Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Veggjald ,, td Borga fyrir það að fara til hafnarfjarðar = landamæri mætti segja

í Tilveran fyrir 21 árum
Þetta samfélag er svo lítið að ég held það væri alveg glatað að koma upp einhverjum vegtollum. Getið þið ímyndað ykkur umferðina á Reykjavíkurveginum/Hafnarfjarðarveginum/Kringlumýrarbrautinni klukkan 8 á morgnana ef allir þyrftu alltaf að stoppa til að borga vegtolla? Nóg er hún nú samt. Þetta væri sérstaklega slæmt fyrir þá sem lifa utan Reykjavíkur, t.d. Kópavogi, Hafnarfirði, (eða Nesinu!), enda ferðast þeir helst inn í Reykjavík og hugsa almennt um hana sem sama bæ og hvern þann sem...

Re: Heimildargildi guðspjallanna

í Dulspeki fyrir 21 árum
Frábær grein, alltaf gott að fá haldbær rök fyrir máli sínu.

Re: Heimildargildi guðspjallanna

í Dulspeki fyrir 21 árum
Það er til mikill fjöldi guðspjalla sem ekki er að finna í Biblíunni í dag og skiljanlegt að höfundur geti ekki gert fulla grein fyrir þeim öllum, þar sem Tómasarguðspjall er ekki hluti af almennri Biblíu nútímans er eðlilegt að þess sé ekki getið í greininni.

Re: Vantar vinnu :D

í Tilveran fyrir 21 árum
Ég efast um að vinnuveitendur hópist á huga í leit að vinnuþyrstum unglingum. Ég ráðlegg þér að fara á sem flesta mögulega vinnustaði og sækja um, þó þér finnist kannski ekki mikið gagn í þessu ráði.

Re: Hvaða mynd er besta mynd í heimi?

í Tilveran fyrir 21 árum, 1 mánuði
XXX, klárlega.

Re: Allt í drasli

í Tilveran fyrir 21 árum, 1 mánuði
Stafsetningavillur eru ekki stælar. Stælar eru einhverjir taktar eða uppátæki sem fara nokkuð augljóslega í taugarnar á öðru fólki og viðkomandi ætti að geta ráðið við með örlitlum viljastyrk. Þessi hel****s leiðréttingarárátta í þér eru stælar. Sannleikurinn er sá að ekki allir eiga svo auðvelt með stafsetningu, ég er í bekk með fullt af fólki sem hefur náð 8-9 á samræmdum prófum í bekk en fellur samt á stafsetningu. Ég held þú verðir bara að fara að vera meðvituð um það að stafsetning þarf...

Re: Allt í drasli

í Tilveran fyrir 21 árum, 1 mánuði
Ég kallaði þetta nú ekki margar stafsetningarvillur á miðað við ótrúlega mörg skrif sem sjást hér á Huga.

Re: Breyta um "form" a lögum?

í Hugi fyrir 21 árum, 1 mánuði
Finnur þér einhvern forritsbút sem sér um það á t.d. http://www.download.com eða http://www.versiontracker.com. Leitaðu t.d. að convert MP3 eða eitthvað í þá veruna.

Re: Upphitun á Iron Maiden

í Hugi fyrir 21 árum, 1 mánuði
Ég hef ekki mikið verið að fylgjast með Mínus, en það sem ég meinti var að mér finnst oft efnið á Halldór Laxness óþægilega líkt. En það er bara ég.

Re: Upphitun á Iron Maiden

í Hugi fyrir 21 árum, 1 mánuði
Brain Police eru náttúrulega bara ALLTAF að gera það sama. Stundum finnst mér nú líka eins og Mínus séu í svipuðu fari.

Re: Ferming

í Tilveran fyrir 21 árum, 1 mánuði
Ég vildi að ég hefði gert það líka… Fermst í Háskólabíói þ.e.a.s. Dagsetningin skiptir ekki svo miklu máli.

Re: Eurovision lagið

í Tilveran fyrir 21 árum, 1 mánuði
Ég var nú nokkuð spenntur fyrir þessu lagi… þar til ég heyrði það þ.e.a.s. Það er álíka spennandi og jarðfræðibókin mín og álíka frumlegt og Crossroads, fjandinn, ég man ekki einu sinni laglínuna þó ég hafi hlustað á það þrisvar nú þegar. Hvernig í fjandanum eiga Evrópskar þjóðir einu sinni að muna hvaða lag Íslendingar voru með? Nei… það kæmi mér á óvart ef okkur gengi vel með þetta lag.

Re: Músíktilraunir 2005 Úrslit. Hvað finnst þér?

í Íslensk Tónlist fyrir 21 árum, 1 mánuði
Ef þú ætlar að vera að leiðrétta, leiðréttu þá allavega rétt. Sögnin að hlakka er alls ekkert ópersónuleg…

Re: Nördasta áhugamálið á Huga.is ? :D

í Tilveran fyrir 21 árum, 1 mánuði
Mér hefur alltaf fundist Skátaáhugamálið svolítið fyndið…

Re: Músíktilarunir í kveld.

í Tilveran fyrir 21 árum, 1 mánuði
Það er svona þegar maður er í að sofa hjá hljómsveitarmeðlimum.

Re: Squier kjéllinn

í Hljóðfæri fyrir 21 árum, 1 mánuði
Já, en er þá ekki bara betra að fá sér dugandi gítarpakka frá Squier fyrir litlu meiri pening?

Re: Squier kjéllinn

í Hljóðfæri fyrir 21 árum, 1 mánuði
Ég kannast rosalega vel við það að vera með magnara sem gítarinn nýtur sín ekki á. Ég átti lengi vel bara 10W Ibanez, og þá skiptir ekki máli þótt gítarinn sé Gibson. Ég fékk mér svo einn af þessum Vox VT mögnurum, fyrir utan það að hann er í viðgerð er hann rosalega fínn magnari. Það er eins og lélegir magnarar bara höndli ekki alveg pólítóníska hljóma.

Re: Ertu kristinn?

í Tilveran fyrir 21 árum, 1 mánuði
Þetta er svolítið svart-hvítt hjá greinarhöfundi, þar sem han alhæfir heil ósköp um hvað það er að vera kristinn. Vissulega snýst kristnin mikið og hefur mikið snúist um það síðustu 1500 árin að afneita öðrum trúarbrögðum, að vera sem kristinn maður að berjast í liði Guðs gegn hinu illa. Þó eru til í dag margir mjög mismunandi söfnuðir kristinna manna, sem allir kalla sig kristna en greinir á í mörgum grundvallaratriðum. Þetta að berjast með kristninni gegn Satan og hinu illa er í raun...

Re: Msnið aftur...

í Tilveran fyrir 21 árum, 1 mánuði
Helvítis vesen hér. Ég held bara áfram að reyna. Mér finnst að Microsoft þurfi aðeins að koma sínum málum í lag í þessu.

Re: Merki.

í Tilveran fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Já, ég er alveg sammála. Sérstaklega þoli ég ekki þetta “EiNarAXeL”-stór-lítill-stafur kjaftæði.

Re: Kerrang topp 25 rokkplötur

í Rokk fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Það eru nokkrir búnir að nefna þetta á undan mér, en Nirvana eru ekki breskir. Lestu vandlega innganginn á greininni.

Re: Kerrang topp 25 rokkplötur

í Rokk fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Það er alveg fáránlegt hvað það er misjafnt hvort fólk telji Bítlana til rokks eða einhvers annars, þó að oftar sé það nú tilfellið en hitt. Ég veit ekki alveg hver mælikvarðinn hjá þeim er, en nokkrar Bítlaplötur ættu auðveldlega heima í einhverju sæti þessa lista. Eins og annar hefur bent á á undan mér á Pink Floyd líka tvímælalaust heima þarna. Gæti talið upp fleira, en nenni því ekki.

Re: Hmmm...Tími komin á samsæriskenningar

í Deiglan fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Eitt af loforðum Bush fyrir innrásina var það að BNA skyldu ekki tapa á stríðinu þar sem þeir myndu græða tapið aftur á olíunni. Það brást hins vegar þar sem stríðið reyndist kostnaðarmeira en hann bjóst við.

Re: Já, netið er ömurlegt

í Tilveran fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Ég var með þennan djöful þar til fyrir um viku síðan. Nú er ég á OgVodafone fyrir svona þúsundkall í viðbót með meiri hraða, meiri stöðugleika og ótakmarkað niðurhal.

Re: Samþykkt að sekta fólk fyrir að hafa „buxurnar á hælunum“

í Tilveran fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Jájá, það eru alls kyns reglur um klæðaburð í skólum, þær eru alveg kapítuli út af fyrir sig og oft á tíðum ansi asnalegar. Samt sem áður eru þær nú ekki sambærilegar við að setja svona fylkislög um klæðaburð. Hvað ef maður gengur þá bara um á nærbuxunum, eða þá stuttbuxum sem líta út eins og nærbuxur? Ætli lögin gildi um það. Alveg fáránlegt að fólk sé “þreytt á” að horfa upp á nærbuxurnar á fólkinu. Mér finnst þetta bara svipað og ef sett hefði verið í lög hvort fólk mætti ganga um í...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok