Ég hef fylgst með þessari umræðu í smá tíma og er sammála ýmsu, en ósammála öðru. Sjálfur er ég mjög góður strákur, og þó ég segi sjálfur frá, alveg einstaklega góður kennkostur. Ég er myndarlegur, gáfaður, hreinskilinn og heiðarlegur, mikill húmoristi og vinur vina minna, traustur, trúr og tryggur. Þrátt fyrir þessa kosti hef ég aldrei, að heitið geti, verið í sambandi við stelpu. Ástæðan er einföld, ég er feimni, hlédrægi strákurinn. Að brjóta ísinn er eitthvað sem ég hræðist meira en alla...