Hættið að kalla börnin okkar slysabörn!
Ég legg til að það verði gert nýtt áhugamál sem heitir “barnlaus og sátt við það”
þar getur allavega fólk spjallað saman um hvað það sé nú gott að það ætli að bíða með að eiga börn,þar getur fólk einnig talað um hvað ungar mæður séu barnalegar og viti ekki um hvað þær eru að gera og hvað þær kunna greinilega ekki á getnaðarvarnir (allvega ekki eins vel og þið)
þar getur verið korkur sem heitir: Við vitum betur
dissum unga foreldra
giftum okkur fyrst
mitt val-mín ákvörðun

Þar getið þið (sem takið þetta til ykkar) safnast saman og haldið áfram að dissa okkur og okkur væri alveg sama því það væri gert utan Börnin okkar, þetta er áhugamál fyrir foreldra og áhugasamt fólk s.s Huldu. Hér viljum við geta talað óhindrað um börnin okkar og ekki fá diss til baka um slysabörn,kæruleysi,röfl um val okkar eða val þitt

kveðja
Kristel