Ég var að tala við “vinkonu” mína á MSN, og hún (eins og fleiri) notar þetta “skemmtilega” MSN-mál, öðru nafni gelgíska. Hún sagði eitthvað á gelgísku og ég sagði að hún skrifaði eins og Guðni Ágústsson talaði. Og hvaða svar fékk ég?

“Og hver er það?”

Hún er 13 ára, býr í sveit (að vísu í þorpi sem er í sveit) og veit ekki hver landbúnaðar ráðherra Íslands er! Er HÆGT að vera heimskari?