Jæja, þá er komið að fyrstu Friends triviunni sem ég hafði lofað fyrir löngu. Hún er hálfgerður mælikvarði á hve erfiðar þær skuli vera í framtíðinni og hvort að fólk er eitthvað að fíla að fá svona greinar inn á þetta annars stórskemmtilega áhugamál. Ekki vera hrædd við að reyna og svarið bara eins miklu og þið vitið. Ekki skammast ykkar þó að þið vitið ekki allt. Ég sendi inn svörin innan skamms. Njótið vel!!

1. Hvað gerir Dr. Wilson og hvað hefur hann gert fyrir tvo karaktera í þáttunum?

2. Hvert er aðaláhugamál Frank Bouffay?

3. Hvert er annað viðurnefni fyrrv. eiginmanns Janice?

4. Hver vinanna er með 9 og 1/2 tá?

5. Hvaða gæludýr átti Rachel þegar hún var lítil (fyrir utan hundinn LaPooh)

6. Hvaða tveir karakterar í þáttunum hafa leikið í klámmynd?

7. Hver er Regina Philangie?

8. Hver dó tvisvar?

9. Við hvað vann framhjáhald pabba Joeys?

10. Hvert er nafn Hollywood myndarinnar sem Marcel, api Ross, lék í?