Halló.. ég er búinn að vera að velta fyrir mér í rúmt ár að bæta við 1stk voffa á heimilið, og verið að vanda valið hvaða tegund myndi best passa hjá mér.

Og okkur langar að taka að okkur Enskann Bulldog einhverntíman
í haust (september) því þá á kerla afmæli, og öll mál okkar komin á hreint.

Þá er bara að vita hvert maður á að snúa sér í þeim málum.
Hann verður helst að vera strákur ;)

Svo ef einhver veit eitthvað til þess hvar er hægt að nálgast svona sætann krumpugrís, eða veit af einhverju væntanlegu goti má hann/hún endilega senda mér línu á deadlift83@hotmail.com

Takk fyrir :*

Kv. Benni
SjÉ!