Það er sprautað hér við kíkhósta, barnaveiki, stífkrampa, mænusótt, mislingum, hettusótt, rauðu hundum og Hib sem er skammstöfun fyrir Haemophilus influenzae, b stofn og mun vera ein tegund af heilahimnubólgu. Svo stendur til að fara að sprauta gegn annarri tegund af heilahimnubólgu. Ég veit ekki hvað “kemur frá Austurlöndum” en líklega er verið að tala um stífkrampa sem er hætta á að fólk fái ef óhreinindi koma í sár. Börn eru sprautuð við stífkrampa 3 mánaða, 5 mánaða, 12 mánaða og svo...