Ég trúi því að Biblían sé a.m.k. í aðalatriðum sönn, ég hef auk þess fundið fyrir návist Guðs persónulega. Gula bebeið hefur ekki blásið mönnum það í brjóst að skrifa um sig og hefur ekki haft samband (svo ég viti til) við mennina. Þar sem ég trúi því að Biblían sé í aðalatriðum sönn þá trúi ég að heilög þrenning sé líka sönn, þ.e.a.s. að Guð sé einn Guð í þremur persónum: Faðir (móðir, forráðamanneskja eða hvað þið viljið kalla það) á “himnum”, sonurinn Jesús Kristur og heilagur andi.