Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Upptaka evrunnar gæti þýtt hærri vaxtakostnað

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Plús annað: Vextir er bara hluti af þeim kostnaði sem lántakendur eru að borga í dag. Annar hluti og e.t.v. enn stærri eru verðbæturnar. Nú veit ég ekki hvað almennt tíðkast hjá Evrópusambandinu en hef sterkan grun um að þessar gífurlegu verðtryggingar sem tíðkast hér, og þá ekki síst á íbúðalánum, séu ekki algengar í Evrópusambandinu. Annað sem væri fróðlegt að skoða og gera samanburð á er bankakostnaðurinn. Hér hafa bankastofnanir verið að moka inn ótrúlegum upphæðum á færslugjöldum fyrir...

Re: Gifting

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 1 mánuði
Innilega til hamingju Bjoggi og GlingGlo turtildúfur! P.s. er ekki að fara að styttast allverulega í nýjasta erfingjann?

Kveð ykkur, danna

Re: Bæjó

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 1 mánuði
Hvað kom fyrir Hulda mín? Segðu okkur frá.

Re: Merkiði kettina!!

í Kettir fyrir 23 árum, 1 mánuði
Jæja Fears. Svo þú átt kannski ljóta grimma köttinn sem var næstum búinn að myrða páfagaukinn minn í síðasta mánuði. Nú kem ég heim til þín með pardusdýrið mitt.

Re: VATN í vökvaformi

í Kettir fyrir 23 árum, 1 mánuði
Kæri bmson. Þetta var fyndnasta svar við grein sem ég hef lengi, lengi, lengi, lesið hér á Huga þó víðar væri leitað. Þakka þér fyrir að veita þessu sólskini inn í daginn minn. P.s. Einar Sig, gangi þér vel með kisu, ef þetta gerist aftur, kannski reyna “Newborn” frá Pampers? (Sbr. auglýsingin “þú ert 5 vikna, meltingarfærin ráða aðeins við vökva sem hefur sína kosti….osfrv.”)

Re: Barnaútvarp

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 1 mánuði
Sýnist allt benda til að hann sé í útlöndum (miðað við stafasetninguna). Svo eru líka við þessi úti á landi sem náum útvarpssendingunni ekki heldur. Jamm heimurinn er meira en 101 Reykjavík :)

Re: Lottóið

í Tilveran fyrir 23 árum, 1 mánuði
Hehe, ég veit um einn sem keypti sér 10 raða miða og hann fékk ekki eina tölu rétta. Ekki eina tölu rétta í öllum 10 röðunum. Manni finnst nú eiginlega að það ættu að vera verðlaun fyrir svoleiðis!

Manneskjan er ekki bara röð af mismunandi niturbösum “Kári Stefánsson” í Áramótaskaupi 2001

Re: Hættið að kalla börnin okkar slysabörn!

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 1 mánuði
Góður punktur Ihq! Ég er búin að vera að fylgjast með öllum þessum ungu-mæðra-greinum og ég held að fólk sé að tala alveg í víxl. Ég held að sumir hafi tekið þessu sem “skítkasti” á sig fyrir að hafa eignast börn ungir meðan meiningin var, held ég, hjá flestum að benda í (misskilinni) góðsemi á að það sé nú yfirleitt betra að bíða aðeins með barneignir, ef möguleiki er á. Þetta er greinilega mikið hitamál en það er enginn að segja að það sé til uppskrift að góðu eða vondu foreldri, hvorki...

Re: Hmm, ég virðist vera Fidel Castro

í Tilveran fyrir 23 árum, 1 mánuði
Tony Blair….. …..dull :(

Manneskjan er ekki bara röð af mismunandi niturbösum “Kári Stefánsson” í Áramótaskaupi 2001

Re: Er peace4all að meina það sem að hann skrifar?

í Tilveran fyrir 23 árum, 1 mánuði
Sammála Giraffi. Ég hallast að því fyrrnefnda. Eftir svo sem 1-2 ár mun jólabókin það árið verða: “Allt í plati: Hvernig mér tókst að gera mörg hundruð manns kolbrjáluð á taugum”. Ég held í alvöru að þetta sé augljóst mál. Maðurinn er afskaplega lélegur en frumlegur húmoristi. Það er enginn svona vitlaus.

Manneskjan er ekki bara röð af mismunandi niturbösum “Kári Stefánsson” í Áramótaskaupi 2001

Re: Lestu þetta og taktu þátt.

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Við skulum átta okkur á einu. Kynferðisafbrotamenn eru ekki veikir. Það er ekkert að þeim, hvorki líkamlega né andlega, sem kallar á það að það megi flokka þá læknisfræðilega sem veika. Ég veit að það er erfitt fyrir okkur þessi “eðlilegu” að horfast í augu við það að menn geta gert viðbjóðslega hluti án þess að þeir séu geðsjúkir en það er líka illa gert gagnvart geðsjúkum að flokka kynferðisafbrotamenn og fleiri siðblindingja í flokk með þeim. Kynferðisafbrotamenn eru í langflestum...

Re: stoppum stig fyrir log-in

í Tilveran fyrir 23 árum, 1 mánuði
Akkurru? Ætlarðu þá aldrei að senda inn grein eða neitt svoleiðis, bara svara greinum? Eða bara lesa greinarnar? En þá þarftu ekkert að logga þig inn. Þú getur líka bara stofnað þig sem nýjan notanda með nýtt notendanafn. Svo er líka ágætt að hitta sálfræðing ef maður er með alvarlega þráhyggju :)

Manneskjan er ekki bara röð af mismunandi niturbösum “Kári Stefánsson” í Áramótaskaupi 2001

Re: Ég þú og allir hinir hugararnir

í Deiglan fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ágætis grein. Mér finnst stigakerfið ágætt en ef fólk er á annað borð spennt fyrir háum stigafjölda verður að teljast pínu ósanngjarnt að elstu hugararnir hafa mun fleiri stig en við þessi nýrri vegna þess að það voru áður fleiri möguleikar á að verða sér út um stig (svara könnunum, stig fyrir hvert svar sem kom á grein eftir viðkomandi osfrv.) Mér finndist allt í lagi að hafa þetta stigakerfi jafnvel enn virkara og meira “notendahvetjandi”. Hef svo sem ekki neinar mótaðar hugmyndir um það....

Re: útivistartími

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 1 mánuði
Nákvæmlega! Hvernig eigum við að geta ætlast til þess að 15 ára unglingur fari að fylgja útivistarreglum þegar hann þurfti þess ekki þegar hann var 7 ára. Lög eru lög og við erum með segulspjald uppi á ísskápnum þar sem útivistarreglurnar eru tilgreindar. Sonur minn (á 9. ári) er bara hissa á því að krakkarnir í hverfinu séu lengur úti (eiga foreldrar þeirra ekkert svona ísskápsmiða?) en hann öfundar þau ekki neitt. Það er bara ekki til umræðu.

Re: Litla moldarætan mín!

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Já, kíki á þennan skerm. Tími ekki alveg að henda blóminu (orðið þvílíkt stórt) ef það er hægt að komast hjá því. Svo held ég að það sé rétt að börnin þurfa að læra að umgangast umhverfi sitt, pottablóm þar með talin (svo lengi sem þau eru ekki eitruð).

Re: Bíó - Ísöld

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Frábært að hún sé svona góður áhorfandi. Nú skaltu næst fara með hana í leikhús á góða barnasýningu (ef þú ert ekki búin að því), það er sko upplifun, því það er allt eitthvað svo miklu nær og skemmtileg stemming sem myndast.

Re: Ungar Mömmur VS. Gamlar mömmur

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ég er sammála þér ljoninja. Ég telst vera gömul mamma í dag (35 ára, var 34 þegar yngri strákurinn fæddist)en svona meðal þegar sá yngri fæddist (26 ára). Ég er að mínu mati afskaplega skemmtileg mamma ;) og líka að mati drengjanna minna :D. Ég veit ekkert skemmtilegra en að leika við strákana mína, ég fer í fótbolta við þann eldri, horfi með honum á Pöddulíf og aðrar góðar myndir, spila með honum tölvuleiki, fer í feluleik og eltingaleik, spila á spil osfrv. Ég held að ég sé tilbúnari til...

Re: Eru Þeir Virkilega Óhollir???

í Farsímar fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Það hefur verið talað um að gemsarnir séu sérstaklega varasamir fyrir börn, vegna þess að heilinn í þeim er enn að stækka og þroskast og því meiri hætta á slæmum áhrifum geislunar. Svipað og áfengið er verra fyrir heila barna en fullorðinna. Allavega myndi ég ekki taka sénsinn varðandi mín börn og finnst eiginlega svakalegt að sjá grislinga allt niður í 6 ára með gemsa.

Re: Óli Prik

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Já eða svona: Punktur,punktur,komma strik þetta er hann Óli prik hálsinn mjór og maginn stór hendur,hendur sjáðu hvernig Óli stendur fætur, fætur er ekki hann Óli sætur? hár,hár,hár og nú er kallinn klár Sumir hafa sleppt þessu með hvernig Óli stendur sem rímar við hendur og hvað Óli er sætur sem rímar við fætur en mér finnst svo flott að hafa það með!

Manneskjan er ekki bara röð af mismunandi niturbösum “Kári Stefánsson” í Áramótaskaupi 2001

Re: @kynslóðin

í Deiglan fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Já, það er sama (a.m.k. eldri hluti þeirra) og x kynslóðin. Sem sagt, kynslóðin með ekkert nafn, engin einkenni, hlýðir öllum og ræður engu, týnda kynslóðin.

Re: þín mistök?

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Þetta átti að sjálfsögðu að vera “…en heimila sveitarfélögum…” Sorry :)

Manneskjan er ekki bara röð af mismunandi niturbösum “Kári Stefánsson” í Áramótaskaupi 2001

Re: þín mistök?

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Það hækkuðu langflest sveitarfélög útsvarið, þetta var hluti af samkomulagi ríkis, sveitarfélaga og stéttarfélaga. (Að lækka tekjuskattsprósentuna en heimili sveitarfélögum að hækka útsvarið á móti). Mörg sveitarfélög eru með hærri útsvarsprósentu en Reykjavík.

Manneskjan er ekki bara röð af mismunandi niturbösum “Kári Stefánsson” í Áramótaskaupi 2001

Re: Hvaða flokkur lofaði að lækka skatta ?

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Góð hugmynd með bæklinginn gmaria! Það er þó bara einu sinni svo að menn teygja ýmislegt og toga. Ég held að það hafi verið Frikki Soph sem stóð á því fastar en fótunum (og komst upp með það) að víst hefði ríkisstjórnin lækkað skatta. Ríkiskassinn hefði nefnilega fengið lægri skattekjur (sem hlutfall af vergri þjóðarframleiðslu osfrv.) en árið á undan! Og þetta keyptu menn, X-D

Manneskjan er ekki bara röð af mismunandi niturbösum “Kári Stefánsson” í Áramótaskaupi 2001

Re: Bókhald flokkana

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ég er innilega sammála þessu. Ég held að með opnara bókhaldi væru augljósari ýmsar valdafléttur í þjóðfélaginu (s.s. “kolkrabbi og smokkfiskur”) sem eru í dag sveipuð dulúð og með þjóðsagnablæ.

Re: stutt &svart eða sítt & ljóst

í Tíska & útlit fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Millisítt og rautt :) Mæli með því ;)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok