Gaman af svona hlutum, en mér finnst samt frekar lélegt að byrja á dæminu um konuna, köttinn og örbylgjuofninn. Um þetta dæmi hefur maður heyrt mjög víða, en aldrei frá öruggum heimildum. Ég heyrði reyndar nokkur svona dæmi á morgunþætti Gests Einars á Rás 2, m.a. dæmið um manninn sem setti húsbílinn sinn á cruise-control og ætlaði svo aftur í til að laga kaffi. Þar var vitnað í hin svokölluðu Stelluverðlaun, sem veitt eru fyrir framúrskarandi asnaleg dómsmál. Ég kíkti síðar á netið til að...