Góðan og blessaðan daginn!

Ég hef verið að velta fyrir mér undanfarið hversu virkilega stórt vandamál unglingar í dag eru. Starf mitt krefst þess að ég er mikið innan um börn og unglinga. Vegna þessa hef ég verið mikið að hugsa um þetta undanfarnar vikur. Ég hef ákveðið að þjappa þessum hugsunum mínum á blað.

Við sjáum og lesum daglega fréttir af: hryðjuverkamönnum, lönd sem ráða yfir gereyðingarvopnum, Saddam Hussein, Osama Bin Laden o.s.frv.
Okkur er sagt hvað okkur stafar mikil ógn af þessu og hinu og við erum alltaf hrædd við þessa hluti. En það sem ég er reglulega hræddur við eru unglingarnir!
Þess vegna furða ég mig á því að það er aldrei fjallað um unglingana, þar sem það eru þeir sem okkur stafar virkileg ógn af. Að vísu sér maður einstaka sinnum fjallað um þessi kvikindi. Því miður er það bara í sambandi við einhvern tittlingaskít líkt og krot og skemmdarverk.
Hafið þið til að mynda einhverntíman séð í fréttum 15 ára strákur hugðist sprengdi sig upp á gotumarkaði í Rússlandi? Eða 17 ára telpa gerði tilraun til að stinga bróður sinn í Pakistan? Svarið er NEI.
Sumir vilja meina að þetta sé fjölmiðlunum að kenna, flestir heilvita eru þó með það á hreinu að auvitað eru þetta unglingunum að kenna. Þeir hreinlega vinna saman að því að yfirbuga heiminn. Þeir halda ýmsum hópum starfandi t.a.m. uppljóstrunarhópum, slátrunarhópum, undirmannahópum, þrælahópum, þeir nota eflaust eitthvert slangur yfir þetta sem ég kann ekki skil á.

Ég legg til að við yfirbugum unglingana áður en þeir yfirbuga okkur, áður en það er um seinan!
Hefjumst handa strax…
…Þeir eru hin raunverulega ógn heimsinns.

Kennarinn