Thossinn: Jesús er með þessum orðum að fordæma þá sem ganga fram í hræsni en ekki trú og nota kristna trú sér til framdráttar, sem er einmitt það sem margir yfirmenn kaþólsku kirkjunnar gerðu, a.m.k. á síð-miðöldum. Og þeir voru ekki þeir einu, heldur mætti þar telja þá sem notuðu kristna trú sem yfirskyn fyrir landvinninga, valdagræðgi, fjöldamorð og menningarspjöll í “nýja heiminum”. Ekki er hægt að tilbiðja Jesú fremur en Guð þar sem Jesús er Guð (Jóh. 1.18 minnir mig).