Ég skrifaði grein um þessa mynd fyrir mörgum mánuðum síðan og hef verið að bíða eftir henni í gífurlega langan tíma. Það er fáránlegt þegar svona myndir eru skildar eftir í lausu lofti, man eftir því að Memento var líka mjög lengi að koma hingað og einnig Requiem For A Dream. Sýnir bara að þessir peningakallar í Hollywood, sem ráða öllu, hafa ekki hundsvit á kvikmyndum og líka sumir ráðamenn bíóhúsanna hér á landi.