Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Meðgangan

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Hvaða kúka vinnuveitandi er þetta sem þú ert með? Af hverju ertu svona ómissandi í vinnunni?

Re: Menningarárekstur gæludýra.....

í Gæludýr fyrir 23 árum, 3 mánuðum
krokodill: :) “eitt skref í viðbót og ég skýt!” Annars er þetta farið að minna óþyrmilega á Sylvester og Tweety :)

Re: Menningarárekstur gæludýra.....

í Gæludýr fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Nú, ekki til mín? Hverjum varst þú að svara? Páskahéranum? (Ég er salíróleg!)

Re: Menningarárekstur gæludýra.....

í Gæludýr fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Bíddu bíddu, ég ekki skilja? Á maður semsagt ekki að hafa gluggana á húsinu sínu opna, er það “pointið” hjá þér? Það er víst hægt að ala ketti upp, og ef þeir láta sér ekki segjast er t.d. að hleypa þeim ekki út á nóttunni ein leiðin! Ég hef sjálf átt ketti og maður kennir þeim að fara ekki inn nema á einum ákveðnum stað (ef þeir eru á annað borð útikettir), svo þeir séu ekki prílandi hvert sem er, hvenær sem er. Það eru ekki rottur þar sem ég bý (fer ekki nánar út í það). Hvað áttu við með...

Re: Mannanafnanefnd

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Ég er innilega sammála þér. Því miður þá er sumt fólk “fíbbl” og þarf að hafa vit fyrir því.

Re: Menningarárekstur gæludýra.....

í Gæludýr fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Hún er alltaf með breitt yfir búrið á nóttunni. Hann hefur bara fundið af henni lyktina. :(

Re: @kynslóðin

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Skemmtilegar pælingar, svona hef ég eftir marga lestra um þessi fyrirbæri, séð “kynslóðabilið” fyrir mér: Ath. ártöl svona c.a. (13-16 ár í kynslóð) 1977-1992 @kynslóðin eða netkynslóðin (fyrir netvæðingu var hún oft nefnd vídeó- eða cocoa-puffs kynslóðin) 1962-1976 x-kynslóðin (svo nefnd því hún hafði engin einkenni og afrekaði ekki neitt (Björk er eina íslenska undantekningin :)) Við af x kynslóðinni lentum í tilraunastarfsemi í skóla (z eða ekki z, stór stafur í Íslendingur eða ekki...

Re: Menningarárekstur gæludýra.....

í Gæludýr fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Hann náði henni ekki alveg (þá væri hún líklega dauð) en hefur örugglega náð að slæma loppunni í stélið á henni og djöflast á og í kringum búrið (það var allt á rúi og stúi í kringum hana). Kannski að við reynum þetta með hænsnanetið en annars erum við með stillanlegt fag svo það er hægt að hafa smá rifu. Smá rifa er bara oft ekki nóg þegar það er stillt og gott veður, þá vill maður lofta almennilega út.

Re: Er þetta Ísland í dag ?

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Það er heila málið, það er hægt að “erfa” skuldir, ef skrifað er undir einkaskipti og hver veit hvaða ráðgjöf þessi unga kona fékk. Annars skil ég ekki alveg af hverju fólk flækti sig svona svakalega í þessari umræðu (hvort hægt sé að erfa skuldir) því Sigga/Eymd var ekkert að tala um það heldur sagði hún einfaldlega: “..ég lenti í talsverðum skuldum þegar móðir mín dó og þurfti að taka á mig allskonar skatta og dót sem ég skil ekki ennþá í, fyrir utan jarðafarakostnað..” Sem sagt....

Re: Er þetta Ísland í dag ?

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Og þið haldið í alvöru að þessi unga kona hafi verið með öll sín mál á hreinu og ákveðið að skrifa ekki undir skuldbindingar osfrv.? Flest venjulegt fólk þekkir ekki erfðalögin.Það veit ekki að með því að skrifa undir t.d. einkaskipti að þá ertu að taka að þér allar skuldir viðkomandi(e.t.v., hefur bíræfinn útibússtjóri kannski ráðlagt konugreyinu að gera það til þess að hann sjálfur fengi eitthvað upp í lánin sem mamman hugsanlega tók með ábyrgð dótturinnar). Núna er ég að sjálfsögðu að...

Re: Er þetta Ísland í dag ?

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Auðvitað er helling hægt að gera, þ.m.t. að fá félagslega aðstoð. En er það sú framtíðarsýn sem þessi unga móðir þarf að horfa upp á, að vera háð aðstoð félagsþjónustunnar um ókomna tíð? Félagsþjónustan aðstoðar í vissum tilvikum fólk til að stunda nám, einmitt til að koma sér upp úr fátæktargildrunni. En það er ekki víst að standi akkúrat þessari móður til boða (það er t.d. háð reglum hvers sveitarfélags hvernig staðið er að fjárhagsaðstoð og sum (mörg) aðstoða ekki við nám). En auðvitað...

Re: Er þetta Ísland í dag ?

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Ef hún leigir íbúð og leigir út herbergi innan hennar er hún bara ósköp einfaldlega að brjóta lög og væri í mjög vondum málum ef upp kæmist. Hvað áttu við með að hún fái 50-70 þús frá ríkinu ef hún fer í kvöldskóla? Ertu að meina námslán? Ég er hrædd um að í fyrsta lagi sé slíkt nám ekki námshæft (ef hún er á annað borð komin með stúdentspróf sem er mjög óvíst) og svo ef hún er að vinna á daginn og í skóla á kvöldin þá fær hún að sjálfsögðu ekki námslán, þau eru tekjutengd. Því miður, það...

Re: Til Vefstjóra..

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Ég býst við að þið séuð að tala um myndina á Deiglan því myndin á Alþingi er af Alþingishúsinu ekki satt? En myndin á Deiglunni, er hún ekki af Twin Towers 11. sept., mér sýndist það þegar ég sá hana?

Manneskjan er ekki bara röð af mismunandi niturbösum “Kári Stefánsson” í Áramótaskaupi 2001

Re: Til allra mæðra !

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Þetta er ekkert smá flott, og vitið þið hvað, ég fékk þetta sent í tölvupósti að morgni 19. júní 2001 með þeim skilaboðum meðfylgjandi að þetta gæti orðið til að hvetja barnið mitt til að fara að kíkja í heiminn. Sem hann gerði, fæddist þá um kvöldið! Vaaaaáá???

Re: smá nöldur ;)

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Svo höfundurinn svari aðeins þá hafði ég reyndar heyrt einhvers staðar að konur væru ekki látnar vera mikið lengur en sólarhring í aktívum hríðum en auðvitað eru til undantekningar svo ég segi bara sorry. Auðvitað er ekki það sama að vera 22 stundir eða 48 (omg!). En vel að merkja, þá var ég að meina HRÍÐIR en ekki fyrirvaraverki sem geta verið að stigmagnast síðustu sólarhringana fyrir fæðingu (ekki að segja að það eigi við um ykkur stelpur en það er svo misjafnt hvernig konur túlka það að...

Re: Kvenrembupróf

í Tilveran fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Já, þetta er svona no win situation próf. :(

Manneskjan er ekki bara röð af mismunandi niturbösum “Kári Stefánsson” í Áramótaskaupi 2001

Re: Gleðilegan KONUDAG

í Tilveran fyrir 23 árum, 3 mánuðum
En sætt! :) :)

Manneskjan er ekki bara röð af mismunandi niturbösum “Kári Stefánsson” í Áramótaskaupi 2001

Re: Saklaus uns sekt er sönnuð?

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Hvar er skítkast í þessari grein?

Re: Konudags sölumennska.

í Rómantík fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Innilega sammála ykkur. Hvað er rómantískt við að fá gjöf þegar maður býst við henni? Það væri reyndar voða rómantískt fyrir mig að fá gjöf á konudaginn því ég fæ aldrei gjöf á konudaginn frekar en bóndinn á bóndadaginn :) Við gefum hvoru öðru bara þegar okkur sýnist en ekki kaupmönnunum.

Re: Með allt á hreinu, cult allra kynslóða

í Kvikmyndir fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Þú ert greinilega vel upp alin ;)

Re: Hegningarlögin

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
jammjamm: Eins og talað út úr mínu hjarta, nákvæmlega það sem ég ætlaði að segja. Mér hefði reyndar fundist að í þetta skipti sem héraðsdómur dæmdi í lífstíðarfangelsi (það var í tilfelli manns sem var að fremja manndráp í annað sinn, á reynslulausn) þá hefði hæstiréttur átt að staðfesta þann dóm. Það er erfitt að dæma í lífstíðarfangelsi, ef tvöfalt morð er ekki nægileg ástæða fyrir lífstíðardómi. Og það veldur því að margir halda að refsiramminn sé ekki meira en 16-20 ár. Svo vildi ég líka...

Re: árangur á nótæm!!!!!!

í Heilsa fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Bíddu, akkurru eruð þið að missa prófið, ekki voruð þið þó að keyra fullar???? :(

Re: Saklaus uns sekt er sönnuð?

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Maðurinn mun hafa viðurkennt að hafa verið með 21 barn í gæslu þennan dag. Það má hafa 4-5 börn á gæsluaðila, þ.e. í þessu tilviki allt að 10 börn en þá verða báðir aðilar að vera á staðnum (ekki fara burt í einhvern tíma eins og þau virðast bæði hafa gert). Á leikskólum eru hámark 8 börn á hvern starfsmann (fer eftir aldri þeirra, ef þau eru yngri en 2ja ára þá eru bara 4 á starfsmann minnir mig). Það er mér nefnilega hulin ráðgáta hvers vegna fólk lét þau passa fyrir sig þar sem voru með...

Re: Saklaus uns sekt er sönnuð?

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Í þessu máli var það þannig að það var ekki greitt með “aukabörnunum”, þau voru hvergi á skrá, ekki tryggð og ekki greiðslur frá bænum. Semsagt, í felum. Ég er hrædd um að 9 mánaða barn detti ekki svona illa, það er varla farið að ganga, anyway, þá dettur það ekki nema sá sem er að hugsa um það gæti ekki að því. Og ég held að dagforeldrarnir hefðu nú látið vita ef eitthvað slíkt hefði gerst, frekar en að fá kæru um manndráp að gáleysi. Því miður. Okkur finnst þetta hræðilegt en það bendir...

Re: Öðruvísi matarlanganir/venjur á meðgöngu

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ég veit persónulega um eina sem varð að fá að LYKTA af bensíni. Bað manninn sinn iðulega um að koma í bíltúr og fylla bílinn og svo hallaði hún sér út um gluggann og mmmmmmmm. Ég hef heyrt fleiri dæmi um svona sniffáráttu, af tippexi, lími, tússpennum ofl. Getur varla talist mjög heilsusamlegt fyrir hvern sem er :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok