Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Hinar hræðilegu, HRÆÐILEGU klámbúllur Djöfulsins

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Veistu að ég held að málið sé bara það að VIÐ ERUM EKKI SAMMÁLA. Og munum líklega ekki verða það. Svo ég bið þig vel að lifa með þínar skoðanir og þakka fyrir spjallið. :)

Re: Hulda skírð ;)

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Sammála EstHerP, var einmitt að spá í að það vantaði bara nokkra eyrnalokka og soleiðis. Rosalega íbyggin á þessari mynd!

Manneskjan er ekki bara röð af mismunandi niturbösum “Kári Stefánsson” í Áramótaskaupi 2001

Re: Öðruvísi matarlanganir/venjur á meðgöngu

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ég var voðalega lítið spes, á hvorugri meðgöngunni nema að ég þoldi ekki lyktina úr kryddskápnum (margar sterkar lyktir í einu, alveg ojj) og eins blóðugt kjöt JAKKKK. Jú og svo þegar ég gekk með þann eldri þá fékk ég í eitt skipti svona “craving” og þá var það í grænt epli, svona alveg gallsúrt. Varð að fá það. Á seinni meðgöngunni var ég reyndar alveg forfallin fíkill í Egils Kristal með sítrónubragði en mér finnst það reyndar ennþá mjög gott.

Re: Saklaus uns sekt er sönnuð?

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
sæl gmaria. Ert þú að tala um félagsmálayfirvöld? Fyrst að foreldrar allra þessara 20 og eitthvað barna sáu ekki að eitthvað var athugavert og þau (foreldrarnir) komu þarna á hverjum degi, hvernig hefðu félagsmálayfirvöld átt að sjá það? Með því að láta manneskju búa hjá fólkinu? Ég get ekki séð að félagsmálayfirvöld séu ábyrg fyrir því að dagforeldrar taki margfalt fleiri börn en þau hafi leyfi fyrir, feli þau og öll verksummerki og ljúgi svo að öllum hlutaðeigandi aðilum (sem þau hljóta að...

Re: Hinar hræðilegu, HRÆÐILEGU klámbúllur Djöfulsins

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Hvaða lög gegn vændi? Þú varst að tala um að rök mín væru lélegur grundvöllur fyrir lagasetningu gegn vændi.Þess vegna þetta svar. (Mikið ofsalega þarf ég að útskýra hver einustu orð sem ég læt frá mér til þín). Ég sagði það áður að ég held að það megi rekja grófari kynlífsofbeldi, misnotkun ungra stúlkna (13-14 ára kaupa sér klíkuaðild með munnmökum og öðru kynlífi) og fleira slíkt MEÐAL ANNARS til klámvæðingarinnar.Það eru fleiri sammála mér um þetta í þjóðfélaginu, t.d. aðilar á...

Re: Hinar hræðilegu, HRÆÐILEGU klámbúllur Djöfulsins

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
kundera: Ég held að lög gegn vændi séu ekki byggð á þessari skoðun minni, ég er ekki (enn ;)) svo valdamikil í þjóðfélaginu. Ég skil ekki af hverju þú kallar skoðanir mínar “rökleysur”, æ ofan í æ þegar ég er að taka það skýrt fram að hér er um skoðanir mínar að ræða. Nema þú sért að öðru leyti rökþrota? En er ekki nóg komið af þessari umræðu, greinin er komin yfir á aðra síðu :)

Re: Saklaus uns sekt er sönnuð?

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ég held að ekkert okkar viti nógu mikið um þetta til að við ættum að tjá okkur mikið um það. Við verðum að setja traust okkar á réttarkerfið (sem hefur vonandi lagast síðan Geirfinnsmálið var og hét). Við höfum þó öll gott af því að velta fyrir okkur ýmsum öryggismálum, hvað þola börnin okkar mikið, hvar viljum við hafa börnin okkar í gæslu, hver er ábyrgð foreldra þegar eitthvað kemur upp á osfrv. osfrv. Rétt er þó að taka fram að maðurinn er ákærður fyrir manndráp af gáleysi og því mun...

Re: Hinar hræðilegu, HRÆÐILEGU klámbúllur Djöfulsins

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
kundera: Það eru vissulega margir sem misnota þennan möguleika á tjáskiptum (þ.e. internetið), t.d. með skítkasti út í fólk og dreifingu barnakláms svo eitthvað sé nefnt. Og fólk ætti svo sannarlega að passa hvað það sendir frá sér á internetinu og íhuga ábyrgðina sem það ber með því að tjá sig á netinu. Og tjá sig í hófi. - Þetta er ekki ádeila á þig frekar en ég býst við að þetta hjá þér hafi verið ádeila á mig :) Kveðja, danna.

Re: Hinar hræðilegu, HRÆÐILEGU klámbúllur Djöfulsins

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Armon, ég held að þú sért að gera mér upp skoðanir, ég held að við séum meira sammála en þú heldur. Varðandi vændi í vanþróuðum löndum, þá lét ég þessi orð falla í því samhengi að einhver nefndi það sem skýringu á vændi að það væru ekki til nógu margar konur fyrir alla karla. Sem ég held að þú vitir eins vel og ég að er ekki skýringin á því að karlar leita til vændiskvenna. Ummælin um “gröðu vændiskonuna” féllu í því samhengi að einhver vildi halda því fram að konur færu í vændi vegna þess...

Re: Einkavinavæðingin

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ég vona að hitaveitan þín bili ekki svo allsvakalega að það kosti 7 millur að gera við hana? (Kannski ekki alveg sambærilegt?)

Manneskjan er ekki bara röð af mismunandi niturbösum “Kári Stefánsson” í Áramótaskaupi 2001

Re: Þetta er framtíðin

í Tilveran fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Snilld :)

Manneskjan er ekki bara röð af mismunandi niturbösum “Kári Stefánsson” í Áramótaskaupi 2001

Re: Hvað er í gangi!

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Góð grein! Förum nú og veltum bílum….eða eitthvað! :)

Re: Hinar hræðilegu, HRÆÐILEGU klámbúllur Djöfulsins

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Nei, ég hef aldrei sagt að það eigi að banna með lagasetningu stripp eða strippbúllur. Hins vegar held ég að okkur sé hollt að hugleiða hversu langt við erum komin á þessari braut þar sem ekki verður þverfótað fyrir strippstöðum og auglýsingum þeirra við hvert fótmál. Ég held að siðferði þjóðarinnar hafi á ýmsan hátt batnað en á annan hátt versnað. T.d. það dæmi sem þú tekur um börn utan hjónabands (það hefur reyndar aldrei þótt tiltökumál meðal almennings hér á landi, þótt yfirvöld hefðu...

Re: Hinar hræðilegu, HRÆÐILEGU klámbúllur Djöfulsins

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Kundera: Það er ekki verið að tala um að vera mótfallinn því að börn manns stundi einhverja atvinnugrein á sama hátt og tja…. t.d. að ég vildi síður að dóttir mín (sem ég á reyndar ekki :) yrði fiskvinnslukona eða götusópari (með fullri virðingu fyrir þeim starfstéttum). Það er verið að tala um að þú ert kannski siðferðilega fylgjandi (að því að þú heldur) ákveðnu atferli eins og strippi eða vændi, þangað til það bitnar á sjálfum þér svo að segja, t.d. með því að börn þín stundi það. Þá...

Re: passa huðina!

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Sonur minn sem er á níunda ári hefur ekki verið þveginn með sjampói síðan hann var á öðru ári. Bara nóg af volgu vatni. Og það er alltaf hreint og fínt á honum hárið. Við erum öll að nota alltof mikið af sápu.

Re: Skoðanakönnun ?

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Svo þar fyrir utan þá hlakkar maður til jólanna, manni hlakkar ekki til jólanna. Ég hlakka til jólanna Þú hlakkar til jólanna Við hlökkum til jólanna Þið hlakkið til jólanna Allir (nema einhver %?) hlakka til jólanna. Lærðuð þið ekkert í skólanum :)

Manneskjan er ekki bara röð af mismunandi niturbösum “Kári Stefánsson” í Áramótaskaupi 2001

Re: Kanarífuglar

í Gæludýr fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ég er með gárann minn inni í eldhúsi því það er líklega það herbergi sem flestir eru í yfir daginn og hún fílar sig mjög vel þar. Fær sér stundum bað á meðan ég vaska upp :) En ég á reyndar ekki teflonpönnu og það er ekki reykt á heimilinu.

Re: Hávaxnir/lágvaxnir

í Heilsa fyrir 23 árum, 4 mánuðum
…stækka kannski á hinn veginn…… ;)

Manneskjan er ekki bara röð af mismunandi niturbösum “Kári Stefánsson” í Áramótaskaupi 2001

Re: RÚV

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ég sagði já. Því ég vil að þessi óvinsæli og hallærislegi nefskattur verði lagður niður og í staðinn fái Rúv almennileg framlög á fjárlögum sem gera þeim kleift að halda í þá góðu dagskrárliði sem þeir finna en missa þá ekki yfir til hinna. (Sbr. enska boltann, HM, óskarsverðlaunin, Simpson og svo mætti lengi telja). Rúv á að reka utan samkeppni við hinar stöðvarnar, það á að fá sama virðingarsess og BBC í útlöndum. Það á ekki hægt og rólega að svelta það í hel með alltof litlum...

Re: Kvennaathvarfið og kapitalisminn

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Neibb, hæstaréttarsíðan virðist liggja niðri, ætlaði einmitt að kíkja á þetta líka. Annars er “dæmisagan” mín orðin hið dularfyllsta mál, með gamalli konu (sem reynist svo vera á fertugsaldri) sem snýr til æskuheimilis sem óprúttin samtök með “varðhund Dabba”, (Jón Steinar) í fararbroddi ætla að svíkja af konugreyinu en svo reynast blandast í málið nokkrar illkvittnar og siðblindar nunnur sem létu sig hverfa af landi brott eftir að hafa gefið gjöf sem var engin gjöf…. :) Dularfyllsta mál og...

Re: Kvennaathvarfið og kapitalisminn

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Plús annað. Finnst ykkur það í alvöru sanngjarnt (látum vera að kalla það siðlaust) að erfingjarnir fái húsið á gjafverði, því gjafverði sem var í raun aðeins kvennathvarfinu ætlað? En úbbs, æ, já, allir jafnir fyrir lögum. Gleymdi því :)

Re: Hinar hræðilegu, HRÆÐILEGU klámbúllur Djöfulsins

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Mikið vill meira :) Ég hef ekki orðið vör við að multimilljónerar séu eitthvað upp til hópa sáttir við það sem þeir eiga, þeir reyna yfirleitt að fá meira, ekki satt? Auðvitað getur vel verið að “einhverjar” fíli þetta (one in a million), svona svipað og þessi sem fílar að kremja orma milli tánna. En goðsögnin sem karlar-sem-nota-vændiskonur bera í huganum er sú að hver einasta (sem hann kaupir a.mk.) elski þetta út af lífinu. Og það er ekki rétt. Þetta er jobb fyrir þeim, og meira að segja...

Re: Kvennaathvarfið og kapitalisminn

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Nei ég er ekki að meina það. Enn og aftur: ég veit að lögin segja að erfingjarnir eigi að fá húsið. Það er rétt löglega séð. En erfingjarnir lofuðu því við upprunalegu dómsmeðferðina að kvennaathvarfið fengi sanngjarnan frest til að losa húsið. Hæstiréttur kemst að þeirri niðurstöðu að þetta hafi einungis verið “munnlegt, loðið loforð” og ekki á því byggjandi við úrskurð. Þess vegna er kvennaathvarfið undir náð og miskunn erfingjanna komið og þeir sýna (að mínu mati) ekki náð og miskunn. Ef...

Re: Barist gegn ofbeldi.

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Sammála LarusH Einhvern veginn fór þessi umræða kolrangt af stað?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok