Fyrir tveimur árum þegar ég bjó á Íslandi vissi ég varla hvað arabi væri. Núna bý ég í Malmö og þetta orð er fast í hausnum mínum. Það eru örugglega ekki margir sem að vita að Malmö er ein hættulegasta borg evrópu og ennþá færri vita afhverju hún er svona hættuleg!
Málið er að ef að allir “útlendingar” (og þá kalla ég ekki sjálfann mig útlending heldur ég meina þá sem að koma frá aðeins heitari löndum) mundu flytja frá Malmö væri um það vil 1/3 hluti íbúana eftir hér! Það er ótrúlegt hversu mikið af flóttamönnum flytja hingað og flestir flytja inní gettóhverfið Rosengård. Þetta hverfi er í Malmö og þaðan kemur til dæmis Juventus fótboltastjarnan Zlatan Ibrahimovic sem að leikur með sænska landsliðinu en kemur upprunalega frá Serbíu/Svartfjallalandi.
Þetta er ekki skemmtilegt hverfi og ef að ég mundi labba þangað um kvöldið með ljóshærða hausinn minn kæmi ég annaðhvort miklu fátækari eða allvarlega meiddur út úr hverfinu aftur. Hverfið er þannig að það eru kringlóttar blokkir og inní hringnum í miðjunni eru einhverskonar garðar sem að allir meiga nota sem að búa í hverfinu. Þarna inni sitja gengin sem að eru fræg í Malmö. Ég varð það óheppinn að ég mætti einu hættulegasta gengi Malmö í bænum klukkan 3 um nóttina einu sinni. Þetta voru um það bil 15 svartklæddir arabar sem að löbbuðu beint áfram. Ef einhver var fyrir þá var sú manneskja ekki í góðum málum. Ég sá þegar ein manneskja var fyrir og einn gaur í genginu tók upp flösku og hótaði manninum. Hann barði svo manninn og þegar hann var búinn að því sá hann mig og vini mína standa þarna og glápa á þetta. Fyrst öskraði hann á okkur og spurði hvað við værum að horfa á en svo kom hann og hótaði vinum mínum með flöskunni sinni. Sem betur fer þekkti einn af vinum mínum einn gaur í genginu því að þessi vinur minn kemur sjálfur frá Rosengård. Við sluppum en aðeins hálftíma seinna mættum við þremur aröbum sem að sögðu að þeir ætluðu að ræna okkur. Þeir voru svo dópaðir að þeir hlóu bara að okkur. Þetta endaði með því að einn gaurinn fór að bílnum sínum og kafaði langt undir sætið og tók byssuna sína sem að var einhvers konar Magnum. Hann beindi henni að okkur og hló. Ég varð skíthræddur og labbaði rólega í burtu, síðan sagði hann stopp og kom að okkur. Þetta endaði sem betur fer vel. Hann beindi byssunni að hausnum sínum og skaut. Byssan var óhlaðin! Svo hló hann og við hlupum í burtu.
Ég hef verið rændur einu sinni. Arabar að verki!!
Þetta fólk getur aldrei skemmt sér með vinum sínum. Allt snýst um virðingu og þeir eru hræddir um að ef þeir segja eitthvað vitlaust þá missa þeir alla virðingu. Þess vegna tala þeir ekki um neitt annað en að ræna fólk, berja fólk, drepa fólk og skellinöðrurnar sínar.
Núna spyr ég bara - afhverju er þetta fólk svona. Ég veit að sumt fólk er svona en hver einasti arabi sem að ég veit um er með eitthvað svona fast í sér! Jafnvel vinur minn sem mér finnst vera mjög skemmtilegur og öðruvísi miðað við að hann er arabi. Hann er með eitthvað svona í sér. Hann hugsar allt of mikið um virðinguna og brosir sjaldan!
Eru þeir svona útaf því að það er stríð í heimalandinu þeirra. Það getur samt ekki verið því að það eru margir júgóslavar (eins og Zlatan Ibrahimovic) og Pólverjar hérna sem eru svona líka.
Ég þori varla að fara niðri bæ um kvöldið lengur og ég þoli það ekki!