Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: 10.000 kr seðill ?

í Tilveran fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Við ættum að henda krónunum og halda fimmköllunum. Danir og Norðmenn hentu öllu minna en 50 aurar fyrir löngu.

Re: Kennara verkfallið komið út í öfgar.Já eða nei?

í Skóli fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Nei, en líklega verður að taka tillit til breyttra skilyrða. Aftur yrði þá líklega unnið hraðar og meira í þessum árgangi þegar í framhaldsskóla er komið.

Re: Kennara verkfallið komið út í öfgar.Já eða nei?

í Skóli fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Kennaraverkfallið er ekki alveg eins og mátti búast við í fyrstu.Vonaðist maður að það stæði ekki lengur en í 3-5 daga,en eftir að ég sé að þetta verkfall sé staðið í meira en 2 vikur þá líst mér nú ekki vel á það hvernig málin standa. Þarf þetta að bitna á okkur krökkunum og bætir það ekki úr skák að í 10.bekk er komið. Mætti segja að ágætum árangri hafi náðst með því að kennarar og sáttasemjarar hafi rætt saman um vinnutíma kennara. Eins og í fréttunum um daginn sögðu kennarar að ef að...

Re: Kennara verkfallið komið út í öfgar.Já eða nei?

í Skóli fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ég sagði nú líka setningafræði, ekki stafsetningu. Drengurinn raðar orðum upp á hinn undarlegasta hátt. Svo er það líka þetta með bilin, eða ætti ég að segja skortinn á þeim, aftan við greinarmerkin hans.

Re: Það að vera Goth

í Tíska & útlit fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Já, ok. Þá biðst ég vinsamlegast afsökunar á misskilningnum.

Re: Strákar eru tilfinningalausir!

í Rómantík fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Stelpur geta nú verið helvíti kaldrifjaðar sjálfar.

Re: Það að vera Goth

í Tíska & útlit fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ég get alveg sagt þér að Sharon Osbourne var ekki goth þegar hún kynntist Ozzy. Goth var ekki orðið fullmótað sem slíkt á þeim tíma og auk þess var Sharon Osbourne þá fremur settleg held ég. Goth er hins vegar ekki bein afleiðing pönks. Anarkistar 8. áratugsins aðhylltust pönkstefnuna í miklum mæli og er að mestu leyti hægt að kenna pönkið við anarkistana. Nú, svo á svipuðum tíma var að fæðast ný stefna einhversstaðar í Rússlandi. Þetta var níhilisminn, hann er svipaður anarkisma í mörgum...

Re: Það að vera Goth

í Tíska & útlit fyrir 21 árum, 6 mánuðum
indiya “…og maður fer ekkert á neinn betri stað ef maður deyr…” Nákvæmlega. Við vitum ekkert hvert við förum þegar við deyjum. Við gætum allt eins bara átt þetta líf, og er þá ekki eins gott að líta á það björtum augum? Maður nýtur lífsins betur ef maður er jákvæður, staðreynd. Reyndar held ég að almennt sé litið á Allah sem sama guð og hinn kristna/gyðinglega Guð. Múslimar viðurkenna Jesú jafnvel sem spámann. Ég er ekki mjög trúaður, allra síst mjög kristinn. Ég er ekki trúlaus, en ég legg...

Re: Það að vera Goth

í Tíska & útlit fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Mér leiðist að sjá heiminn sem vondan stað. Jújú, henni er svo sem ábótavant henni veröld. En það er allt miklu skemmtilegra ef maður er svolítið jákvæður og naívískur í hugsun. Eins og Gandhi sagði: “Maður á ekki að finna leiðina til friðar, friður er leiðin.”

Re: Það að vera Goth

í Tíska & útlit fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ástæðan fyrir því að viss tegund drungalegs ljósmyndunarháttar/kvikmyndunarháttar er kallaður gothískur er sú að til er sá frásagnarháttur sem er talað um sem gothic. Þessi frásagnarháttur einkennist af raunsæi og aðeins rúmlega það. Þetta lýsingarorð hefur svo yfirfærst á myndunarstílinn sem gothic, sem einkennist oft af heldur blárri og kaldranalegri lýsingu og dökkum litum. Jú, vissulega er svo farið að blanda því saman við gothic tískufyrirbærið bæði í orði og gerðum. Það að kalla þessa...

Re: Það að vera Goth

í Tíska & útlit fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ertu að segja að gotharar hermi ekki eftir hvorum öðrum í klæðaburði og hegðun? Vaknaðu maður. Það er ekki bara ein tíska sem er í gangi hverju sinni. Í hverju samfélagi á öllum tímum eru margar mismunandi samhliða tískustefnur í gangi. Goth er ein ef þessum tískustefnum og nýtur reyndar talsverðra vinsælda í dag. Raunar er þetta ekki mainstream tískustefna, en það er bara allt annað mál. Gothistar, hippar, pönkarar svo ekki sé minnst á rokkara… Allt er þetta fólk sem aðhyllist einhvers...

Re: Það að vera Goth

í Tíska & útlit fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Það sem mér finnst undarlegt við goth er að þetta er mjög oft fólk, eins og þú, sem er með allt á hornum sér, sama um allt og alla, og fötin meira að segja eru að vissu leyti hönnuð til að fæla annað fólk frá. Samt er það sífellt kvartandi yfir að aðrir séu með fordóma og leiðindi gagnvart sér, á meðan sjálft er það alltaf með sama viðhorfið gagnvart öðrum. Karma, kannski?

Re: L.Ì.N.

í Deiglan fyrir 21 árum, 6 mánuðum
gthth Ég held að það sé staðreynd að það sé ódýrara að vera í doktorsnámi í Bandaríkjunum en á Íslandi. Mér finnst það nú vera ansi sterk vísbending um að það þyrfti að bæta námskerfið á Íslandi. Ég held að við ættum almennt að miða að því að bera Íslendinga saman við aðra Norðurlandabúa, þar sem það er nú þrátt fyrir allt nærtækasta viðmiðunin. Ég veit að Ísland er mikið fyrirmyndarríki á miðað við t.d… Haítí.(ekki í samhengi við orð gthth)

Re: Kennara verkfallið komið út í öfgar.Já eða nei?

í Skóli fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ég held að verkfallið hafi engin áhrif á það hvort þú komist inn í menntaskóla eða ekki. Hinir eru ekkert frekar í skóla en þú.

Re: Er ég í MR eða KB ?

í Skóli fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Mér fannst þetta mjög sniðugt, enda nældi ég mér í hvorki meira né minna en 1000 króna afslátt á busaballið! Reyndar finnst mér svolítið fyndið að á meðan Skólafélagið er með rokna KB kontrakt er Framtíðin að auglýsa Landsbankann.

Re: Góð bók...

í Tilveran fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Lestu endilega “Neuromancer” (veit ekki um íslenska nafnið ef það er eitthvert) ef þú hefur einhvern áhuga á vísindaskáldsögum. Svo er líka “Bréf til Láru” eftir Þorberg Þórðarson mjög skemmtilegt tímamótaverk, þó það sé kannski ekki allra.

Re: er þetta eðlilegt?

í Kettir fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ef þú segir nei mjög rólega eða með öðrum hrynjanda en venjulega, þá mundi hundurinn/kötturinn ekki skilja það. Eins gætirðu eflaust sett eitthvað annað orð í staðinn fyrir nei og sagt það á ákveðinn hátt, og hann mundi heyra það eins og ef þú værir að segja nei með sama hætti.

Re: L.Ì.N.

í Deiglan fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Það er kannski þess vegna sem mér líkar illa við frjálshyggjufólk. Samhjálp er ekki til í þeirra orðaforða.

Re: L.Ì.N.

í Deiglan fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ég held að það séu flestir sammála um að einhvers ríkisvalds sé þörf (með undantekningum þó, að sjálfsögðu, það eru anarkistarnir). En hver er svo skilgreiningin á ríkisvaldi? Stjórnmálafræðileg skilgreining á ríkisvaldi er að ríkisvald er eini aðilinn í ríki sem má beita ofbeldi. Þetta eru hvorki ýkjur né lygi heldur hreinasti sannleikur. Jú, að sjálfsögðu þarf ríkisvald, og að því gefnu sem að ofan stendur er augljóst að það þarf fólk sem kann að fara með ríkisvaldið (en það er reyndar...

Re: Það að vera Goth

í Tíska & útlit fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ég er nú sammála. Af hverju að kvarta ef viðkomandi er svona alveg sama.

Re: Það að vera Goth

í Tíska & útlit fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Usss… þetta eru nú tóm órök og ekkert annað. Þú getur kallað skeið appelsínu, en það breytir ekki eðli hlutarins. Orð öðlast í sífellu nýja merkingu, það er einfaldlega þróun tungumálsins, og það þýðir ekkert að neita því að þó goth/gothic þýði fleira, þá stendur það líka fyrir þetta fyrirbrigði sem hér er til umræðu. Eins og stendur í orðarbókaskýringunni sem einhver hér á undan mér hefur sett inn, stendur þetta orð líka fyrir ákveðin bókmenntastíl, og nú í seinni tíð kvikmyndastíl, sem...

Re: Kennara verkfallið komið út í öfgar.Já eða nei?

í Skóli fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Í síðasta verkfalli voru kennarar leiddir í gildru af eigin samningamanni. Þeir fengu hærri laun, en á móti kom meiri vinnutími, þannig að þeir voru að fá minna borgað tímavís heldur en fyrir verkfallið.

Re: L.Ì.N.

í Deiglan fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ég er nú ekki alveg sammála þessu í fyrstu málsgrein. Ef þú vilt meina að þú sért þvingaður til að borga skólavist annarra getum við líka sagt að þú sért þvingaður til að borga vegina fyrir fólkið í Súðavík og á Ólafsfirði, eða þá að þú sért þvingaður til að borga fyrir sjúkrahjálpina fyrir allt fólkið sem er ekki nógu varkárt. Við lifum í samfélagi þar sem þykir eðlilegt að þeir sem meira mega sín veita hjálparhönd þeim sem minna eiga sín. Að sjálfsögðu er það þannig, annað ætti að þykja...

Re: L.Ì.N.

í Deiglan fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Já, heyr, heyr! Síðast þegar ég vissi var ólöglegt að flytja inn erlent vinnuafl. Svo er svo auðvelt að komast fram hjá þessu að það verður bara að heita að þetta sé erlendur verktaki.

Re: L.Ì.N.

í Deiglan fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Þetta lögmál er nákvæmlega það sem heldur ríkum ríkum og fátækum fátækum. Í Bandaríkjunum gildir þetta kerfi alveg rosalega mikið, að aðeins þeir ríku komast í góða háskóla, í staðinn fyrir aðeins þá kláru. Þar er misskipting auðs gríðarlega mikil, sem sést í því að 50% alls auðs þjóðarinnar skiptist á milli 1% af íbúafjöldanum. Gildi þetta kerfi þýðir það að þeir sem koma úr fátækri fjölskyldu komast ekki til náms, og þ.a.l. minnka stórlega líkurnar á því að þeir komist nokkurn tímann í vel...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok