Ef að einhver vinanna í þessum skemmtilega hópi væri psychic væri það alveg pottþétt Phoebe. Snemma í þriðju seríunni er t.d. dæmi um það að Phoebe læsi hugsanir. Þau voru öll þarna að hugsa um eitthvað í hljóði. T.d. var Rachel að dást að því hvað Ross væri svo annt um marga hluti. Monica var að spá í hvenær risaeðlusögurnar hans yrðu útdauðar og Chandler var að ýminda sér að hann væri ofurhetja sem gæti bæði flogið og verið ósýnileg. Gunther er ástfanginn af Rachel og Joey var að raula eitthvað lag í huganum.

Phoebe: “Who's singing?”

En það eru nú til miklu fleiri þannig dæmi um það að sé sterklega gefið í skyn að Phoebe sé psychic. En það er ekki málið… ég var að pæla í því að í sama þætti var Ross að biðja Monicu og Rachel að passa Ben (son hans) fyrir hann, á meðan hann myndi skreppa eitthvert. Monica er eitthvað að leika sér með Ben og rekur hausinn á honum í loftið á íbúðinni. Þær verða rosalega hræddar um að Ross verði reiður út í þær. Allt í einu byrjar Ben að segja “Monca bang!” Sem á náttúrulega að koma þannig fram að hann segir frá því þegar hún var að lemja hausinn á honum í. En svo fór ég að pæla… (coming out of the blue) hvort að Ben væri psychic og væri dálítið að meina: Monica Bing. Monica Bing…
_________________________________________________