Jamm….vel gert. Frábærar skírskotanir í Opinberunarbókina, Völuspá og aðra dómsdagsdóma. Skemmtilega sett saman við atburði nútímans fyrir botni Miðjarðarhafs. Rauði drekinn er augljóslega Niðhöggur, og höggormurinn í paradís, ormurinn í Opinberunnarbókinni allir í senn. Ég velti lengi fyrir mér hver ljóðmælandi væri, varla væri það þú, því ekki hefur þú sofið í tvisvar sinnum þúsund ár. Miðað við Opinberunina ætti það að vera Satan, Lúsífer eða djöfullinn. Kannski þess vegna sem hliðin eru...