Sko málið er ég er oft búin að skrifa sögur og ætla að senda hérna inná en ég hætti svo við. Ég er svo ógeðslega feimin, hrædd um að allir tali illa um þær og allt svoleiðis. Einhver sagði við fyrstu sögunni minni hérna að ég gæti alveg skrifað og ég hef oft hugsað um að senda inn aftur ég bara get það ekki. Ég er of hærdd alltaf um að ég sé að ofmeta sjálfan mig osfrv.
Ég ákvað þessvegna að senda þetta inn. Hefur einhver annar hér átt í vandræðum með að senda sögurnar sínar vegna feimni og ef svo er hvað gerði hann í því?