Já, það er álit sem á líklega alveg rétt á sér. Aftur á móti er þó sjónarmið útaf fyrir sig að setja saman tónlist til að græða pening. Þó að öll plötufyrirtækin séu upp til hópa byggð með hjartalaus kvikindi sem hugsa um ekkert annað en fé og frama við stjórnvölinn, þá er samt sú tónlist sem ætlað er að græða hönnuð á einn eða annan hátt með það að markmiði að gera eitthvað sem lýðnum líkar. Það er mjög hæpið að svoleiðis tónlist geti nokkurn tímann talist til mjög frumlegrar tónlistar, en...

Re: Tónlist yfir tónlist hafna?

í Músík almennt fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Haha, já. Skemmtilegt dæmi um mann með svolítið einfölduð viðhorf.

Re: Tónlist yfir tónlist hafna?

í Músík almennt fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Já, reyndar vill svo til að ég hef verið kallaður Einar Áskell. Það bregst ekki að börnum undir 6 ára aldri þykir þessi nafnbót mjög skemmtileg. Þakka annars hrósið.

Re: Bókasafnslöggur

í Deiglan fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Allavega er internetdreifing hvergi nærri liðin undir lok erlendis. Ég efast stórlega um að þeir nái að halda eigendum DCi í skefjum til lengri tíma, þeir hlytu að hafa tekið þá fyrr ef það væri svo auðvelt. Reyndar gæti maður alveg trúað að einhver ný lagafrumvörp líti dagsins ljós varðandi þetta mál á næstunni.

Re: Fordómar

í Deiglan fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ef þú ætlar að koma með fullyrðingar hefurðu fulla ástæðu til að koma með rökstuðning fyrir máli þínu ef þú vilt að einhver taki mark á þér. Annars held ég að þú getir eins sleppt því að vera að skrifa á þennan umræðuvef.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok