Hvað er það sorglegasta sem þið hafið látið útúr ykkur eða gert af ykkur á djamminu?

Ég hef svo sannarlega átt mín augnablik.

Fyrsta “hösslið mitt”

Fór í partý (man ekki hvar) og allt var í góðu, fyrir utan það að ég var nýbyrjaður að drekka og þetta var fyrsta skiptið sem ég drakk sterkt áfengi. Ég var farinn að hegða mér eins og argasta fífl. Ég stóð í stofunni (meðan allir sátu í rólegum fíling) og söng brjálað hátt með öllum lögum sem voru spiluð, skipti mig litlu máli hvaða lag var í gangi, reyndar hefði ég ekki tekið eftir því ef allir hefðu flúið (ég hefði vel skilið þau).

Allaveganna, planið var að fara á ball seinna um kvöldið og ein stelpan þarna var búin að vera að sýna mér mikinn áhuga.
Hún var nú ekki sú fríðasta eða með fallegasta kroppinn, persónuleika eða neitt sem heillaði og ég held hún hafi ákveðið að taka stefnu á fullasta gaurinn á svæðinu til að tryggja sér eitthvað hössl fyrir kvöldið.

Ég tók eftir því að allir voru að skiptast á að reykja einn FEITASTA vindil sem ég hef séð á ævi minni. Ég ákvað að prófa hann og reykti eins og brjálæðingur. Eftir að hafa reykt mig í hel þá var ég orðinn ansi skrautlegur og ég skokka inn í eldhús í góðum fíling og fæ mér sæti.

Stelpan kemur, sest í kjöltuna á mér og ég man nokkurn veginn samtalið:

Ég: Hæ, af hverju ertu alltaf að tala við mig þegar þú getur fengið hvaða strák sem er hérna inni (sem hún gat EKKI!)

Hún: Ha? Ég? Nei ég er svo feit og ljót

Ég: Nei, hvað ertu að segja? Þú ert fallegasta stelpan á ballinu (við vorum ennþá í partýinu).

Á þessu augnabliki áttaði ég mig á því að vinnir mínir voru að hlæja að mér eins og vitleysingar inní stofu.

Eftir að faðma alla á staðnum og byrja að dansa á meðan engin tónlist var í gangi ákvað gengið að taka leigubíla til að leggja af stað á ballið. Stelpan fer með mér í bíl og á leiðinni vorum við eitthvað rosalega mikið að tala saman, en hvað sem ég sagði þá forðaðist hún mig þegar við komum á ballið. Ég hef eflaust sagt eitthvað vitlaust, ég er mjög góður í því enn þann dag í dag.

Ballið er búið að vera lengi í gangi þegar strákarnir segja við mig að gellan væri að reyna við alla á ballinu. Ég og minn óþroskaði hálfvitalegi persónuleiki ákveðum að lýsa því yfir að ég ætli sko að lemja þá sem eru að reyna við hana. Svo ég fer af stað, leita að þessari “hörku-gellu” og kemst að því að enginn strákur á ballinu vilji neitt með hana hafa.

Djöfull varð ég sáttu við það.

Eftir að reyna við alla á staðnum kemur hún loks til mín (þetta var á efri hæðunum á Broadway) og byrjar að kyssa mig. En þá gerist það. Maginn á Engel litla var ekkert alltof vanur vodkanum svo að þegar tungan á henni kom uppí mig þá skyndilega fékk ég þennan hrikalega verk í magann, ég stend skyndilega upp, sný mér við og æli á gólfið eins og algjör aumingi!

Eftir dágóða ælu kemur gæslan og dregur mig í burtu og þegar þeir eru að draga mig niður stigann í áttina að dauðaherberginu vinka ég henni brosandi og kátur með æluna eflaust lekandi niður á höku.

Eftir að gista í dauðaherberginu allt kvöldið er ég sóttur… af FORELDRUNUM!!! Ekki vinsælt þegar á þessum aldri skal ég ykkur segja.

Ég fór heim, svaf í 24 klukkutíma og þegar ég vaknaði þá langaði mér helst að deyja.


Það versta við þetta alltsaman var það að þetta var skólaball. Bekkjarpartý. Og stelpan sat í sömu röð og ég.


Getur EINHVER slegið þetta út í skandal-fyrsta hössli?